Akureyringar safna ekki stigunum fyrir sunnan Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 18. desember 2014 20:09 Ragnar Jóhannsson var markahæstur hjá FH. Vísir/Vilhelm
FH vann í kvöld þriggja marka sigur á Akureyri, 26-23, í sextándu umferð Olís-deildar karla í handbolta en þetta var síðasti leikur liðanna fyrir jóla- og HM-frí. Ragnar Jóhannsson var markahæstur hjá FH með sjö mörk og Ágúst Elí Björgvinsson varði vel í markinu þar á meðal tvö vítaköst Norðanmanna. Sigþór Heimisson skoraði níu mörk fyrir Akureyrarliðið, öll utan af velli, en það var ekki nóg. Akureyringar komust mest fimm mörkum yfir í fyrri hálfleiknum en FH-ingar náðu að minnka muninn niður í eitt mark, 13-12, fyrir hálfleik. FH-ingar skoruðu síðan sex af fyrstu átta mörkum seinni hálfleiksins og lönduðu að lokum þriggja marka sigri. FH-ingar styrktu stöðu sína í fjórða sæti deildarinnar með þessum sigri en þetta var fjórði sigur FH-liðsins í síðustu fimm leikjum FH í Kaplakrika. Akureyringar hafa verið að gera góða hluti á heimavelli síðan Atli Hilmarsson tók við en lítið sem ekkert gengur á útivelli. Akureyrarliðið hefur aðeins náð í eitt stig af tíu mögulegum í síðustu fimm heimasóknum sínum suður og stig kom í jafntefli á móti Stjörnunni í Mýrinni.FH - Akureyri 26-23 (12-13)Mörk FH: Ragnar Jóhannsson 7, Magnús Óli Magnússon 5, Andri Berg Haraldsson 5, Benedikt Reynir Kristinsson 3, Ísak Rafnsson 2, Andri Hrafn Hallsson 2, Daníel Matthíasson 1, Hynur Bjarnason 1.Vítanýting: 2/2, 100 prósentMörk Akureyrar: Sigþór Heimisson 9, Kristján Orri Jóhannsson 6, Heimir Örn Árnason 3, Elías Már Halldórsson 1, Bergvin Þór Gíslason 1, Jón Heiðar Sigurðsson 1, Þrándur Gíslason 1, Halldór Logi Árnason 1.Vítanýting: 6/3, 50 prósentBrottvísanir: FH 4 mínútur, Akureyri 2 mínútur
Olís-deild karla Mest lesið Utan vallar: Sjúklingurinn er að deyja Enski boltinn Belgísku bakgarðskóngarnir með lygilegt heimsmet Sport Belgarnir láta Elísabetu fara Fótbolti Extraleikarnir: Nablinn og Tommi reyna fyrir sér í ballet Körfubolti Þurftu að biðja Infantino afsökunar Fótbolti Þurfti að spretta í markið eftir 102 klukkutíma á hlaupum Sport Sjáðu jöfnunarmark Rice og stórtap Manchester United Fótbolti Svona missti Aron markið sögulega Íslenski boltinn „Fjandinn hafi það, þetta versnar varla úr þessu“ Körfubolti Barcelona kærir PSG vegna móðgandi skilaboða Fótbolti Fleiri fréttir Þórsarar unnu í fyrsta sinn síðan um miðjan september Topplið Hauka burstaði Fram í Lambhagahöllinni Fyrsta tap Kristianstad kom í Íslendingaslag Viktor Gísli öflugur í sigri Barcelona Gísli og Ómar drógu vagninn í sigri Magdeburgar Elvar markahæstur en Donni fagnaði sigri Reynir markahæstur í sigri Melsungen Kærkominn sigur KA/Þór FH gekk frá Fram í seinni hálfleik Sandra með tíu í sætum sigri á Fram en Haukar halda flugi Níu mörk Jóhannesar ekki nóg Finnur til með Arnari Sætur sigur Selfoss og Gunnar með fullkominn leik KA-menn brotlentu í Garðabæ Tólf marka Dagur kom ÍBV á rétta braut „Ekkert sem ég missti svefn yfir“ Snorri Steinn valdi tuttugu leikmenn fyrir komandi verkefni Átján ára með fjórtán mörk og Haukar fljúga áfram Afturelding í annað sæti Stórleikur Hauks í sáru tapi og Andri náði ekki að mæta pabba Úr leik þrátt fyrir sjö mörk Einars Braga Gísli markahæstur og Bjarki fagnaði stórsigri Nýr styrktaraðili dönsku úrvalsdeildarinnar í handbolta umdeildur Arnór Snær: „Þvílíka veislan“ FH þurfti að þola annan skell í Portúgal Valur - Tatabánya 38-34 | Annar frábær Evrópusigur Sá besti óvænt orðaður við brottför „Það rignir ekkert inn peningum“ Mál á borði lögreglu eftir leik hjá liði Donna Benedikt birtir mynd frá slysstað Sjá meira