Björgvin Páll: Erum tilbúnir að leggja mikið á okkur fyrir þjóðina Henry Birgir Gunnarsson í Álaborg skrifar 17. janúar 2014 07:00 Björgvin Páll Gústavsson var í ham gegn heimsmeisturunum á EM í handbolta í gær. Vísir/Daníel
Björgvin Páll Gústavsson var svolítinn tíma í gang í gær í leiknum á móti heimsmeisturum Spánverja á EM í handbolta en fór síðan algjörlega á kostum og varði nítján skot. Mörg hver glæsilega. „Vítin sem ég varði í upphafi komu mér í gang. Það var svekkjandi að tapa þessum leik. Við vorum að spila gegn gæðaliði. Þeir hafa spilað svona leiki margoft og kunna að klára svona leik. Við hefðum samt getað gert betur,“ sagði keppnismaðurinn Björgvin Páll svekktur í leikslok. „Það er erfitt að kyngja þessu. Við erum með gott lið og frammistaða okkar flott. Mannskapurinn er laskaður en við erum að berjast um hvern einasta bolta. Menn eru á fullu gasi. Ég verð að hrósa strákunum fyrir framan mig en þeir eru frábærir. Það sást á hverjum manni að hann er búinn á því og skilur allt eftir á vellinum. Við erum búnir á því bæði andlega og líkamlega. Við verðum að rífa okkur strax upp enda nóg eftir af mótinu.“ Björgvin er ánægður með frammistöðu liðsins í riðlakeppninni. „Við erum að spila vel en þurfum að fækka slæmu mínútunum. Þetta er gott lið með menn sem eru tilbúnir að leggja mikið á sig fyrir þjóðina. Menn eru að spila með hjartanu og það er hægt að komast langt á því.“
EM 2014 karla Mest lesið Utan vallar: Sjúklingurinn er að deyja Enski boltinn Belgísku bakgarðskóngarnir með lygilegt heimsmet Sport Belgarnir láta Elísabetu fara Fótbolti Extraleikarnir: Nablinn og Tommi reyna fyrir sér í ballet Körfubolti Þurftu að biðja Infantino afsökunar Fótbolti Þurfti að spretta í markið eftir 102 klukkutíma á hlaupum Sport Sjáðu jöfnunarmark Rice og stórtap Manchester United Fótbolti Svona missti Aron markið sögulega Fótbolti Barcelona kærir PSG vegna móðgandi skilaboða Fótbolti „Fjandinn hafi það, þetta versnar varla úr þessu“ Körfubolti Fleiri fréttir Þórsarar unnu í fyrsta sinn síðan um miðjan september Topplið Hauka burstaði Fram í Lambhagahöllinni Fyrsta tap Kristianstad kom í Íslendingaslag Viktor Gísli öflugur í sigri Barcelona Gísli og Ómar drógu vagninn í sigri Magdeburgar Elvar markahæstur en Donni fagnaði sigri Reynir markahæstur í sigri Melsungen Kærkominn sigur KA/Þór FH gekk frá Fram í seinni hálfleik Sandra með tíu í sætum sigri á Fram en Haukar halda flugi Níu mörk Jóhannesar ekki nóg Finnur til með Arnari Sætur sigur Selfoss og Gunnar með fullkominn leik KA-menn brotlentu í Garðabæ Tólf marka Dagur kom ÍBV á rétta braut „Ekkert sem ég missti svefn yfir“ Snorri Steinn valdi tuttugu leikmenn fyrir komandi verkefni Átján ára með fjórtán mörk og Haukar fljúga áfram Afturelding í annað sæti Stórleikur Hauks í sáru tapi og Andri náði ekki að mæta pabba Úr leik þrátt fyrir sjö mörk Einars Braga Gísli markahæstur og Bjarki fagnaði stórsigri Nýr styrktaraðili dönsku úrvalsdeildarinnar í handbolta umdeildur Arnór Snær: „Þvílíka veislan“ FH þurfti að þola annan skell í Portúgal Valur - Tatabánya 38-34 | Annar frábær Evrópusigur Sá besti óvænt orðaður við brottför „Það rignir ekkert inn peningum“ Mál á borði lögreglu eftir leik hjá liði Donna Benedikt birtir mynd frá slysstað Sjá meira