Olís deild karla af stað í kvöld eftir 53 daga hlé Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 30. janúar 2014 07:00 Patrekur Jóhannesson stýrði Austurríksmönnum á EM í Danmörku. Vísir/Daníel
Olís-deild karla í handbolta fer aftur af stað í kvöld eftir 53 daga hlé en það hefur ekkert verið spilað í deildinni síðan 8. desember vegna þátttöku íslenska handboltalandsliðsins á EM í Danmörku.Haukarnir voru á miklu skriði þegar deildin fór í frí, búnir að vinna þrjá leiki í röð og komnir með fjögurra stiga forskot á toppnum. Haukar heimsækja ÍR-inga í Austurbergið klukkan 20.00 í kvöld en ÍR-ingar töpuðu fjórum af fimm síðustu leikjum sínum fyrir frí. Bjarki Sigurðsson hefur örugglega farið vel yfir hlutina með lærisveinum sínum í EM-fríinu. Patrekur Jóhannesson, þjálfari Hauka, eyddi hins vegar stærstum hluta frísins í að stýra austurríska landsliðinu á Evrópumótinu í Danmörku.Akureyrarliðið vann tvo síðustu leiki sína fyrir frí og tekur á móti Val á heimavelli í Höllinni á Akureyri klukkan 19.00 í kvöld. Valsmenn eru einu stigi frá sæti í úrslitakeppninni en unnu aðeins einn af síðustu fjórum leikjum sínum fyrir frí.Þriðji leikur kvöldsins er á milli Fram og FH í Safamýrinni en hann hefst klukkan 19.30. FH vann sextán marka sigur í fyrri leiknum og Framarar hafa örugglega lengi stefnt að því að hefna fyrir þann skell. FH tapaði tveimur síðustu leikjum sínum fyrir fríið og misstu með því Haukaliðið fram úr sér í baráttunni um toppsætið deildarinnar.
Olís-deild karla Mest lesið Þurftu að biðja Infantino afsökunar Fótbolti Þurfti að spretta í markið eftir 102 klukkutíma á hlaupum Sport Sjáðu jöfnunarmark Rice og stórtap Manchester United Fótbolti Svona missti Aron markið sögulega Fótbolti Barcelona kærir PSG vegna móðgandi skilaboða Fótbolti „Það er augljóst að Kane á að vinna Ballon d'Or“ Fótbolti Bestu byrjanir táninga í körfunni: Gerði betur en Tryggvi og Jón Arnór Körfubolti Setti tvö Íslandsmet í snörun á Evrópumótinu Sport „Kevin sér opnar hraðbrautir þar sem aðrir sjá umferðarteppu“ Fótbolti Er skrefareglan dauð í NBA? Körfubolti Fleiri fréttir Þórsarar unnu í fyrsta sinn síðan um miðjan september Topplið Hauka burstaði Fram í Lambhagahöllinni Fyrsta tap Kristianstad kom í Íslendingaslag Viktor Gísli öflugur í sigri Barcelona Gísli og Ómar drógu vagninn í sigri Magdeburgar Elvar markahæstur en Donni fagnaði sigri Reynir markahæstur í sigri Melsungen Kærkominn sigur KA/Þór FH gekk frá Fram í seinni hálfleik Sandra með tíu í sætum sigri á Fram en Haukar halda flugi Níu mörk Jóhannesar ekki nóg Finnur til með Arnari Sætur sigur Selfoss og Gunnar með fullkominn leik KA-menn brotlentu í Garðabæ Tólf marka Dagur kom ÍBV á rétta braut „Ekkert sem ég missti svefn yfir“ Snorri Steinn valdi tuttugu leikmenn fyrir komandi verkefni Átján ára með fjórtán mörk og Haukar fljúga áfram Afturelding í annað sæti Stórleikur Hauks í sáru tapi og Andri náði ekki að mæta pabba Úr leik þrátt fyrir sjö mörk Einars Braga Gísli markahæstur og Bjarki fagnaði stórsigri Nýr styrktaraðili dönsku úrvalsdeildarinnar í handbolta umdeildur Arnór Snær: „Þvílíka veislan“ FH þurfti að þola annan skell í Portúgal Valur - Tatabánya 38-34 | Annar frábær Evrópusigur Sá besti óvænt orðaður við brottför „Það rignir ekkert inn peningum“ Mál á borði lögreglu eftir leik hjá liði Donna Benedikt birtir mynd frá slysstað Sjá meira