Skoðun

Nú er komið nóg!

Ungt fólk skrifar
Við erum kynslóðin sem ólst upp í hinu svokallaða góðæri. Kynslóðin sem þekkti ekki annað en ríkisstjórn Sjálfstæðisflokksins, meirihlutaræði og staðnað valdakerfi Davíðs Oddssonar, kvótakerfi og bankakerfi einkavætt fyrir einkavini, Kárahnjúkavirkjun, þjóðrembu útrásarinnar, spaðagosa á sviði með 50 Cent og trúna á Ísland – Best í heimi/Stórasta landið í heimi!

Samfélagið sem flaug stjórnlaust áfram og þoldi ekki gagnrýni. Samfélagið sem hrundi yfir okkur í framhaldsskóla.

Þá urðu sko allir brjálaðir; búsáhaldabyltu Austurvelli dögum og vikum saman, tugþúsundir Íslendinga. Við vildum stjórnarslit og kosningar; nýjan og faglegan Seðlabanka, Fjármálaeftirlit, fjölmiðla og háskóla. Alþingi. Nýja stjórnarskrá og betri stjórnsýslu, sjálfbæra stjórnarhætti í sátt við umhverfið.

Upplýstari og faglegri umræðu með lýðræðislegri og málefnalegri vinnubrögðum. Samráð, virðingu og auðmýkt.

Svo gerðist eitthvað Icesave og verðtrygging og skjaldborg og allir gleymdu.

Framsókn lofaði fólki lægri skuldum, Sjálfstæðisflokkurinn lægri sköttum og flokkarnir sem leiddu þjóðfélag æsku okkar til hruns komust aftur til valda eins og hendi væri veifað.

Endurreisn eftirhrunsáranna var hratt og örugglega leyst upp svo að gamla Ísland stæði bert eftir. Nýrri stjórnarskrá, með lýðræðisumbótum, gegnsæi og ábyrgð, var hent í ruslið. Þjórsá varð dollaramerki. 120 milljarðar í íslenskan ríkisáburð.

Hvergi auðmýkt og virðing

Útgerð, auðmenn og ferðaþjónusta fengu grið vegna þess að þau áttu svo bágt, á meðan háskólarnir, ríkisútvarpið, heilbrigðiskerfið og fátækt fólk í fátækum löndum fékk að finna fyrir niðurskurðarhnífnum.

Áhættufjárfestir varð formaður FME á meðan fyrrverandi formaður, sem rannsóknarskýrslan taldi verulega ábyrgan að vanrækslu í því starfi, varð formaður flokkspólitískrar stjórnar LÍN – sem drullaði yfir námsmenn í kjölfarið. Stjórn RÚV varð líka flokkspólitísk, 60 starfsmönnum var sagt upp og útvarpsstjórinn hrökklaðist úr starfi eftir að ríkisfjölmiðillinn leyfði sér gagnrýna umfjöllun.

Gagnrýnin umfjöllun í fræðasamfélaginu, sem svo sárlega vantaði á uppeldisárum okkar, hlaut hótanir um brottrekstur og opinber uppnefni ráðamanna að launum. Sjálfstæður seðlankastjóri var með „undarlega forgangsröðun“ þegar hann lagði mat á stefnu stjórnarinnar, svo nauðsynlegt þurfti að auglýsa stöðu hans lausa og skapa „svigrúm“ til að breyta þeirri nýtilkomnu meginreglu að skipa seðlabankastjóra faglega.

Auðmýkt og virðingu er hvergi að finna.

Aldrei aftur

Formaður fjárlaganefndar ögrar og hótar gagnrýnendum sínum, tvíeflist þegar hún finnur að hún gerir eitthvað sem öðrum misbýður og heldur ótrauð áfram að „rúst'essu“.

Forsætisráðherra rústar þessu líka. Drullar yfir alla sem voga sér gagnrýni, ræðst að persónum, svarar spurningum með útúrsnúningi og skætingi, hæðist að fjölmiðlamönnum og fræðimönnum, gerir lítið úr rökfærni viðmælenda sinna á sama tíma og hann gerist sjálfur sekur um hroka, yfirgang og rökleysur sem eiga sér vart hliðstæðu, nema ef vera skyldi í kónginum gamla – sem nú ritstýrir einum stærsta fjölmiðli landsins, með reglubundnum árásum á endurreisnina. Útlendingar eru aftur orðnir skammstafanir sem þarfnast endurmenntunar og Ísland bezt í heimi.

Og nú ætla báðir stjórnarflokkarnir að svíkja skýr kosningaloforð blákalt með því að slíta viðræðum við ESB. Með því að koma í veg fyrir að umræða um eitt stærsta deilumál þjóðarinnar geti orðið upplýst, í veg fyrir að þjóðin fái sitt að segja um eigin framtíð. Með því að gefa skít í þá lýðræðishugsun sem glitti í upp úr hruni.

Með því ætla þeir að reka síðasta naglann í líkkistu umbóta eftir hrun. Sturta nýja Íslandi niður klósettið. Endurvekja samfélag góðærisins, svo næstu kynslóðir verði undir hruni hins nýja loftkastala gömlu valdaklíkunnar.

Það er á okkar allra ábyrgð að koma í veg fyrir það. Mætum á Austurvöll í dag með búsáhöld og von í brjósti. Og aftur og aftur, þangað til þeir fara. Svo samfélag æsku okkar snúi aldrei aftur.

Viktor Orri Valgarðsson stjórnmálafræðingur

Stefán Rafn Sigurbjörnsson, formaður Ungra jafnaðarmanna

Inga Auðbjörg Kristjánsdóttir, varaformaður Ungra jafnaðarmanna

Gísli Garðarsson, talsmaður Ungra vinstri grænna í utanríkismálum

Una Hildardóttir, alþjóðaritari Ungra vinstri grænna

Arnaldur Sigurðarson, formaður Ungra pírata

Ásta Helgadóttir, varaþingmaður Pírata

Unnsteinn Jóhannsson, fulltrúi Bjartrar framtíðar

Freyja Steingrímsdóttir, alþjóðafulltrúi Ungra Evrópusinna

Sema Erla Serdar, fyrrv. formaður Ungra Evrópusinna

Ólafur Heiðar Helgason hagfræðinemi

Oddur Ævar Gunnarsson stjórnmálafræðinemi

Garðar Þór Þorkelsson kvikmyndafræðingur

 




Skoðun

Skoðun

Kona, vertu ekki fyrir!

Elín Björg Jónsdóttir,Halldóra Sigríður Sveinsdóttir,Hrafnhildur Lilja Harðardóttir skrifar

Sjá meira


×