Lífið

Fékk góð leiklistarráð frá Richard Gere

Álfrún Pálsdóttir skrifar
Eydís Helena Evensen tók upp japanska sjónvarpsauglýsingu með Hollywood-leikaranum Richard Gere en vel fór á með þeim á meðan á tökum stóð.
Eydís Helena Evensen tók upp japanska sjónvarpsauglýsingu með Hollywood-leikaranum Richard Gere en vel fór á með þeim á meðan á tökum stóð.
„Þetta var ótrúleg reynsla og Richard er mjög jarðbundinn,“ segir fyrirsætan Eydís Helena Evensen sem lék í japanskri sjónvarpsauglýsingu á Ítalíu með engum öðrum en Hollywood-hjartaknúsaranum Richard Gere.

Eydís Helena er í fullu starfi sem fyrirsæta í London fyrir Elite Model Management en hún flutti út í október í fyrra.

Ofangreind sjónvarpsauglýsing var tekin upp á Suður-Ítalíu og ber Eydís leikaranum fræga vel söguna.

„Við áttum gott spjall um Ísland og hann gaf mér einnig nokkur góð ráð fyrir leiklistina.“ Eydís segir fyrirsætustarfið vera meiri vinnu en fólk geri sér grein fyrir.

„Þá daga sem ég er ekki í myndatökum þá fer ég að meðaltali í 5-6 „casting“ á hverjum degi til þess að hitta ljósmyndara, hönnuði, stílista og fólk fyrir komandi verkefni. Þetta er frábært tækifæri til þess að ferðast, skoða heiminn og vinna á sama tíma,“ segir Eydís og bætir við að hún sé mjög þakklát og hamingjusöm með að fá að starfa í þessum geira.

Næst á dagskrá hjá Eydísi Helenu er að koma heim og ganga tískupallana fyrir íslenska hönnuði á Reykjavík Fashion Festival en tískuhátíðin fer fram þann 29.mars næstkomandi.

„Ég er rosalega spennt að vera að koma heim fyrir RFF. Þetta er uppskeruhátíð fyrir íslenska hönnuði og það er alltaf jafn gaman að taka þátt í þessari frábæru hátíð,“ segir Eydís, en er einhver íslenskur hönnuður í uppáhaldi?

„Ég á ekki beint einhvern einn uppáhaldshönnuð, þetta eru allt mjög góðir og áhugaverðir hönnuðir með mismunandi stíl.“ 

RFF





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.