Annaðhvort gerum við þetta af krafti eða hættum þessu Tómas Þór Þórðarson skrifar 16. apríl 2014 07:00 Sverre Jakobsson. Vísir/Stefán
Akureyri Handboltafélag er öruggt með sæti sitt í Olís-deild karla næsta vetur eftir sigur á HK í lokaumferðinni á mánudagskvöldið. Breytingar verða á liðinu fyrir næsta tímabil en Bjarni Fritzson yfirgefur félagið og fer þar besti leikmaður liðsins og annar þjálfarinn. Maðurinn sem Akureyringar vilja fá til að þjálfa liðið er landsliðsmaðurinn SverreJakobsson. „Það kemur í ljós síðar í vikunni með hann. Það eru viðræður í gangi. Við viljum að hann spili en hann er ekki alveg á því. Við höfum allavega áhuga á að fá hann í klúbbinn,“ segir Hlynur Jóhannsson, framkvæmdastjóri Akureyrar Handboltafélags, við Fréttablaðið. Akureyringar ætla sér að styrkja hópinn fyrir næsta tímabili og eru nöfn á lofti í þeirri umræðu á borð við Ragnar Jóhannsson, skyttu FH-inga, og Hreiðar Levy Guðmundsson. „Ef Hreiðar er á leiðinni heim munum við allavega tala við hann en við erum með góðan markvörð sem vill vera áfram. Annars höfum við bara áhuga á öllum góðum leikmönnum.“ Stefnan er tekin á toppbaráttuna eftir tvö erfið tímabil. „Annaðhvort tökum við þátt í þessu af krafti á næsta ári eða hættum þessu. Það nennir enginn að standa í þessu rugli. Við erum búnir að sameina félögin en getum svo ekki verið með alvöru lið. Það er ekki boðlegt,“ segir Hlynur Jóhannsson.
Olís-deild karla Mest lesið Utan vallar: Sjúklingurinn er að deyja Enski boltinn Þurftu að biðja Infantino afsökunar Fótbolti Þurfti að spretta í markið eftir 102 klukkutíma á hlaupum Sport Sjáðu jöfnunarmark Rice og stórtap Manchester United Fótbolti Belgarnir láta Elísabetu fara Fótbolti Svona missti Aron markið sögulega Fótbolti Extraleikarnir: Nablinn og Tommi reyna fyrir sér í ballet Körfubolti Barcelona kærir PSG vegna móðgandi skilaboða Fótbolti Er skrefareglan dauð í NBA? Körfubolti „Það er augljóst að Kane á að vinna Ballon d'Or“ Fótbolti Fleiri fréttir Þórsarar unnu í fyrsta sinn síðan um miðjan september Topplið Hauka burstaði Fram í Lambhagahöllinni Fyrsta tap Kristianstad kom í Íslendingaslag Viktor Gísli öflugur í sigri Barcelona Gísli og Ómar drógu vagninn í sigri Magdeburgar Elvar markahæstur en Donni fagnaði sigri Reynir markahæstur í sigri Melsungen Kærkominn sigur KA/Þór FH gekk frá Fram í seinni hálfleik Sandra með tíu í sætum sigri á Fram en Haukar halda flugi Níu mörk Jóhannesar ekki nóg Finnur til með Arnari Sætur sigur Selfoss og Gunnar með fullkominn leik KA-menn brotlentu í Garðabæ Tólf marka Dagur kom ÍBV á rétta braut „Ekkert sem ég missti svefn yfir“ Snorri Steinn valdi tuttugu leikmenn fyrir komandi verkefni Átján ára með fjórtán mörk og Haukar fljúga áfram Afturelding í annað sæti Stórleikur Hauks í sáru tapi og Andri náði ekki að mæta pabba Úr leik þrátt fyrir sjö mörk Einars Braga Gísli markahæstur og Bjarki fagnaði stórsigri Nýr styrktaraðili dönsku úrvalsdeildarinnar í handbolta umdeildur Arnór Snær: „Þvílíka veislan“ FH þurfti að þola annan skell í Portúgal Valur - Tatabánya 38-34 | Annar frábær Evrópusigur Sá besti óvænt orðaður við brottför „Það rignir ekkert inn peningum“ Mál á borði lögreglu eftir leik hjá liði Donna Benedikt birtir mynd frá slysstað Sjá meira