Það verður að breyta starfsmannalögunum – seinni grein
Félagi Ögmundur Jónason sendi mér tóninn í Fréttablaðsgrein. Hann minnti á að ríkisstjórn Samfylkingarinnar og Vinstri grænna hefði sagt upp fjölda heilbrigðisstarfsmanna sem og lögreglumönnum. Fyrrverandi heilbrigðisráðherra og innanríkisráðherra hélt því síðan fram að ég vilji auðvelda núverandi stjórnvöldum að gera slíkt hið sama. Þingmaðurinn flytur mál sitt gegn betri vitund. Ólíkt ríkisstjórn þeirri sem Ögmundur sat í og studdi hefur ríkisstjórn Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks staðið vörð um heilbrigðiskerfið og hækkaði framlög til heilbrigðismála um 10 milljarða í sínu fyrsta fjárlagafrumvarpi. Og lögreglumönnum var fjölgað.
Eineltisforstjórar
Ögmundur nefndi hins vegar annað sem hefði átt að vekja athygli fjölmiðla. Sem formaður BSRB kynntist Ögmundur skuggahliðum ríkisrekstrar; eineltisforstöðumönnum en orðrétt sagði Ögmundur:
„Til eru nefnilega þeir forstjórar sem sjálfir ráða ekki við starf sitt. Þetta eru einstaklingar sem beita geðþóttavaldi; eru eineltisforstjórar.“ Síðan rekur þingmaður dæmi sem hann þekkir frá fyrri störfum sínum.
Ég spyr, er í góðu lagi að hafa fyrirkomulagið með þessum hætti? Mitt svar er nei, við verðum að breyta þessu umhverfi. Ég held því miður að Ögmundur hafi rétt fyrir sér og lýsi hluta vandans ágætlega. Það er fullkominn misskilningur að almenni markaðurinn einkennist af því háttalagi sem Ögmundur gerir að umtalsefni. Ég fullyrði að stjórnandi sem hagar sér eins og Ögmundur lýsir verði aldrei eftirsóttur á almenna markaðnum. Vandinn við núverandi fyrirkomulag hjá hinu opinbera er að eineltisstjórnendurnir njóta sérstakrar verndar. Það eru ekki almannahagsmunir.
Varhugavert að ræða breytingar!
Formaður BHM, Guðlaug Kristjánsdóttir, heldur því fram í grein hér í Fréttablaðinu að það sé jafnvel „varhugavert“ að ræða breytingar á starfsmannalögunum! Einhvern tíma hefðu slík ummæli verið kölluð tilraun til þöggunar en ég ætla nöfnu minni ekki slíkt. Í kjölfar síðasta kjarasamnings BHM er verið að ræða „lagaumhverfi og réttindamál – verkefni verði m.a. að fara yfir lagaumhverfi og kjarasamningsbundin réttindi félagsmanna BHM hjá ríki“. Er það varhugavert?
Ég sakna þess hins vegar að hún ræði ekki niðurstöður og ábendingar þeirrar skýrslu sem hún vitnar í. Það er að segja skýrslu Ríkisendurskoðunar um mannauðsmál.
Þetta snýst ekki einungis um hagræðingu. Ef marka má yfirlýsingar formanns BHM í Vísi 5. október þá líkar fólki ekki að vinna hjá hinu opinbera og flýr yfir í einkageirann. En í viðtali við hana kemur fram að „Starfsaldur fimmtíu prósent ungra háskólamenntaðra opinberra starfsmanna er eitt til fjögur ár og erfiðlega gengur að halda þeim í vinnu“.
Getur verið að það sé eitthvað hjá einkageiranum sem er betra en hjá hinu opinbera? Lífeyrisréttindi opinberra starfsmanna eru með ríkisábyrgð og starfsöryggið miklu meira en annars staðar, en samt sem áður helst ríkinu ekki á starfsfólki ef marka má orð formanns BHM.
Uppnefni, rangtúlkanir og ósannindi
Grein framkvæmdastjóra SFR í Fréttablaðinu verður seint talin innlegg í málefnalega umræðu. Uppnefni, rangtúlkanir og ósannindi einkenna grein þessa valdamikla manns. Greinarhöfundur er líka mjög seinheppinn þegar hann ásakar mig og formann fjárlaganefndar um að vilja losna við heilbrigðisstarfsmenn og lögreglumenn, en við beittum okkur sérstaklega fyrir því að færa fjármuni í þessa málaflokka við síðustu fjárlagagerð. Það þýðir einfaldlega að mun meiri fjármunir voru til þess að ráða fólk í störf hjá heilbrigðisstofnunum og lögreglu.
Á síðasta kjörtímabili fækkaði störfum á almenna markaðinum um nærri 9–16 þúsund. Opinberum starfsmönnum fjölgaði á árunum 2007–2011 skv. skýrslu sem gerð var fyrir Alþingi af Hagfræðistofnun Háskóla Íslands. Á ákveðnum sviðum opinbera rekstrarins var hins vegar mikil fækkun, nánar tiltekið heilbrigðisgeiranum og þá sérstaklega hjá Landspítalanum (500 manns) og hjá lögreglunni.
Orð mín hafa vakið mikil viðbrögð og nokkrir hafa haft uppi stóryrði. Hvar var þetta yfirlýsingaglaða fólk á síðasta kjörtímabili? Þá var stefnan að hlífa öllum nema heilbrigðisstarfsmönnum og lögreglumönnum.
Aðalatriðið er að við verðum að nýta opinbera fjármuni betur, við verðum að forgangsraða í ríkisfjármálum. Það er ekki andstætt hagsmunum opinberra starfsmanna. Þvert á móti er það hagur allra að umhverfi opinberra starfsmanna verði aðlaðandi og hvetji fólk til að starfa þar.
Skoðun
Fyrstu jólin eftir ástvinamissi
Anna Sigurðardóttir skrifar
Skyndihjálp: Lykillinn að öruggara samfélagi
Hildur Vattnes Kristjánsdóttir skrifar
Það er ekki nóg að vera klár stelpa/strákur/stálp
Rakel Linda Kristjánsdóttir skrifar
Kosningum lokið og hvað nú?
Ólafur Ágúst Hraundal skrifar
„Þetta er ekki hægt, en það verður samt að gera þetta“
Arnar Þór Jónsson skrifar
Mýtan um sæstreng!
Andrés Pétursson skrifar
Kvennaárið 2025
Drífa Snædal skrifar
Bíp Bíp Bíp
Ágúst Mogensen skrifar
Samviskufrelsi heilbrigðisstarfsmanna ekki vandamál þegar kemur að dánaraðstoð
Ingrid Kuhlman skrifar
Milljónerí
Hannes Örn Blandon skrifar
Jólaskreytingafyllerí: Eru takmörk fyrir því hversu langt má ganga í jólaskreytingum?
Hildur Ýr Viðarsdóttir skrifar
Hvað er borgaraleg pólitík?
Guðjón Heiðar Pálsson skrifar
Ríkisstjórn verðmætasköpunar
Sigríður Mogensen skrifar
Þorlákshöfn - byggð á tímamótum
Anna Kristín Karlsdóttir skrifar
Hagsmunamál fyrirtækjanna í stjórnarsáttmála
Ólafur Stephensen skrifar
Er lausnin í leikskólamálum að grafa undan atvinnuþátttöku og jafnrétti?
Ástþór Jón Ragnheiðarson skrifar
Lýðræði hinna sterku
Jón Páll Hreinsson skrifar
Bleikir hvolpar
Darri Gunnarsson,Rósa Líf Darradóttir skrifar
Lifandi dauð!
Kolbrún Halldórsdóttir skrifar
Það hafa allir sjötta skilningarvit
Matthildur Björnsdóttir skrifar
Skoðun mín á alþingiskosningum 2024
Valgerður Bára Bárðardóttir skrifar
Kristrún, Þorgerður og Inga: Framtíð Íslands - Ykkar tími er komin!
Gísli Hvanndal Jakobsson skrifar
Skautaíþróttir í Reykjavík í dauðafæri - kýlum á stækkun Skautahallarinnar
Bjarni Helgason skrifar
Hlustið á fólkið í skólunum?
Dóra Þorleifsdóttir skrifar
Mikilvægasta atkvæðið
Kristbjörg Þórisdóttir skrifar
Nálgunarbann
Fjölnir Sæmundsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir skrifar
Kosningasigur fyrir dýravernd
Árni Stefán Árnason skrifar
Í morgun vöknuðum við á merkilegum tíma
Silja Rún Friðriksdóttir skrifar
Hálft líf heimilislausra kvenna
Kristín I. Pálsdóttir,Halldóra R. Guðmundsdóttir skrifar
Snúum samfélagi af rangri leið
Finnbjörn A. Hermansson skrifar