Það er einfalt að gera margar tegundir af smákökum úr sama grunndeiginu og ég geri það oft sjálfur. Mér finnst til dæmis þægilegt að eiga tilbúið deig í frysti og gríp til þess þegar gesti ber að garði eða okkur langar í nýbakaðar smákökur. Ég geymi deigið í rúllum sem auðvelt er að skera niður í sneiðar og skella á bökunarplötu með lítilli fyrirhöfn,“ segir Pétur. Fjölskyldan á sínar uppáhaldskökur sem birtast hér.
„Ég hefði getað gert átta útgáfur með þessu grunndeigi. Í Lenunum nota ég smjörkrem án bragðefna en því má hæglega breyta, setja appelsínu- eða sítrónubörk út í það. Jafnvel pistasíur eða súkkulaði,“ segir Pétur, sem segist vera duglegur að baka heima fyrir jólin. „Ég baka fjórar til fimm tegundir. Svo geymi ég óbakað deig alltaf í frosti líka. Ilmurinn er svo góður af nýbökuðum kökum. Ég er mikið jólabarn og jólaskapið er sannarlega að detta inn,“ segir hann.
Dóttur Péturs, Lenu Guðrúnu, sem er 5 ára, finnst skemmtilegt að taka þátt í bakstrinum og fær að gera það. Kona hans, Berglind Ósk Kjartansdóttir, er sömuleiðis öflug í bakstrinum svo fjölskyldan hjálpast að fyrir jólin. „Við erum hundrað prósent samhent í þessu,“ segir Pétur.
„Okkur finnst líka skemmtilegt að elda góðan mat. Við erum yfirleitt með kalkún og hamborgarhrygg á jólum. Okkur finnst ágætt að eiga afganga og geta nartað í þá um hátíðirnar. Ég reyni síðan að töfra fram spennandi eftirrétti. Mér finnst gaman að breyta til en geri alltaf sérrí-triffle og risalamande. Svo eru jólaboð í báðum ættum og margt um að vera,“ segir hann.
Pétur starfaði á Hótel Loftleiðum í sextán ár og er eini bakarinn sem hefur útskrifast frá hóteli. Þar sá hann um ýmsar stórar veislur, brúðkaup, fermingar, skírn og erfisdrykkjur.

Grunndeig
750 g hveiti
750 g sykur
500 g smjör
5 meðalstór egg
10 g hjartarsalt
Allt sett í hrærivél og unnið saman. Þegar allt er komið saman er deiginu skipt í þrjá jafn stóra hluta (750 g hver hluti).
Lenur uppáhald barnanna
Einn þriðji hluti af grunndeigi (750 g)
90 g kókos
Þetta er sett í hrærivélarskál og unnið létt saman. Deiginu er síðan skipt í fjóra hluta (210 g) og rúllað í jafnlangar pylsur og kælt. Síðan skorið í 1 cm bita.
Til að fullkomna Lenurnar þarf að laga smjörkrem og leggja saman tvær og tvær kökur með kremi á milli. Það vekur alltaf jafn mikla lukku að lita kremið með hinum ýmsu litum. (Einnig má bragðbæta hvern lit fyrir sig). Til skrauts er upplagt að sprauta smá súkkulaði á toppinn.
Smjörkrem
400 g smjör
500 g flórsykur
25 g egg (fínt að brjóta eitt egg í glas og slá því saman, og nota svo helminginn)
10 g vanilludropar
Smjör og flórsykur unnið saman í hrærivél með spaða (K-ið) þangað til það er vel komið saman, svo er eggi og vanillu bætt út í. Og unnið á miklum hraða þangað til kremið er orðið létt og fínt. Svo má taka hluta af kreminu og lita eftir vild í til dæmis í jólalitum.

Einn þriðji hluti af grunndeigi (750 g)
50 g pistasíuhnetur, gróft saxaðar
50 g hvítt súkkulaði, gróft saxað
5 g anisfræ (Má einnig nota anisstjörnu en þá þarf að setja hana í kvörn)
Allt sett í hrærivélarskál og unnið saman. Svo er þessu deigi skipt í fjóra hluta (um 210 g) og rúllað út í jafnlangar pylsur og kælt. Síðan skorið í 1,5 cm bita. Til skrauts er flott að pensla smá hvítu súkkulaði á kökurnar og setja nokkrar pistasíuhnetur ofan á.
Beggur uppáhald konunnar
Einn þriðji hluti af grunndeigi (750 g)
40 g möndlur, gróft saxaðar
50 g þurrkuð trönuber, gróft söxuð
50 g karamellusúkkulaði, gróft saxað
Allt sett í hrærivélarskál og unnið saman. Svo er þessu deigi skipt í fjóra hluta (um 220 g) og rúllað út í jafnlangar pylsur og kælt. Svo skorið í 1,5 cm bita.
Bakstur
Bakað á 180°C í um það bil 12 mínútur eða þangað til kökurnar eru orðnar gulbrúnar, passa samt að baka ekki of mikið, þær halda áfram að bakast á plötunum eftir að þær koma út úr ofninum.
Ábending
Þessar kökur er snilld að eiga í pylsum inni í frysti, óbakaðar, kippa út og baka jafnóðum þegar von er á gestum. Ilmurinn úr eldhúsinu er svo lokkandi!
Þeim er svo raðað á bökunarplötur með smjörpappír. Passa upp á bil á milli þeirra, þær leka svolítið út.