Andrés hefur alltaf verið mikið jólabarn. „Foreldrar mínir skreyttu mikið bæði innanhúss og utan og það var svolítil „Christmas Vacation“-stemning hjá okkur,“ segir Andrés en margir kannast við þá sígildu jólamynd með Chevy Chase í broddi fylkingar. Þar gegndi jólaskrautið veigamiklu hlutverki.

Andrés hefur yfirleitt verið með eitt gervitré en þetta árið ákvað hann að hafa þau tvö og búa til lítinn jólatrjáaskóg í stofunni. „Ég hef lengi hugsað um þetta en lét loks verða af því. Ég átti alltaf aukatré í geymslunni og hví ekki að setja það upp.“
Rauði og hvíti liturinn eru áberandi á trjánum. Svo er þar mikið um leikfangaskraut í öllum regnbogans litum sem minnir um margt á gömul leikföng frá 1920, eða þar um bil. „Mér þykja þau svo falleg,“ segir Andrés. Það er mikið að gerast í trjánum og Andrési tekst að skapa sannkallaðan ævintýraheim sem auðvelt er að gleyma sér við að skoða. Hnotubrjóturinn við tréð er úr Pier en hann undirstrikar möguleikann á því að allt geti gerst og leikföngin jafnvel lifnað við eins og reyndin er í ballettinum sem kenndur er við hann
„Það er líka þemað í svo mörgum jólamyndum. Jólin eru lítið ævintýri og jólatrén á mínu heimili undirstrika það. Andrés segist aldrei nöldra yfir álagi eða jólastressi. Hann nýtur þess að borða jólamatinn og bíður með ræktina fram í janúar. „Jólastress er bara eitthvað sem fólk býr til í höfðinu. Eins leiðinlegt og það hljómar þá snýst þetta aðallega um skipulag.“
Fyrir utan jólatrén setur Andrés upp seríur og stöku jólasveina og skraut hér og þar. „Ég vil samt alls ekki ofhlaða skrauti um alla íbúð. Það skiptir miklu máli að hafa gott jafnvægi. Heimili mitt er frekar látlaust og þótt mér finnist gaman að skreyta finnst mér líka gott að taka jólaskrautið niður. Eftir það kveiki ég varla á kertum.“

Annars segir Andrés Íslendinga sérstaklega skreytingaglaða og hafa ferðamenn sem koma hingað um jól haft orð á því við hann. „Fjölbreytileikinn er mikill og ferðamönnum finnst gaman að sjá hvernig við skreytum úti um alla borg.”