Óljóst hvort Ólafur taki aftur við Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 5. desember 2014 07:45 Fylgist með. Ólafur hefur mætt á leiki Valsliðsins í haust. Hér er hann með Finni Jóhannssyni. fréttablaðið/valli
Ómar Ómarsson, formaður handknattleiksdeildar Vals, segir að enn sé óvíst hvort Ólafur Stefánsson taki aftur við sem þjálfari Vals í Olísdeild karla eftir áramót. Það stóð til þegar tilkynnt var um skyndilegt brotthvarf hans úr starfinu í byrjun september. „Við erum að einbeita okkur að því að klára þá leiki sem eftir eru og svo tökum við á því þegar það klárast,“ sagði Ómar. „En það er alveg inni í myndinni.“ Hann segir að Ólafur hafi ekki skipt sér af æfingum eða þjálfun liðsins eftir að hann hætti í haust. „Hann hefur gefið þeim Jóni [Ríkharði Kristjánssyni] og Óskari [Bjarna Óskarssyni] algjöran frið til að sinna sinni vinnu,“ segir Ómar. Valsmenn gáfu Ólafi frí til að sinna verkefni sem nýstofnað fyrirtæki hans var að setja af stað. „Við höfum fullan skilning á því og við höfum í raun ekkert unnið meira í þessu máli. Það er nægur tími í þessu fríi til að skoða þessi mál en við erum þar að auki ekki illa settir um þessar mundir.“ Valur hefur átt góðu gengi að fagna að undanförnu og staða liðsins í deildinni sterk. Aðeins tvær umferðir eru eftir þar til vetrarfrí hefst fram yfir HM í handbolta en hlé verður gert á deildinni þann 18. desember.
Olís-deild karla Mest lesið Utan vallar: Sjúklingurinn er að deyja Enski boltinn Belgísku bakgarðskóngarnir með lygilegt heimsmet Sport Belgarnir láta Elísabetu fara Fótbolti Þurftu að biðja Infantino afsökunar Fótbolti Extraleikarnir: Nablinn og Tommi reyna fyrir sér í ballet Körfubolti Þurfti að spretta í markið eftir 102 klukkutíma á hlaupum Sport Sjáðu jöfnunarmark Rice og stórtap Manchester United Fótbolti Svona missti Aron markið sögulega Fótbolti Barcelona kærir PSG vegna móðgandi skilaboða Fótbolti Er skrefareglan dauð í NBA? Körfubolti Fleiri fréttir Þórsarar unnu í fyrsta sinn síðan um miðjan september Topplið Hauka burstaði Fram í Lambhagahöllinni Fyrsta tap Kristianstad kom í Íslendingaslag Viktor Gísli öflugur í sigri Barcelona Gísli og Ómar drógu vagninn í sigri Magdeburgar Elvar markahæstur en Donni fagnaði sigri Reynir markahæstur í sigri Melsungen Kærkominn sigur KA/Þór FH gekk frá Fram í seinni hálfleik Sandra með tíu í sætum sigri á Fram en Haukar halda flugi Níu mörk Jóhannesar ekki nóg Finnur til með Arnari Sætur sigur Selfoss og Gunnar með fullkominn leik KA-menn brotlentu í Garðabæ Tólf marka Dagur kom ÍBV á rétta braut „Ekkert sem ég missti svefn yfir“ Snorri Steinn valdi tuttugu leikmenn fyrir komandi verkefni Átján ára með fjórtán mörk og Haukar fljúga áfram Afturelding í annað sæti Stórleikur Hauks í sáru tapi og Andri náði ekki að mæta pabba Úr leik þrátt fyrir sjö mörk Einars Braga Gísli markahæstur og Bjarki fagnaði stórsigri Nýr styrktaraðili dönsku úrvalsdeildarinnar í handbolta umdeildur Arnór Snær: „Þvílíka veislan“ FH þurfti að þola annan skell í Portúgal Valur - Tatabánya 38-34 | Annar frábær Evrópusigur Sá besti óvænt orðaður við brottför „Það rignir ekkert inn peningum“ Mál á borði lögreglu eftir leik hjá liði Donna Benedikt birtir mynd frá slysstað Sjá meira