Vestfirskar hveitikökur og metnaðarfullar skreytingar Erla Björg Gunnarsdóttir skrifar 7. desember 2014 09:00 Baldur Trausti bakar alltaf hveitikökur og Sörur fyrir jólin. vísir/vilhelm
Það fer ekkert að gerast í jólaundirbúningi fyrr en ég og dóttir mín erum búin að baka hveitikökurnar. Þetta er vestfirskt fyrirbæri og hafa þessar kökur fylgt jólunum frá því að ég man eftir mér. Þær eru bakaðar á aðventunni og svo teknar upp á Þorláksmessu og borðaðar með hangikjötinu,“ segir Baldur Trausti. Hann er þessa dagana að æfa fyrir Sjálfstætt fólk sem frumsýnt verður um jólin í Þjóðleikhúsinu og leikur í Konunni við 1000 gráður. Það hefur þó engin áhrif á jólabaksturinn. Hveitikökubakstur er vestfirsk hefð en uppskriftina að Sörunum fékk Baldur hjá starfsfélaga í leikhúsinu. fréttablaðið/vilhelm „Ég gef mér tíma til að baka. Við dóttir mín stöndum í bakstrinum, svo kemur restin og borðar þetta. Hveitikökurnar passa með öllum mat, skötustöppu, hangikjöti, með afgöngum af hamborgarhryggnum og eru æðislegar með rauðbeðusalati. Við kaupum ekkert brauð yfir hátíðirnar heldur borðum allt með þessu.“ Baldur Trausti hefur síðastliðin sextán ár bakað Sörur á aðventunni eftir uppskrift sem hann fékk frá Guðrúnu Erlu Sigurbjarnadóttur, starfsfélaga í Þjóðleikhúsinu. „Ég hef aðeins þróað stærðina, því ég vil hafa þær svona þrjá munnbita, og svo hef ég möndlurnar grófar í botnunum því ég vil hafa botninn grófan,“ segir Baldur og bætir við að fyrstu árin hafi hann verið svolítið nískur á Sörurnar. „Einhvern tímann sá ég síðan að frystikistan var full af Sörum um páska því ég hafði verið svo sparsamur. Eftir það er ég slakari og er á því að maður eigi að borða þær á aðventunni enda nóg annað að borða yfir jólin.“ Hveitikökur 7-8 kökur 3 bollar hveiti 3 tsk. lyftiduft 1 tsk. salt 1 msk. sykur 2,5 dl mjólk 2,5 dl rjómi Hnoðað saman í hrærivél. Búin til pylsa og skorið í 7-8 kökur. Flatt út með kökukefli. Stinga í hverja köku með gaffli. Steikt á pönnu, helst þykkbotna og eldgamalli. Bakað við meðalhita. Sörur Botn 5 eggjahvítur 6 dl flórsykur 400 g möndlur Eggjahvítur stífþeyttar í tíu mínútur. Flórsykri og möndlum bætt við og hrært vel, en hægt og rólega. Möndlur ekki maukaðar heldur rétt brotnar í höndunum. Ríflega sett í teskeið og á plötu og bakað við 180 gráður í 10-15 mínútur. Krem ½ dl sykur ½ dl vatn 5 eggjarauður 300 g smjör 2 msk. kakó 2½ tsk. kaffiduft 1 msk. Swiss Miss Sykur og vatn soðið saman í 10-15 mínútur við vægan hita og svo látið kólna vel. Eggjarauður stífþeyttar og vatninu svo hellt varlega saman við í mjórri bunu. Smjöri, kakó, kaffidufti og Swiss Miss bætt við. Þeytt saman. Smurt á botninn á kökunum. Sett í frysti og látið bíða í einn dag.
Jólamatur Sörur Tengdar fréttir Hentugt fyrir litla putta Þórdís Elva Þorvaldsdóttir skreytir piparkökur árlega ásamt fjölskyldu mannsins síns í Grindavík. 7. desember 2014 09:00 Heimilið undirlagt eftir tíu daga bakstur á piparkökum Vigdís Sigurðardóttir býr á Ítalíu og vinkonu hennar, sem rekur eigið fyrirtæki í bænum, langaði að gefa viðskiptavinum sínum íslenskar piparkökur fyrir jólin. Kökurnar áttu að vera ætar og fallegar. Vigdís tók að sér verkið en segir að við undirbúninginn hafi nánast allt farið úrskeiðis sem gat farið úrskeiðis. 7. desember 2014 09:00 Mest lesið Sörur með karamellu pralíni að hætti Lindu Ben Jól Gummi kíró kom Elísabetu til bjargar Jól Aðventan með Lindu Ben: Mjúkir kanilsnúðar með valhnetukaramellu Jól Aðventan með Lindu Ben: Pakkaskraut sem þú borðar Jól Jólastöðin er komin í loftið Jól Opið bréf til jólasveinanna: Góð ráð og hugmyndir í skóinn Jól Hvað veist þú um réttindi barna? Jól Spænsk jól: Roscon de Reyes Jól Segir engin jól án sörubaksturs Jól Jólajóga fyrir krakka: „Það getur verið krefjandi að vera öll heima“ Jól Fleiri fréttir Gummi kíró kom Elísabetu til bjargar Aðventan með Lindu Ben: Pakkaskraut sem þú borðar Sörur með karamellu pralíni að hætti Lindu Ben Aðventan með Lindu Ben: Mjúkir kanilsnúðar með valhnetukaramellu Sjá meira
Hentugt fyrir litla putta Þórdís Elva Þorvaldsdóttir skreytir piparkökur árlega ásamt fjölskyldu mannsins síns í Grindavík. 7. desember 2014 09:00
Heimilið undirlagt eftir tíu daga bakstur á piparkökum Vigdís Sigurðardóttir býr á Ítalíu og vinkonu hennar, sem rekur eigið fyrirtæki í bænum, langaði að gefa viðskiptavinum sínum íslenskar piparkökur fyrir jólin. Kökurnar áttu að vera ætar og fallegar. Vigdís tók að sér verkið en segir að við undirbúninginn hafi nánast allt farið úrskeiðis sem gat farið úrskeiðis. 7. desember 2014 09:00