„Ég geri þær enn á hverju ári á meðan ég hlusta á jólalög og gæða mér á heitu súkkulaði. Ég hef meira að segja búið til þær með mínum eigin vinahópi undanfarin ár. Það er fyndið að verða „fullorðinn“ og byrja að búa til sínar eigin hefðir og minningar,“ segir Elenóra.
Hráefni
Sörubotnar
- 240 g eggjahvítur
- 500 g möndlumjöl
- 420 g flórsykur
Krem
- 120 g eggjarauður
- 320 g mjúkt smjör
- 150 g sýróp
- 30 g kakó
- 15 g instant kaffi
- 1 tsk vanilludropar
Hjúpur
200 g suðusúkkulaði

Aðferð
- Stífþeytið eggjahvíturnar
- Sigtið flórsykurinn og möndlumjölið og blandið varlega saman við eggjahvíturnar með sleif.
- Setjið deigið á plötu annað hvort með sprautupoka eða tveim teskeiðum.
- Bakið í 10 til 12 mínútur við 180 gráður á blæstri.
- Næst er kremið búið til. Byrjið á að þeyta eggjarauðurnar þar til ljósar og loftkenndar.
- Hitið sýrópið og hellið í mjórri bunu út í eggjarauðurnar á meðan hrærivélin er í gangi. Hrærið þar til skálin er köld við snertingu.
- Bætið smjörinu saman við í nokkrum skömmtum og hrærið vel á milli.
- Að lokum er kaffinu, kakói og vanilludropum bætt saman við. Þeytið þar til kremið er orðið silkimjúkt.
- Smyrjið kreminu á kalda sörubotnana og kælið eða frystið þar til kremið hefur harðnað.
- Að lokum er súkkulaðið brætt yfir vatnsbaði og sörunum dýpt í.