„Mér finnst alltaf gaman og spennandi að velja kaffið fyrir jólin og gott að eiga til mismunandi kaffi fyrir mismunandi tilefni,“ segir Sonja Björk Grant, alþjóðlegur dómari og löggilt í kaffifræðum.
„Fyrir þennan drykk finnst mér persónulega best að nota ljósbrennt Suður- eða Mið-Ameríkukaffi, því drykkurinn þarf ekki mjólk og ávextirnir fá að njóta sín í bland við karakterinn í kaffinu."

60 g grófmalað ljósbrennt kaffi
800 g soðið vatn
½ epli
½ appelsína
½ límóna
Smábútur engifer
20 g hrásykur eða eftir smekk
Slurkur af Grand Marnier út í kaffið, til hátíðabrigða.
Ávextirnir og engiferinn eru sneiddir niður og komið fyrir í könnunni ásamt hrásykrinum og safa úr hálfri límónu.
Eftir að bréfpokinn hefur verið skolaður með heitu vatni hefst uppáhellingin, 60 grömm af kaffi á móti 800 grömmum af vatni.
Hellið um 70 g af vatni yfir kaffibeðið og leyfið kaffinu að „blómstra“ í 30 sekúndur. Síðan er vatninu hellt jafnt og þétt yfir kaffibeðið. Þegar kaffið er tilbúið er hrært aðeins til að blanda enn betur saman kaffinu og ávöxtunum.
Drykkurinn hentar einnig sem kaldur drykkur á klaka.
Borið fram í fallegu glasi með límónusneið og piparkökum.


100 ml rjómi
500 ml mjólk
1 tsk. púðursykur
100 g hvítt súkkulaði
5 svört piparkorn
1 kanilstöng
1 hnífsoddur malað múskat
500 ml sterkt kaffi
Sykur, krydd, mjólk og rjómi sett í pott og soðið upp. Takið pottinn af hitanum, setjið súkkulaðið út í og pískið saman við.
Kaffið er síðan hrært saman við, blandan er síðan sigtuð og sett í bolla.
Tilvalið er að setja smá af nýmöluðum pipar og þeyttum rjóma ofan á. Einnig hægt að setja smá romm.