Gaupi í HM-kvöldi: Alexander var of spenntur Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 18. janúar 2015 23:00 Hörður, Gaupi og Júlíus fóru yfir leik Íslands og Alsír í HM-kvöldinu. vísir/pjetur
Guðjón Guðmundsson og Júlíus Jónasson voru gestir Harðar Magnússonar í HM-kvöldi á Stöð 2 Sport 3 í kvöld þar sem þeir fóru yfir leik Íslands og Alsír á HM í Katar. Eftir skelfilega byrjun fóru íslensku strákarnir í gang í seinni hálfleik og unnu að lokum átta marka sigur, 32-24. Sóknarleikurinn gegn Alsír var mun betri en gegn Svíþjóð á föstudaginn þegar íslenska liðið skoraði aðeins 16 mörk. „Sóknarleikurinn var betri hlutinn í leiknum og við getum ekki mikið kvartað yfir honum. En það er samt sem áður margt sem hægt er að laga,“ sagði Júlíus um sóknarleik Íslands í dag. Júlíus fór m.a. yfir innleysingar í sóknarleik Íslands og tók nokkur dæmi um þær. Hann tók það fram að að það væri mikilvægt að Snorri Steinn Guðjónsson léti ekki bremsa sig af þegar hann væri að leysa inn, en innleysingar hans spila stóran þátt í sóknarleik Íslands og hafa lengi gert. Sérfræðingarnir ræddu einnig um frammistöðu Alexanders Petersson sem er að spila á sínu fyrsta stórmóti með Íslandi síðan á Ólympíuleikunum í London 2012. „Mér finnst hann of spenntur og á yfirsnúningi,“ sagði Guðjón og bætti við: „Mér finnst reyndar allt liðið, í þessum tveimur leikjum, hafa verið á pínulitlum yfirsnúningi.“ Allt innslagið má sjá í spilaranum hér að neðan.
HM 2015 í Katar Mest lesið Dæmdur í lífstíðarbann frá öllum NBA leikjum Körfubolti Bikarmeistarar fá bara stutt sumarfrí Sport Sara Björk komin heim Sport Iraola kynntur til leiks hjá Liverpool Enski boltinn Kane laus úr fangelsi og kemur til Íslands í haust Körfubolti Stelpurnar okkar ekki sammála um hverjir vinna HM Fótbolti Slæm úrslit hjá Frökkum og Spánverjum Sport Silfurdrengurinn Ingimundur þjálfar Aftureldingu ásamt Hrannari Handbolti Lokuðu á Martin og héldu sér á lífi Körfubolti Felldu og afklæddu styttur af fótboltamönnum Sport Fleiri fréttir Löðrandi sveittur Donni þurfti að sætta sig við silfur Silfurdrengurinn Ingimundur þjálfar Aftureldingu ásamt Hrannari Stórt tap tryggði sæti í Meistaradeildinni Lovísa og Arnór Snær best í Olís deildinni Missti af dýrmætum stigum gegn meisturunum Jafnir leikir hjá Íslendingunum Guðjón Valur ósáttur því lið gæti grætt á tapi Ráða Svíann sem var einu sinni orðaður við íslenska landsliðið „Þetta hefði ekki getað endað betur“ Bjarki Már ungverskur meistari fjórða árið í röð Hættur og farinn í meistaranám til Bandaríkjanna Hættir með vefinn sinn Handbolti.is Íslendingalið Melsungen er Evrópudeildarmeistari Íslenska þríeykið þýskur meistari Donni lék Landin grátt en mátti þola sárt tap í fyrsta leik um titilinn Óðinn fékk silfrið í fyrsta sinn Arnar og Reynir spila við Kiel um titilinn Dagur Árni aftur heim í KA Tárvotur Bjarki fékk hjartnæma kveðjustund Hörkuleikur í Ungverjalandi Kristianstad er sænskur meistari Velti sinni stöðu fyrir sér þegar eitt stykki Aron vildi verða þjálfari Fékk þjálfarabakteríuna á nokkrum vikum Sigursteinn barðist við tárin Aron verður aðalþjálfari FH en Sigursteinn aðstoðar Hákon Daði til Aftureldingar Hættu leik þegar flugeldum var skotið inn á völlinn Ósátt með HSÍ eftir að hafa orðið fyrir fordómum: „Hreint út sagt ömurlegt“ „Íslenska eldfjallið“ sem átti að vera varaskeifa en vann svo titilinn FH-ingar boða til blaðamannafundar Sjá meira