Lauflétt hjá Aftureldingu í Digranesi - FH vann Stjörnuna Tómas Þór Þórðarson skrifar 5. febrúar 2015 21:39 Jóhann Gunnar Einarsson skoraði níu mörk. vísir/sttefán
Afturelding átti ekki í teljandi vandræðu með að valta yfir lánlaust lið HK, 25-15, í 17. umferð Olís-deildar karla í handbolta í kvöld. Staðan var 11-7 fyrir gestina úr Mosfellsbænum í hálfleik sem síðan bættu í í seinni hálfleik og gengu frá leiknum. Leó Snær Pétursson, Guðni Már Kristinsson og Andri Þór Helgason skoruðu allir fjögur mörk fyrir HK-liðið sem er rótfast við botn deildarinnar með fjögur stig. Jóhann Gunnar Einarsson skoraði níu mörk fyrir gestina sem eru í þriðja sæti deildarinnar með 24 stig, tveimur stigum frá toppliði Vals. Í Garðabænum vann FH svo góðan sigur á Stjörnunni sem er í níunda sætinu með tíu stig. FH með 22 stig í fjórða sæti eftir sigurinn í kvöld, 26-24. Egill Magnússon heldur áfram að raða inn mörkum fyrir Stjörnuna. Hann skoraði átta mörk í kvöld en það dugði skammt. Andri Berg Haraldsson dró vagninn fyrir Hafnafjarðarliðið og skorað níu mörk.HK: Leó Snær Pétursson 4, Guðni Már Kristinsson 4, Andri Þór Helgason 4, Þorgrímur Smári Ólafsson 2, Tryggvi Þór Tryggvason 1.Afturelding: Jóhann Gunnar Einarsson 9, Árni Bragi Eyjólfsson 4, Ágúst Birgisson 3, Elvar Ásgeirsson 2, Gunnar M. Þórsson 2, Jóhann Jóhannsson 2, Böðvar Páll Ásgeirsson 1, Kristinn H. Bjarkason 1, Örn Ingi Bjarkason 1.Stjarnan: Egill Magnússon 8, Starri Friðrikssno 7, Milos Ivosevic 4, Andri Hjartar Grétarsson 3, Víglundur Jarl Þórsson 2.FH: Andri Berg Haraldsson 9, Magnús Óli Magnússon 6, Benedikt Reynir Kristinsson 4, Ásbjörn Friðriksson 4, Ísak Rafnsson 2, Halldór Ingi Jónasson 1.
Olís-deild karla Mest lesið Utan vallar: Sjúklingurinn er að deyja Enski boltinn Belgísku bakgarðskóngarnir með lygilegt heimsmet Sport Belgarnir láta Elísabetu fara Fótbolti Extraleikarnir: Nablinn og Tommi reyna fyrir sér í ballet Körfubolti Þurftu að biðja Infantino afsökunar Fótbolti Þurfti að spretta í markið eftir 102 klukkutíma á hlaupum Sport Sjáðu jöfnunarmark Rice og stórtap Manchester United Fótbolti Svona missti Aron markið sögulega Íslenski boltinn „Fjandinn hafi það, þetta versnar varla úr þessu“ Körfubolti Barcelona kærir PSG vegna móðgandi skilaboða Fótbolti Fleiri fréttir Þórsarar unnu í fyrsta sinn síðan um miðjan september Topplið Hauka burstaði Fram í Lambhagahöllinni Fyrsta tap Kristianstad kom í Íslendingaslag Viktor Gísli öflugur í sigri Barcelona Gísli og Ómar drógu vagninn í sigri Magdeburgar Elvar markahæstur en Donni fagnaði sigri Reynir markahæstur í sigri Melsungen Kærkominn sigur KA/Þór FH gekk frá Fram í seinni hálfleik Sandra með tíu í sætum sigri á Fram en Haukar halda flugi Níu mörk Jóhannesar ekki nóg Finnur til með Arnari Sætur sigur Selfoss og Gunnar með fullkominn leik KA-menn brotlentu í Garðabæ Tólf marka Dagur kom ÍBV á rétta braut „Ekkert sem ég missti svefn yfir“ Snorri Steinn valdi tuttugu leikmenn fyrir komandi verkefni Átján ára með fjórtán mörk og Haukar fljúga áfram Afturelding í annað sæti Stórleikur Hauks í sáru tapi og Andri náði ekki að mæta pabba Úr leik þrátt fyrir sjö mörk Einars Braga Gísli markahæstur og Bjarki fagnaði stórsigri Nýr styrktaraðili dönsku úrvalsdeildarinnar í handbolta umdeildur Arnór Snær: „Þvílíka veislan“ FH þurfti að þola annan skell í Portúgal Valur - Tatabánya 38-34 | Annar frábær Evrópusigur Sá besti óvænt orðaður við brottför „Það rignir ekkert inn peningum“ Mál á borði lögreglu eftir leik hjá liði Donna Benedikt birtir mynd frá slysstað Sjá meira