Fjölnir níunda liðið sem sekkur í Síkinu í vetur Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 12. febrúar 2015 20:42 Darrel Lewis. Vísir/Valli
Tindastóll fagnaði sínum níunda heimasigri í röð í Dominos-deild karla í körfubolta í kvöld þegar liðið vann öruggan tuttugu stiga sigur í nýliðaslag á móti Fjölni, 103-83. Tindastóll hefur unnið alla níu deildarleiki sína í Síkinu á Sauðárkróki á leiktíðinni og marga þeirra með sömu yfirburðum og í kvöld. Tindastólsliðið er því áfram í mjög góðum málum í öðru sæti deildarinnar en Fjölnismenn eru á kafi í fallabaráttunni. Darrell og Darrrel átti fínan leik í kvöld, Darrel Lewis var með 23 stig, 7 fráköst iog 5 stoðsendingar og Darrell Flake skoraði 15 stig og tók 11 fráköst. Fyrirliðinn Helgi Rafn Viggósson skoraði 17 stig og tók 11 fráköst, Ingvi Rafn Ingvarsson var með 15 stig og þá skoraði Svavar Birgisson 11 stig. Finnbogi Bjarnason var síðan sjötti leikmaður liðsins sem komst í tíu stigin í kvöld en Pétur Rúnar Birgisson ar síðan með 9 stig og 8 stoðsendingar. Það voru því margir að skila hjá Stólunum í þessum auðvelda sigri. Tindastóll tók völdin strax í byrjun leik, komst í 16-4 og var 29-16 yfir eftir fyrsta leikhlutann. Stólarnir voru síðan 32 stigum yfir í hálfleik, 59-27. Fjölnismenn skoruðu reyndar átta fyrstu stig seinni hálfleiks og svo aftur sjö fyrstu stigin í lokaleikhlutanum en forskot heimamanna var það stórt að sigurinn var aldrei í hættu.Tindastóll-Fjölnir 103-83 (29-16, 30-11, 23-31, 21-25)Tindastóll: Darrel Keith Lewis 23/7 fráköst/5 stoðsendingar, Helgi Rafn Viggósson 17/11 fráköst, Darrell Flake 15/11 fráköst, Ingvi Rafn Ingvarsson 15/4 fráköst, Svavar Atli Birgisson 11, Finnbogi Bjarnason 10, Pétur Rúnar Birgisson 9/4 fráköst/8 stoðsendingar, Helgi Freyr Margeirsson 3.Fjölnir: Jonathan Mitchell 26/7 fráköst, Arnþór Freyr Guðmundsson 14, Danero Thomas 12, Róbert Sigurðsson 11/4 fráköst/6 stoðsendingar, Davíð Ingi Bustion 8/4 fráköst, Sindri Már Kárason 4/5 fráköst, Garðar Sveinbjörnsson 4, Bergþór Ægir Ríkharðsson 2, Hreiðar Bjarki Vilhjálmsson 2.Dómarar: Leifur S. Gardarsson, Einar Þór Skarphéðinsson, Hákon Hjartarson
Dominos-deild karla Mest lesið Sænskur varnarjaxl ólétt og segir að ferlinum sé lokið Fótbolti Lárus Orri: „Breytast í eitthvað allt annað og liggja út um allan völl“ Íslenski boltinn Jón Þór ráðinn til Stjörnunnar Fótbolti Bandaríkin byrja sterkt á heimavelli Fótbolti Fyrri hálfleikur Bandaríkjanna sá besti sem hann hefur séð Fótbolti Segir að það sé bara einn heimsklassaleikmaður í enska landsliðinu Fótbolti Braut nálgunarbann með því að heimsækja kærustu sína Sport Maður dagsins á HM: Ólst upp í Englandi en valdi Bandaríkin Fótbolti Góður sigur Stjörnunnar á meisturunum Fótbolti Ung frjálsíþróttakona lést í fríi með fjölskyldunni Sport Fleiri fréttir Martin nálægt tvennunni en Alba Berlin tapaði fyrsta leiknum Jesús áfram í Stjörnunni Stuðningsmenn Knicks köstuðu eggi í Wembanyama Elvar og félagar fara 2-0 undir heim til Kanaríeyja Baldur tekur eina stærstu stjörnu Stjörnuliðsins yfir á Álftanes Stólarnir ráða Ísak Wíum Ármann fær sæti í Bónus deildinni og framlengir við Jónínu „Heimskasta körfuboltalið í sögu mannkyns“ Söguleg endurkoma Knicks LeBron James um „Geitina“ í NBA: Enginn betri en ég Wembanyama sleppur við refsingu Kolbrún snýr aftur heim og semur við Tindastól Steinar áfram hjá Ármanni Hamar og Þór hætta samstarfi Martin í úrvalsliðinu Martin spilar til úrslita um þýska meistaratitilinn Elvar og félagar lentu í gininu á Börsungum í kvöld „Ég hef alltaf komið sterkari til baka“ „Ég fer í góðu og þeir skilja mína ákvörðun“ KR blæs í herlúðra: Sara Rún og Emma Sóldís í Vesturbæinn Baulað á Trump í New York Spurs minnka muninn í úrslitaeinvíginu Þrefaldur NBA-meistari með Jordan látinn Ekkert teiti því Trump mætir á völlinn Martin á leið í oddaleik Elvar og félagar hentu meisturum Real Madrid úr leik Tryggvi úr leik þrátt fyrir góða frammistöðu Bræðurnir áfram og meistararnir halda þéttum kjarna Dæmdur í lífstíðarbann frá öllum NBA leikjum Stórveldið svaraði fyrir sig á Tenerife Sjá meira