Sverrir Þór: Liðin sem ætla að vinna þurfa alltaf að fara í gegnum KR Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 19. mars 2015 12:30 Sverrir Þór Sverrisson, þjálfari Grindavíkur. Vísir/Ernir
Sverrir Þór Sverrisson og lærisveinar hans í Grindavík fá verðugt verkefni í átta liða úrslitum Dominos-deildar karla í körfubolta en fyrsti leikur liðsins á móti Íslands- og deildarmeisturum KR fer fram í DHL-höllinni í kvöld og verður einnig sýndur beint á Stöð 2 Sport í kvöld. „KR er besta liðið í vetur og við fáum þá bara strax í fyrstu umferð," sagði Sverrir Þór í viðtali við Arnar Björnsson á kynningarfundi fyrir úrslitakeppnina. „Við ætlum okkur stóra hluti eins og á hverju ári í Grindavík þrátt fyrir skrítinn vetur. Við erum búnir að vera miklu sterkari eftir áramót. Við erum alveg klárir á því að ef við spilum góðan leik og það smellur allt hjá okkur þá getum við tekið KR-inga," sagði Sverrir Þór. „Líkurnar hljóta að vera KR-megin ef einhver er að veðja á þetta fyrirfram. Við höfum fulla trú á þessu og þótt að margir hugsi að það sé hrikalega að fá KR strax í fyrstu umferð þá er það bara þannig að liðin sem ætla sér að vinna þetta þurfa alltaf að fara í gegnum KR. Það reynir bara á okkur í fyrstu umferð . Við fáum okkar tækifæri núna og það er bara okkar að nýta það," sagði Sverrir Þór. „Það þurfa fullt að hlutum að smella hjá okkur ef við ætlum að slá út KR," sagði Sverrir Þór en það má sjá allt viðtal Arnars Björnssonar við hann hér fyrir neðan.Leikur KR og Grindavíkur hefst klukkan 19.15 í kvöld og verður sýndur beint á Stöð 2 Sport.
Dominos-deild karla Mest lesið Sænskur varnarjaxl ólétt og segir að ferlinum sé lokið Fótbolti Lárus Orri: „Breytast í eitthvað allt annað og liggja út um allan völl“ Íslenski boltinn Jón Þór ráðinn til Stjörnunnar Fótbolti Bandaríkin byrja sterkt á heimavelli Fótbolti Segir að það sé bara einn heimsklassaleikmaður í enska landsliðinu Fótbolti Fyrri hálfleikur Bandaríkjanna sá besti sem hann hefur séð Fótbolti Braut nálgunarbann með því að heimsækja kærustu sína Sport Maður dagsins á HM: Ólst upp í Englandi en valdi Bandaríkin Fótbolti Ung frjálsíþróttakona lést í fríi með fjölskyldunni Sport Breiðablik - Stjarnan | Ná Blikar að halda toppsætinu? Fótbolti Fleiri fréttir Martin nálægt tvennunni en Alba Berlin tapaði fyrsta leiknum Jesús áfram í Stjörnunni Stuðningsmenn Knicks köstuðu eggi í Wembanyama Elvar og félagar fara 2-0 undir heim til Kanaríeyja Baldur tekur eina stærstu stjörnu Stjörnuliðsins yfir á Álftanes Stólarnir ráða Ísak Wíum Ármann fær sæti í Bónus deildinni og framlengir við Jónínu „Heimskasta körfuboltalið í sögu mannkyns“ Söguleg endurkoma Knicks LeBron James um „Geitina“ í NBA: Enginn betri en ég Wembanyama sleppur við refsingu Kolbrún snýr aftur heim og semur við Tindastól Steinar áfram hjá Ármanni Hamar og Þór hætta samstarfi Martin í úrvalsliðinu Martin spilar til úrslita um þýska meistaratitilinn Elvar og félagar lentu í gininu á Börsungum í kvöld „Ég hef alltaf komið sterkari til baka“ „Ég fer í góðu og þeir skilja mína ákvörðun“ KR blæs í herlúðra: Sara Rún og Emma Sóldís í Vesturbæinn Baulað á Trump í New York Spurs minnka muninn í úrslitaeinvíginu Þrefaldur NBA-meistari með Jordan látinn Ekkert teiti því Trump mætir á völlinn Martin á leið í oddaleik Elvar og félagar hentu meisturum Real Madrid úr leik Tryggvi úr leik þrátt fyrir góða frammistöðu Bræðurnir áfram og meistararnir halda þéttum kjarna Dæmdur í lífstíðarbann frá öllum NBA leikjum Stórveldið svaraði fyrir sig á Tenerife Sjá meira