Lífið

Måns Zelmerlöw fulltrúi Svía í Eurovision

Atli Ísleifsson skrifar
Måns Zelmerlöw er 28 ára frá Lundi á Skáni.
Måns Zelmerlöw er 28 ára frá Lundi á Skáni. Mynd/Wikipedia
Lagið Heroes í flutningi Måns Zelmerlöw verður framlagi Svía í Eurovision sem fram fer í Vínarborg í maí. Zelmerlöw bar höfuð og herðar yfir önnur atriði á úrslitakvöldi Melodifestivalen sem fram fór í kvöld.

Lagið „Heroes“ er samið af þeim Anton Malmberg Hård af Segerstad, Joy Deb og Linnea Deb.

Lagið sigraði með 149 stiga mun sem er sá stærsti í sögu sænsku söngvakeppninnar. Lag ABBA frá árinu 1974, „Waterloo“, átti fyrra metið, 91 stigs munur.

Atkvæði ellefu alþjóðlegra dómnefnda giltu til helminga á móti símakosningu þegar framlag Svía var valið.

Zelmerlöw er 28 ára söngvari frá Lundi sem sló fyrst í gegn í Idol-keppni Svíþjóðar árið 2005. Hann tók þátt í undankeppni Melodifestivalen árið 2007 og 2009.

Árin 2011 til 2013 var hann kynnir í einum vinsælasta sjónvarpþætti Svíþjóðar, Allsång på Skansen, þar sem frægir söngvarar syngja lögin sín og fara fyrir hópsöng á Skansen í Stokkhólmi. Þátturinn er á dagskrá sænska ríkissjónvarpsins á þriðjudagskvöldum yfir sumartímann.

Á meðal annarra keppenda í kvöld voru Eric Saade sem var fulltrúi Svía í Eurovision árið 2011 þegar hann hafnaði í þriðja sæti með lagið Popular.

Samíski söngvarinn Jon-Henrik Fjällgren lenti í öðru sæti með lagið Jag är fri (Manne Leam Frijje). Söngkonan Mariette lenti í þriðja sæti keppninnar með lagið Don't Stop Believing.

Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.