Snæfellingar kvöddu Pálma með sigri á Grindavík Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 12. mars 2015 20:48 Pálmi Freyr Sigurgeirsson, Vísir/Stefán
Snæfell vann tveggja stiga sigur á Grindavík í lokaumferð Dominos-deildar karla í körfubolta í Stykkishólmi í kvöld, 91-89, en þetta var síðasti leikur Pálma Freys Sigurgeirssonar eftir 19 ára feril. Pálmi Freyr átti heldur betur þátt í sigrinum því auk þess að skora 16 stig í leiknum þá átti hann líka stoðsendinguna á Christopher Woods þegar hann skoraði sigurkörfuna í leiknum. Tapið kemur sér afar illa fyrir Grindavíkurliðið sem var í harðri baráttu um að sleppa við að mæta deildarmeisturum KR í fyrstu umferð úrslitakeppninnar. Christopher Woods skoraði 27 stig fyrir Snæfell og Sigurður Þorvaldsson var með 17 stig. Rodney Alexander skoraði 33 stig og tók 19 fráköst fyrir Grindavíkurliðið en það dugaði ekki. Jón Axel Guðmundsson skoraði 11 af 25 stigum sínum í endurkomu Grindavíkurliðsins í fjórða leikhlutanum en Snæfell náði að hanga á sigrinum. Grindavík var einu stigi yfir eftir fyrsta leikhlutann, 19-18, en frábær annar leikhluti skilaði Snæfellsliðinu ellefu stiga forskoti í hálfleik, 51-40. Snæfellsliðið vann leikhlutann 33-21 þar sem Sigurður Þorvaldsson skoraði tólf stig. Snæfellsliðið skoraði sex af sjö fyrstu stigum seinni hálfleiksins og komst í 57-41. Pálmi Freyr skoraði alls sex stig á fyrstu fjórum mínútum þriðja leikhlutans sem skilaði Snæfellsliðinu sextán stiga forystu, 61-45. Grindavík minnkaði muninn en Snæfell var ellefu stigum yfir, 74-63, fyrir lokaleikhlutann. Grindvíkingum tókst að vinna upp forskotið og jafna metin í 89-89 með tveimur þriggja stiga körfum í röð en Hólmara höfðu tíma til að skora sigurkörfuna og tókst að tryggja sér sigur í síðasta leik liðsins á tímabilinu.
Dominos-deild karla Mest lesið Sænskur varnarjaxl ólétt og segir að ferlinum sé lokið Fótbolti Lárus Orri: „Breytast í eitthvað allt annað og liggja út um allan völl“ Íslenski boltinn Jón Þór ráðinn til Stjörnunnar Fótbolti Bandaríkin byrja sterkt á heimavelli Fótbolti Fyrri hálfleikur Bandaríkjanna sá besti sem hann hefur séð Fótbolti Segir að það sé bara einn heimsklassaleikmaður í enska landsliðinu Fótbolti Braut nálgunarbann með því að heimsækja kærustu sína Sport Maður dagsins á HM: Ólst upp í Englandi en valdi Bandaríkin Fótbolti Góður sigur Stjörnunnar á meisturunum Fótbolti Ung frjálsíþróttakona lést í fríi með fjölskyldunni Sport Fleiri fréttir Martin nálægt tvennunni en Alba Berlin tapaði fyrsta leiknum Jesús áfram í Stjörnunni Stuðningsmenn Knicks köstuðu eggi í Wembanyama Elvar og félagar fara 2-0 undir heim til Kanaríeyja Baldur tekur eina stærstu stjörnu Stjörnuliðsins yfir á Álftanes Stólarnir ráða Ísak Wíum Ármann fær sæti í Bónus deildinni og framlengir við Jónínu „Heimskasta körfuboltalið í sögu mannkyns“ Söguleg endurkoma Knicks LeBron James um „Geitina“ í NBA: Enginn betri en ég Wembanyama sleppur við refsingu Kolbrún snýr aftur heim og semur við Tindastól Steinar áfram hjá Ármanni Hamar og Þór hætta samstarfi Martin í úrvalsliðinu Martin spilar til úrslita um þýska meistaratitilinn Elvar og félagar lentu í gininu á Börsungum í kvöld „Ég hef alltaf komið sterkari til baka“ „Ég fer í góðu og þeir skilja mína ákvörðun“ KR blæs í herlúðra: Sara Rún og Emma Sóldís í Vesturbæinn Baulað á Trump í New York Spurs minnka muninn í úrslitaeinvíginu Þrefaldur NBA-meistari með Jordan látinn Ekkert teiti því Trump mætir á völlinn Martin á leið í oddaleik Elvar og félagar hentu meisturum Real Madrid úr leik Tryggvi úr leik þrátt fyrir góða frammistöðu Bræðurnir áfram og meistararnir halda þéttum kjarna Dæmdur í lífstíðarbann frá öllum NBA leikjum Stórveldið svaraði fyrir sig á Tenerife Sjá meira