Lífið

Þáttum úr nýrri þáttaröð Game of Thrones lekið á netið

Aðalsteinn Kjartansson skrifar
Fyrsti þátturinn frumsýndur í kvöld en fyrstu fjórir þættirnir eru komnir á sjóræingjasíður.
Fyrsti þátturinn frumsýndur í kvöld en fyrstu fjórir þættirnir eru komnir á sjóræingjasíður. Vísir/HBO
Fyrstu fjórum þáttunum í nýrri þáttaröð af Game of Thrones hefur verið lekið á netið. Þáttunum var lekið í gær en fyrsti þáttur í nýrri þáttaröð verður frumsýndur í kvöld.

Samkvæmt Mashable virðist vera sem þættirnir hafi verið afritaðir af DVD diskum sem blaðamönnum voru afhentir til umfjöllunar. Öll eintökin voru með stafrænu vatnsmerki en það hefur verið falið í þáttunum sem láku.

Þátturinn verður sýndur á Stöð 2 á sama tíma og hann er sýndur á HBO í Bandaríkjunum. Fyrsti þátturinn verður á dagskrá klukkan eitt eftir miðnætti í kvöld.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.