Svona var stemningin í Ljónagryfjunni þegar Bonneau negldi þristinn | Myndband Tómas Þór Þórðarson skrifar 10. apríl 2015 10:30 Stefan Bonneau tryggði Njarðvík sigurinn í gær. vísir/stefán
Bandaríkjamaðurinn Stefan Bonneau tryggði Njarðvík sigur á KR, 85-84, með magnaðri þriggja stiga körfu þegar örfáar sekúndur voru til leiksloka í annarri viðureign liðanna í undanúrslitum Dominos-deildarinnar í gærkvöldi. Hér að neðan má sjá sigurþristinn sem og lokasókn KR þar sem Michael Craion fór illa að ráði sínu. Bonneau, sem átti erfitt uppdráttar í fyrsta leiknum í Vesturbænum, skoraði 34 stig, tók átta fráköst og gaf fimm stoðsendingar. „Alla stráka dreymir um að taka svona skot. Sigurskotið á lokasekúndunum. Þetta er það sem við æfum allir sem smástrákar,“ sagði sigurreifur Bonneau við Vísi eftir leikinn í gærkvöldi.Ljónagryfjan var pakkfull í gærkvöldi og stemningin frábær eins og hún hefur verið í úrslitakeppninni. Þeir stuðningsmenn Njarðvíkur sem höfðu áfram trú á sínu liði eftir skellinn í DHL-höllinni fengu flottan leik og geggjaðan endi. Allt ætlaði um koll að keyra í stúkunni þegar Bonneau negldi þristinn eins og búast mátti við, en stemninguna má sjá í skemmtilegu myndbandi hér að neðan. Það var hann Valli á Ungó í Reykjanesbæ sem fangaði stemninguna í gærkvöldi en myndbandið er birt með góðfúslegu leyfi hans. Liðin mætast þriðja sinni á sunnudagskvöldið í DHL-höllinni, en sá leikur verður í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport HD.Tarf ekki ad segja meira !!!!!!!!!Helllfu.......yaasaassPosted by Valli Gooner on Thursday, April 9, 2015
Dominos-deild karla Mest lesið Sænskur varnarjaxl ólétt og segir að ferlinum sé lokið Fótbolti Lárus Orri: „Breytast í eitthvað allt annað og liggja út um allan völl“ Íslenski boltinn Jón Þór ráðinn til Stjörnunnar Fótbolti Fyrri hálfleikur Bandaríkjanna sá besti sem hann hefur séð Fótbolti Bandaríkin byrja sterkt á heimavelli Fótbolti Segir að það sé bara einn heimsklassaleikmaður í enska landsliðinu Fótbolti Michael Oliver getur ekki dæmt fyrsta leikinn sinn á HM Fótbolti Viktor Gísli í úrslitaleik Meistaradeildarinnar Handbolti Maður dagsins á HM: Ólst upp í Englandi en valdi Bandaríkin Fótbolti Braut nálgunarbann með því að heimsækja kærustu sína Sport Fleiri fréttir Elvari og félögum sópað í sumarfrí Martin nálægt tvennunni en Alba Berlin tapaði fyrsta leiknum Jesús áfram í Stjörnunni Stuðningsmenn Knicks köstuðu eggi í Wembanyama Elvar og félagar fara 2-0 undir heim til Kanaríeyja Baldur tekur eina stærstu stjörnu Stjörnuliðsins yfir á Álftanes Stólarnir ráða Ísak Wíum Ármann fær sæti í Bónus deildinni og framlengir við Jónínu „Heimskasta körfuboltalið í sögu mannkyns“ Söguleg endurkoma Knicks LeBron James um „Geitina“ í NBA: Enginn betri en ég Wembanyama sleppur við refsingu Kolbrún snýr aftur heim og semur við Tindastól Steinar áfram hjá Ármanni Hamar og Þór hætta samstarfi Martin í úrvalsliðinu Martin spilar til úrslita um þýska meistaratitilinn Elvar og félagar lentu í gininu á Börsungum í kvöld „Ég hef alltaf komið sterkari til baka“ „Ég fer í góðu og þeir skilja mína ákvörðun“ KR blæs í herlúðra: Sara Rún og Emma Sóldís í Vesturbæinn Baulað á Trump í New York Spurs minnka muninn í úrslitaeinvíginu Þrefaldur NBA-meistari með Jordan látinn Ekkert teiti því Trump mætir á völlinn Martin á leið í oddaleik Elvar og félagar hentu meisturum Real Madrid úr leik Tryggvi úr leik þrátt fyrir góða frammistöðu Bræðurnir áfram og meistararnir halda þéttum kjarna Dæmdur í lífstíðarbann frá öllum NBA leikjum Sjá meira