Morkunas fór illa með frændurna frá Akureyri Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 22. apríl 2015 12:30 Vísir/Valli/Stefán
Óhætt er að fullyrða að Litháinn Giedrius Morkunas hafi verið frábær í marki Haukanna í undanúrslitarimmu liðsins gegn deildarmeisturum Vals í úrslitakeppni Olísdeildar karla. Morkunas varði alls 56 af 113 skotum Vals í rimmunni og var því með nánast 50 prósenta hlutfallsmarkvörslu í leikjunum þremur - sem er magnað afrek. Sóknarleikur Vals virtist aldrei finna almennilega leið fram hjá vörn Haukanna og Morkunas í markinu en það var sérstaklega áberandi hversu illa skyttur Valsmanna náðu sér á strik í leikjunum. Frændurnir frá Akureyri, Guðmundur Hólmar Helgason og Geir Guðmundsson, skoruðu samtals níu mörk Vals í 43 skotum í rimmunni. Morkunas varði tíu skot frá hvorum þeirra. Guðmundur Hólmar nýtti aðeins tvö af 21 skoti sínu í rimmunni og Geir níu af 22. Þess má svo geta til samanburðar að Árni Steinn Steinþórsson, sem hefur verið lykilmaður í uppgangi Hauka eftir áramót og sérstaklega í úrslitakeppninni, skoraði fimmtán mörk í 25 skotum gegn Val.Frammistaða Giedrius Morkunas:Samtals: 56 varin skot / 113 fengin á sig = 49,6% hlutfallsmarkvarsla 1. leikur: 13/2 = 41% 2. leikur: 22/41 = 54% 3. leikur: 21/40 = 53% Varin skot frá Geir: 10 Varin skot frá Guðmundi Hólmari: 10Skotnýting Geirs og Guðmundar: 9 mörk í 43 skotum = 21% skotnýtingSkotnýting annarra leikmanna Vals: 56 mörk í 110 skotum = 51% skotnýting
Olís-deild karla Mest lesið Utan vallar: Sjúklingurinn er að deyja Enski boltinn Belgísku bakgarðskóngarnir með lygilegt heimsmet Sport Belgarnir láta Elísabetu fara Fótbolti Extraleikarnir: Nablinn og Tommi reyna fyrir sér í ballet Körfubolti Þurftu að biðja Infantino afsökunar Fótbolti Hverjir eru þessir 19 Íslendingar sem hafa spilað í Meistaradeildinni? Fótbolti Þurfti að spretta í markið eftir 102 klukkutíma á hlaupum Sport Sjáðu jöfnunarmark Rice og stórtap Manchester United Fótbolti „Fjandinn hafi það, þetta versnar varla úr þessu“ Körfubolti Svona missti Aron markið sögulega Íslenski boltinn Fleiri fréttir Þórsarar unnu í fyrsta sinn síðan um miðjan september Topplið Hauka burstaði Fram í Lambhagahöllinni Fyrsta tap Kristianstad kom í Íslendingaslag Viktor Gísli öflugur í sigri Barcelona Gísli og Ómar drógu vagninn í sigri Magdeburgar Elvar markahæstur en Donni fagnaði sigri Reynir markahæstur í sigri Melsungen Kærkominn sigur KA/Þór FH gekk frá Fram í seinni hálfleik Sandra með tíu í sætum sigri á Fram en Haukar halda flugi Níu mörk Jóhannesar ekki nóg Finnur til með Arnari Sætur sigur Selfoss og Gunnar með fullkominn leik KA-menn brotlentu í Garðabæ Tólf marka Dagur kom ÍBV á rétta braut „Ekkert sem ég missti svefn yfir“ Snorri Steinn valdi tuttugu leikmenn fyrir komandi verkefni Átján ára með fjórtán mörk og Haukar fljúga áfram Afturelding í annað sæti Stórleikur Hauks í sáru tapi og Andri náði ekki að mæta pabba Úr leik þrátt fyrir sjö mörk Einars Braga Gísli markahæstur og Bjarki fagnaði stórsigri Nýr styrktaraðili dönsku úrvalsdeildarinnar í handbolta umdeildur Arnór Snær: „Þvílíka veislan“ FH þurfti að þola annan skell í Portúgal Valur - Tatabánya 38-34 | Annar frábær Evrópusigur Sá besti óvænt orðaður við brottför „Það rignir ekkert inn peningum“ Mál á borði lögreglu eftir leik hjá liði Donna Benedikt birtir mynd frá slysstað Sjá meira