Almenningur sjaldan haft það eins skítt Jakob Bjarnar skrifar 28. maí 2015 13:35 Gunnar Smári veltir því fyrir sér hvað þeim Sigmundi Davíð og Bjarna gangi til með að vilja halda því fram að kaupmáttur almennings hafi aukist? Það fái ekki staðist.
Gunnar Smári Egilsson, blaðamaður, heldur því fram í ítarlegri grein að ráðmenn þjóðarinnar, þeir Sigmundur Davíð Gunnlaugsson forsætisráðherra og Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra, fari með rangt mál þegar þeir vilja halda því fram að almenningur hafi sjaldan eða aldrei haft það eins gott. „Það má endalaust undra sig á fífldirfsku forsætis- og fjármálaráðherra, sem hafa undanfarnar vikur reynt að sannfæra Íslendinga um að þeir hafi aldrei haft það eins gott. Þegar fólk brást klumsa við þessum yfirlýsingum útskýrði forsætisráðherra það með því að rof hefði orðið milli raunveruleika og skynjunar meðal almennings.“210 þúsund króna lægri ráðstöfunartekjur Svo hefst grein Gunnars Smára, sem er talnaglöggur vel, en hann reiknar það út miðað við útgefnar tölur Hagstofunnar að þriðjungur ráðstöfunartekna almennings sé horfinn frá hruni. „Heildartekjur almennings (lífeyrir, fjármagnstekjur og allar aðrar tekjur) voru 513 þúsund krónur að meðaltali 2013. Það er tæplega 223 þúsund krónum lægri heildartekjur en almenningur hafði að meðaltali 2007 — jafngildir 30 prósent lækkun heildartekna.” Höfundur veltir því fyrir sér hvað þeim Sigmundi Davíð og Bjarna gangi til með að vilja halda því fram að kaupmáttur almennings hafi aukist? Það fái ekki staðist. Gunnar Smári segir atvinnutekjur hafa lækkað um 19,5 prósent og heildartekjur um 30 prósent. En best sé, í þessu samhengi, að miða við ráðstöfunartekjur: „Best er þó að miða við ráðstöfunartekjur. Samkvæmt Hagstofunni voru ráðstöfunartekjur almennings (tekjur eftir skatta og skyldur) að meðaltali tæplega 397 þúsund krónur árið 2013. Það er tæplega 210 þúsund krónum lægri upphæð en ráðstöfunartekjurnar voru árið 2007 eða um 34,5 prósent lægri. Þetta er áfallið sem fólk finnur fyrir. Það hefur misst þriðjunginn af ráðstöfunartekjum sínum. Skiljanlega svíður það.”Útflutningsfyrirtækin græða á Hruninu Samantekt Gunnars Smára er ítarleg og þar kemur meðal annars fram að atvinnutekjur almennings samkvæmt skattaframtölum voru á föstu verðlagi að meðaltali nálægt því sem þær voru 1999 og 2000. Heildarlaun í líkingu við það sem var 2001 og megi segja að Hrunið hafi kastað almenningi aftur til aldamóta. Hins vegar hafa fyrirtækin, einkum útflutningsfyrirtækin, ekki borið neinar byrgðar heldur hafi þau þvert á móti grætt á Hruninu. „Tekjur þeirra jukust vegna gengisfellingar íslensku krónunnar og kostnaður þeirra lækkaðu vegna kjaraskerðingar almennings. Upphæðirnar sem fluttar voru með þessum hætti frá almenningi til fyrirtækja eru svo gríðar háar að þær nálgast tilflutning verðmæta á áttunda áratugnum þegar hundruðir milljarðar voru teknir frá sparifjáreigendum, eldra fólki fyrst og fremst, og gefnir fyrirtækjum í formi neikvæðra vaxta í bankakerfinu.“Ekki í neinni snertingu við kjör almennings Greininni lýkur með því að höfundur víkur að persónulegum aðstæðum þeirra Sigmundar Davíðs og Bjarna. Þeir séu sterkefnaðir sjálfir og þekki ekki áhyggjur af afkomu sinni, eiga alltaf nóg fyrir reikningunum og nógan pening út mánuðinn. „Þetta gerir þá í sjálfu sér ekki að verri mönnum. Góð fjárhagsleg staða útilokar ekki að fólk geti skilið lífskjör annarra og verið raunverulegir þátttakendur í samfélaginu. Það hefur hins vegar komið í ljós í yfirstandandi kjaradeilum að forsætis- og fjármálaráðherra annað hvort geta ekki eða vilja ekki skilja kjör almennings. Það er æði háskaleg staða; að mest völd í landinu hafi verið færð í hendur manna sem annað hvort geta ekki eða vilja ekki skynja þann veruleika sem fólk almennt býr við.“
Verkfall 2016 Mest lesið Hafi loks slíðrað sverðin Innlent Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Innlent Starfsmenn séu eltir heim og lífi þeirra ógnað Innlent „Það er bara mjög sorglegt“ Innlent Operation Matrix: Fjölmörg burðardýr fluttu inn minnst 100 kíló af kókaíni Fréttir Kvikumagnið undir Svartsengi orðið mun meira en áður Innlent Stjórnendur Sorpu slegnir Innlent Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Innlent Samþykkja sölu á hundruðum Patriot-flauga Erlent Ráðherrar einnig látið sig vanta í atkvæðagreiðslur Innlent Fleiri fréttir Nota allar leiðir til þess að smygla fíkniefnum Samþykkja tillögu Ástráðs Ráðherrar einnig látið sig vanta í atkvæðagreiðslur Kvikumagnið undir Svartsengi orðið mun meira en áður Frestur til miðnættis að taka afstöðu til tillögu ríkissáttasemjara Umferðarslys í Bolungarvík Kennarar boðaðir á fund hjá sáttasemjara „Miður að við séum komin á þennan stað“ „Það er bara mjög sorglegt“ Skringileg túlkun á regnbogafánanum og aukið eftirlit í Grindavík Hafi loks slíðrað sverðin Ökumenn beðnir um að aka sérstaklega varlega Starfsmenn séu eltir heim og lífi þeirra ógnað Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Ósáttir sendlar bjóða Wolt fram aðstoð sína Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Stjórnendur Sorpu slegnir Landsbankamálið gæti kostað ríkið hundruð milljóna Veltir fyrir sér hvort Viðskiptaráð haldi að Íslendingar séu hálfvitar Heimir Már biðst afsökunar á orðum sínum Wolt kærir hótanir til lögreglu Boðið upp á bólusetningar í apótekum í fyrsta sinn „Mínar skoðanir skipta í þessu máli litlu“ Höskuldur tapaði aftur fyrir Magnúsi „Hafðu kjarnorkuvopnin tilbúin“ Vill loka Stuðlum og opna nýtt úrræði Telur ekki að verið sé að víkja frá gildandi samningi Ætla að brenna rusl og skapa orku Kjarasamningar kennara í uppnámi Bein útsending: Peptíð, töfralausn eða heilsufarsleg áhætta? Sjá meira