Kartöflubollur með svínakjöti og ljúffeng ostakaka með súkkulaðisósu
Pólskar kartöflubollur með svínakjöti
700 g svínakjöt t.d. grísahnakki (kryddaður og fulleldaður)
1 laukur
salt og pipar
marjoram krydd
3 egg
Deig:
1 kg kartöflur, soðnar
salt
kartöflumjöl
Það sem fer yfir réttinn
Beikon, best ef það er reykt
1 laukur
olía
Aðferð: Kryddið svínakjötið og steikið í ofni í 1 – 1,5 klst. Skrælið kartöflur og sjóðið í vel söltu vatni, þegar kartöflurnar eru tilbúnar er vatninu hellt af og þær látnar kólna. Maukið kartöflur og svínakjötið í hakkavél. Laukurinn er skorinn í litla bita og bætið honum saman við kjötið, næst bætið þið eggjum við og kryddið til með salti, pipar og marjoram(meiran). Blandið vel saman.
Úr kartöflumaukinu er búin til ein stór kúla og henni skipt í 4 hluta. 1/4 hluti er tekinn upp og þá er fyllt "gatið" með kartöflumjöli, stráð salti örlítið yfir og hnoðað þangað til blandan er slétt og heil.
Þá eru bollurnar búnar til: kartöfludeigið tekið sirka 2-2 1/2 msk á hendina og sett er kjötkúla í miðjuna og því er lokað og mótað í bollu.
Soðið er vatn í stórum potti. Þegar vatnið nær suðu eru bollurnar settar varlega útí og soðnar í 10 mín.
Beikon og laukur eru skorin í teninga og steikt upp úr olíu þangað til það verður gyllt og stökkt. Það er svo sett yfir þegar bollurnar eru bornar fram.
Surówka.- súrkálssalat
3/4 pakki súrkál
1 epli
1/4 laukur
1 gulrót
2 msk ólífuolía
salt og pipar
Fersk steinselja
Aðferð: Skerið epli og lauk í fíngerða litla bita, raspið gulrótina frekar gróft. Súrkálið sett í skál og allt blandað saman. Hellið olíu yfir og kryddið til með salti og pipar.
Pólsk terta með súkkulaðisósu
1 kg kvarg eða skyr
200 g smjör, við stofuhita
4 egg, aðskilin
250 g sykur
1 tsk vanilludropar
2 msk semolina
2 msk kartöflumjöl
1 tsk lyftiduft
Aðferð: Hitið ofninn í 170°C. Hrærið saman sykur og smjör þar til blandan verður létt og ljós, bætið því næst skyrinu smám saman við ásamt vanillu. Blandið eggjarauðum við, einni í einu og síðan þurrefnum saman við. Hrærið öllu saman og hellið í smurt form ( 23cm í þvermál) og bakið við 170°C í 60 mínútur.
Leyfið kökunni að kólna í ofninum og berið hana fram með súkkulaðisósu.
Súkkulaðisósa
75 g súkkulaði
75 ml rjómi
Aðferð: Hitið rjóma að suðu og saxið súkkulaðið og leyfið súkkulaðinu að bráðna í rólegheitum. Hrærið í sósunni og berið strax fram
Njótið vel.