Westwood fékk með sér í lið um sextíu tónlistarmenn, leikara, fyrirsætur og fólk úr tískuheiminum til þess að sitja fyrir á myndum til styrktar málefninu, meðal annars Kate Moss, Rita Ora, Jessie J, Tom Hiddleston og Sir Ian McKellan.
Á myndunum eru allir klæddir í boli með áletruninni „Save The Arctic“ og var það ljósmyndarinn Andy Gotts sem tók þær á 18 mánaða tímabilli.
Markmiðið með mótmælunum er að safna um 10 milljón undirskriftum svo ekki verði af boruninni.
Myndirnar eru hengdar upp í neðanjarðarlestargöngum í Waterloo í London, en Westwood segir það vera vegna þess að þar séu höfuðstöðvar Shell.




Komdu í hóp frábærra áskrifenda hér.
Fylgstu með Glamour á Instagram og Facebook.