Bestu kanilsnúðarnir sigga dögg skrifar 24. ágúst 2015 15:00 Vísir/Gulur,rauður,grænn og salt
Berglind Guðmundsdóttir heldur úti hinu girnilega matarbloggi Gulur, rauður, grænn og salt.Heimsins bestu kanilsnúðarSnúðar1 kg hveiti5 dl mjólk, fingurvolg½ bréf þurrger125 g sykur1 tsk. kardimommudropar (eða vanilludropar)½ tsk. salt1 egg150 g smjör, skorið í litla teningaFylling125 g smjör, mjúkt2 msk. kanill6 msk. sykur1 egg og perlusykur til skrautsAðferð: Blandið mjólk og geri saman í skál. Hellið öllum hráefnunum fyrir bolludeigið í skál, að smjörinu undanskildu, og hrærið. Bætið smjörinu saman við og hnoðið því vel saman við í allt að 10 mínútur. Setjið plastfilmu yfir skálina og látið deigið hefast í a.m.k. klukkustund. Skiptið deiginu í tvennt og fletjið út í um 60 cm breiðan ferning. Blandið kanil og sykri saman í skál. Smyrjið helmingnum af smjörinu á deigið og stráið síðan helmingnum af kanilsykrinum yfir smjörið. Leggið deigið saman og skerið í 12-14 lengjur. Snúið upp á lengjurnar og vefjið þær saman í snúð, annar endinn upp og hinn niður (engar áhyggjur, þið fattið þetta). Gerið eins með hinn helminginn af deiginu. Ef þið viljið getið þið að sjálfsögðu gert snúðana á hinn venjubundna máta, en þessir líta bara svo vel út og gaman að prufa eitthvað nýtt. Látið snúðana hefast í um hálftíma. Penslið með léttþeyttu eggi og stráið perlusykri yfir. Setjið inn í 225°C heitan ofn í um 10-12 mínútur eða þar til þeir eru orðnir gylltir.
Brauð Kökur og tertur Uppskriftir Mest lesið Stjörnulífið: Skúli og Gríma orðin hjón Lífið „Ég hef verið mikill kvíðasjúklingur alveg síðan ég var barn“ Lífið „Maður getur þakkað íslenskum bókmenntum fyrir H.C. Andersen“ Lífið Terence Stamp látinn Bíó og sjónvarp Eldri menn hlógu þegar hún sótti um vinnu Lífið Maðurinn sem Pink Floyd kveikti í er látinn Lífið Annie Mist á von á þriðja barninu Lífið Ljósbrot tilnefnd til Kvikmyndaverðlauna Norðurlandaráðs Menning Sannfærð um að hún myndi aldrei geta átt gott líf Lífið Breyta merki Eurovision Tíska og hönnun Fleiri fréttir Ungt fólk setur vínbændur í erfiða stöðu Sjá meira