Bjarni gæti snúið aftur til ÍBV Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 5. október 2015 18:59 Bjarni gerði frábæra hluti hjá ÍBV undir lok síðustu aldar. vísir/andri marinó
Bjarni Jóhannsson er einn þeirra sem kemur til greina sem næsti þjálfari ÍBV. Þetta staðfesti Ingi Sigurðsson, gjaldkeri knattspyrnudeildar ÍBV, í samtali við Vísi í kvöld. ÍBV er í þjálfaraleit eftir að Ásmundur Arnarsson gaf félaginu afsvar en hann stýrði því seinni hluta tímabilsins í ár. Þá er ljóst að Jóhannes Harðarson mun ekki snúa aftur til starfa hjá félaginu vegna persónulegra ástæðna. Jóhannes var ráðinn þjálfari ÍBV fyrir tímabilið en hætti um mitt sumar að eigin ósk. Stjórn ÍBV er með nokkra menn á blaði og að sögn Inga er Bjarni einn af þeim. Samkvæmt heimildum Vísis var Bjarni staddur í Eyjum í dag og því virðast viðræður við hann komnar eitthvað á veg. Ingi segir Eyjamenn ætli að gefa sér nokkra daga til að fara yfir þjálfaramálin en von er á frekari fréttum af þeim síðar í vikunni. Bjarni þekkir vel til í Eyjum en hann stýrði ÍBV með góðum árangri á árunum 1997-1999. Undir hans stjórn varð ÍBV tvívegis Íslandsmeistari og einu sinni bikarmeistari. Bjarni er einn reyndasti þjálfari landsins en hann var síðast við stjórnvölinn hjá 1. deildarliði KA en hann hætti hjá liðinu um mitt sumar.
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Þrír af Strákunum okkar í upptalningu á þeim bestu fyrir EM Handbolti Liverpool áfram í bikarnum og mætir Brighton í næstu umferð Enski boltinn Litla liðið í París sló út stórveldi PSG Fótbolti KR ekki í teljandi vandræðum með að tryggja sig í undanúrslit Körfubolti „Eftir síðasta mót sögðu þeir bara strax að þeir vildu fá Ísland“ Handbolti Alonso látinn fara frá Real Madrid Fótbolti Meistaraþjálfari danska landsliðsins segist hafa breytt um stíl Handbolti Þegar Dagur féll á lyfjaprófi: „Var með magasár í hálft ár“ Handbolti Bruno Fernandes hakkaður í gærkvöldi Enski boltinn Velur Tottenham fram yfir Aston Villa Enski boltinn Fleiri fréttir Kristín Dís áfram í herbúðum Blika Miðbær Reykjavíkur er Íslandsmeistari Snýr aftur til Íslands og tekur við ÍBV Róbert með þrennu í sigri KR Fram lagði Leiknismenn Landsliðsbræður Palestínu sameinast í Keflavík Bikarhetjan til KA Þrótti berst mikill liðsstyrkur úr Keflavík Jón Guðni aðstoðar Ólaf Inga Blikarnir eru búnir að missa 34 mörk og 25 stoðsendingar Birta eltir ástina og semur við Genoa Júlíus Mar seldur til Kristiansund Bæði Blikaliðin fá sánuklefa fyrir komandi tímabil Feginn að vera fluttur heim úr fátækrahverfinu í Kína Svekktur að fá ekki leyfi til að taka við ÍBV Alfreð hættur hjá Breiðabliki Skipulagsbreytingar á skrifstofu KSÍ Nýliðarnir fá bandarískan markvörð Júlíus sagður á förum frá KR til Noregs Vestri opnar knattspyrnuakademíu í Senegal Valur fær Dana til að fullmóta teymi sín Ingimar Stöle semur við Val Adda verður hægri hönd Ian Jeffs í sumar „Mér var bara tjáð að þeir ætluðu að leita eitthvað annað“ Enn kvarnast úr liði Blika Leið Víkings að titlinum rifjuð upp í kvöld Þjálfar 2. flokk samhliða því að spila fyrir KR Færeysk landsliðskona til liðs við ÍBV Býst ekki við að spila aftur fyrir landsliðið Kynntu Sigurð á slaginu sex á aðfangadag Sjá meira