Skammtastökk til betrunar Kjartan Hreinn Njálsson skrifar 18. október 2015 15:00 Google og NASA gera nú tilraunir með skammatölvuna D-WAVE.
Þrátt fyrir að vera frumbyggi á norðurslóðum hefur undirritaður aldrei tekið skammdegið í sátt. Það er ónáttúra í möndulhalla Jarðar. Skortur á samhverfu í valsi reikistjörnu og sólstjörnu. Segjum sem svo að höfundur freisti þess að leiðrétta þessa augljósu villu í náttúru alheimsins og eyða breytum sem eru orsökin fyrir öxulhalla reikistjarna svo að allir geti nú notið samhverfunnar. Engu verður breytt úr þessu en mögulega getur hliðarsjálf mitt notið þessa í alheimshermi. Í alheiminum er að finna á bilinu 1078 til 1082 atóm. Þar sem undirrituðum er umhugað um verndun regnskóganna og blygðunarkennd fólksins í umbrotinu þá verða þessar tölur ekki birtar í heild sinni. Núllin eru allmörg. Það þarf verulega reiknigetu til að hrinda verkefninu í framkvæmd. Lausnin felst í furðulegum, skammtafræðilegum eiginleikum frumeinda, rafeinda og fleiri einda sem geta verið í margs konar ástandi hverju sinni. Á meðan venjulegar tölvur nota tvenndarkerfi, 1 eða 0, og agnarsmáa smára sem annaðhvort eru virkir eða óvirkir, til að tákna og merkja gögn þá notar skammtatölvan skammtabita. Eitt bæti í borðtölvunni samanstendur af átta bitum (fjórar mögulegar útfærslur 1 og 0). Skammtabiti getur táknað það sama, og ástand þar sem biti er í hvoru gildi fyrir sig (1, 0 og ?). Þannig þarf skammtatölvan ekki að reikna sig í gegnum allar fjórar útfærslur 1 og 0 í leit að réttu svari eins og borðtölvan. Hún gerir það samstundis. Með auknum fjölda bæta verður veldisvöxtur og viti menn, skammtatölva með 300 skammtabæti gæti framkvæmt fleiri útreikninga á augnabliki en það eru atóm í alheiminum.Flækjustig í öðru veldi Ruglingslegt? Örvæntið ekki. Faðir skammtatölvunnar var kvennabósinn og bongótrommuleikarinn Richard Feynman. Hann var einnig einn áhrifamesti eðlisfræðingur allra tíma, handhafi Nóbelsverðlauna í eðlisfræði og samstarfsmaður Roberts Oppenheimer í Manhattan-verkefninu. Feynman var snillingur en þó samúðarfullur í garð þeirra sem skildu hvorki upp né niður í skammtafræðinni. „Ef þú heldur að þú skiljir skammtafræði, þá skilurðu ekki skammtafræði,“ sagði Feynman. Feynman var sannfærður um að ómögulegt væri að líkja eftir skammtafræðilegum kerfum (náttúrunni) í hefðbundnum tölvum. Hann þróaði því aðferðafræði nýrrar tölvu sem byggir á sjálfum lögmálum náttúrunnar.Viðar Guðmundsson, prófessor í eðlisfræði við Háskóla Íslands.Skammtabestun Í dag, áratugum eftir að Feynman kynnti hugmyndir sínar, hafa stór skref verið tekin í átt að nothæfum skammtatölvum. Viðar Guðmundsson, prófessor í eðlisfræði við Háskóla Íslands, segir skammtatölvuna vera spennandi hugmynd en þó gríðarlega flókna í útfærslu. „Við sjáum í líkanagerðinni að skammtatölvan myndi færa okkur óhemju afl. Við erum líka meðvitaðir um að þetta gerist ekki strax,“ segir Viðar. „Reikningar, sem taka oft nokkrar vikur á fjölmörgum tölvum og þúsundum kjarna, gætu tekið örskotsstundu í skammtatölvu.“ Dagleg tölvunotkun okkar mun taka litlum breytingum með innreið skammtatölvunnar. Frekar mun hún boða byltingu á æðri sviðum tölvunarfræðinnar, þar á meðal í gervigreind. Einnig í þróun lyfja, líkanagerð loftslagsvísindamanna og jafnvel í leitinni að framandi lífi, svo eitthvað sé nefnt. Þetta eru svið sem einkennast af stórkostlegu flækjustigi. Skammtatölvan boðar bestun verkferla á nær öllum sviðum mannlegra athafna.Verkfæri komandi kynslóða Viðar bendir á að áratugir muni líða áður en helstu þröskuldar verða yfirstignir í þróun skammtatölvunnar. Engu að síður hafa miklar framfarir átt sér stað undanfarið. Ástralskir vísindamenn tilkynntu á dögunum að þeim hefði tekist að smíða rökhlið skammtatölvu í silíkonkristal, sem er sama efni og tölvuflögur eru almennt úr. Hingað til hefur þurft fágæt efni til þess. Púsluspil skammtatölvunnar smellur saman, hægt og rólega. Viðar bendir á að enn á eftir að útfæra inn- og útlestur slíkrar tölvu. „Það gæti verið þúsund sinnum erfiðara vandamál,“ segir hann. „En á sama tíma get ég sagt að fólk sem er nær þeim hluta er snýr að vélbúnaðinum segir, kannski í hroka, að þetta séu nú fyrst og fremst verkfræðilegar spurningar, ekki fræðilegar.“ Viðar, sem alla jafna er djúpt sokkinn í útreikninga, á ekki von á að nota skammtatölvu til auðvelda sér verkin í sinni tíð. En það gæti farið svo að nemendur hans við Háskóla Íslands fái tækifæri til þess. „Ég vona það svo sannarlega,“ segir Viðar og hlær.
Mest lesið Ása Steinars vann sigur gegn bandarísku markaðsfyrirtæki Viðskipti erlent „Það er gjá að myndast á leigumarkaðnum“ Viðskipti innlent Skipti í brúnni hjá Indó Viðskipti innlent Auðveldara verði að breyta atvinnuhúsnæði í íbúðir Neytendur Ráðinn framkvæmdastjóri COWI á Íslandi Viðskipti innlent Smári Rúnar ráðinn fjármálastjóri Viðskipti innlent 30 ár í Frakklandi: „Á Íslandi virðist fólk keyra sig mjög mikið út“ Atvinnulíf Viðar nýr sölustjóri Wisefish Viðskipti innlent Questhjónin: „Sterkbyggðustu húsin voru barirnir og vændishúsin“ Atvinnulíf Erlend gagnaver sögð skila litlu í þjóðarbúið Viðskipti erlent Fleiri fréttir Ása Steinars vann sigur gegn bandarísku markaðsfyrirtæki Erlend gagnaver sögð skila litlu í þjóðarbúið Bobbingastaður í bobba Ofurstinn flytur til Texas Hóta því að kæra forsetann fyrir embættisglöp vegna rafmyntabrasks Rafmyntarforstjóri játar sig sekan um að féfletta viðskiptavini Musk og félagar gerðu 97,4 milljarða dala tilboð í OpenAI Beina spjótum sínum að bandarískum tæknifyrirtækjum Allar auglýsingar Super Bowl á sama stað Sagðir ætla að hafna samruna við Honda Tollastríð hafið: „Ekki gott fyrir Ísland og lífskjör Íslendinga“ Gervigreind fyrir klink veldur Bandaríkjamönnum hausverk Kínversk kúvending leiddi til hruns vestanhafs Enn deila Musk og Altman MrBeast gerir tilboð í TikTok Eftirmaður Norman yfir LIV-mótaröðinni fundinn Höfða mál gegn Musk vegna kaupanna á Twitter Vilja banna farþegum að fá sér þriðja drykkinn á flugvellinum Meta birtir óumbeðnar gervigreindarmyndir af notendum Instagram Biden stöðvar japanska yfirtöku á US Steel Næstum allir nýir bílar í Noregi rafmagnsbílar Sjá meira