Lífið samstarf

Kolvetnaskert og laktósafrí nýjung

Hleðsla kom fyrst á markað fyrir fimm árum og hafa neytendur tekið henni, og þeim nýjungum sem hafa komið fram síðan, afar vel.
Hleðsla kom fyrst á markað fyrir fimm árum og hafa neytendur tekið henni, og þeim nýjungum sem hafa komið fram síðan, afar vel.
KYNNING



Kolvetnaskert og laktósafrí Hleðsla er nýjasta útgáfan af Hleðslu en fyrsta Hleðslan kom á markað fyrir fimm árum. Hún hentar fólki með laktósaóþol vel og sömuleiðis öðrum sem finna til óþæginda í meltingarvegi við neyslu mjólkurafurða.

Til að ná árangri í íþróttum er nauðsynlegt að huga vel að matar­æði og næringu því það getur reynst erfitt að koma sér í gott líkamlegt form ef við hugum ekki að því sem við látum ofan í okkur. Við getum stritað og púlað en ef við hugsum ekki um hvað við borðum og drekkum eru töluverðar líkur á því að hreyfingin skili ekki þeim árangri sem við vonumst eftir. Ef stefnan er að ná góðum og varanlegum árangri er mikilvægt að ná góðu jafnvægi milli mataræðis og hreyfingar og hafa það hugfast að ein óholl máltíð skemmir ekki neitt, rétt eins og ein holl máltíð breytir ekki miklu. Lykillinn að jafnvæginu er að endurtaka góðar og hollar ákvarðanir á kostnað hinna óhollu og hafa það ætíð hugfast að góð heilsa og gott líkam­legt form er ekki áfangastaður eða einhver endapunktur, heldur lífsstíll sem við viljum temja okkur til að vera betur í stakk búin til að takast á við lífið í öllum sínum margvíslegu myndum.

Katrín Tanja Davíðsdóttir, afrekskona í crossfit og hraustasta kona ársins 2015.
Íþróttadrykkurinn Hleðsla er ferskur og bragðgóður prótein­drykkur frá MS sem kom fyrst á markað fyrir um 5 árum. Neytendur tóku vörunni vel frá byrjun og hentar hún fólki bæði fljótlega eftir æfingar og á milli mála. Nú er komin á markað nýjung í vörulínunni og er um að ræða kolvetna­skerta og laktósa­fría Hleðslu.

Að sögn Björns S. Gunnarssonar, næringarfræðings og vöruþróunarstjóra MS, er nýja Hleðslan gædd öllum þeim eiginleikum sem forveri hennar hefur. Hún inniheldur til að mynda 22 g af hágæða próteinum en til viðbótar hefur verið dregið úr kolvetnainnihaldi með því að notast við sætuefnið súkralósa í stað agaveþykknis. Þá hefur allur laktósinn, þ.e. mjólkursykurinn, verið klofinn sem þýðir að kolvetna­skert og laktósafrí Hleðsla hentar fólki með laktósaóþol vel og sömuleiðis öðrum þeim sem finna til óþæginda í meltingarvegi við neyslu mjólkurvara. Þá er þessi vara kjörin fyrir þá sem vilja draga úr neyslu kolvetna.“

Hleðslan hentar fólki sem er á ferðinni vel, hvort sem það er á leið í ræktina, út að hlaupa, í fótbolta eða í fjallgöngur eða þeim sem eru í vinnu og skóla og leita eftir hollri millimáltíð. „Hérna er því drykkur sem er bæði hollur og handhægur og ekki skemmir fyrir hversu bragðgóður hann er,“ segir Björn.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.