Costco er í miklu uppáhaldi hjá mörgum, það eru hins vegar ekki allir á sama máli um ágæti verslunanna. MarketWatch tók saman nokkrar ástæður „til að hata Costco.“
Þú getur bara notað eina tegund kreditkorts
Í flestum stórmörkuðum má nota hvaða kreditkort sem er. Hjá Costco má hins vegar einungis nota American Express. Þetta hefur farið í taugarnar á svo mörgum að nú hyggst Costco endurskoða reglurnar og leyfa Visa kort.
Langar raðir
Viðskiptavinir Costco eiga það margir til að kvarta yfir löngum röðum og þess að það vanti hraðafgreiðslu raðir.
Vörur sem hverfa
Oft bjóðast vörur hjá Costco einn daginn en svo hættir búðin að selja þær. Þetta getur farið illa fyrir brjóstið á sumum sem eru orðnir vanir að neyta vörutegundarinnar.
Engir plastpokar
Viðskiptavinir Costco geta ekki fengið plastpoka þegar þeir versla, í besta falli fá þeir pappakassa. Forsvarsmenn Costco segja að þetta hafi allt með kostnað að gera. Verslunin sparar á að bjóða ekki upp á fría plastpoka.
Engin heimsending
Costco býður viðskiptavinum ekki upp á heimsendingu sama hversu mikið verslað er. Hins vegar býður verslunin upp á heimsendingu þegar verslað er í netverslun. Því er einfaldast fyrir viðskiptavini sem þurfa aðstoð að panta þaðan.
Lítil aðstoð
Oft þurfa viðskiptavinir á aðstoð að halda við að velja vörur allt frá raftækjum yfir í vín. Í Costco er lítið af starfsfólki á gólfinu sem getur aðstoðað viðskiptavini. Aftur segja forsvarsmenn að þetta sé liður í því að halda kostnaði niðri.
