Óli Stef verður á skýrslu hjá Val í dag | Lék síðast með liðinu fyrir 19 árum Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 31. október 2015 13:01 Ólafur lék tvo leiki með Kolding í Meistaradeild Evrópu í mars. vísir/daníel
Ólafur Stefánsson, fyrrverandi landsliðsfyrirliði, hefur tekið skóna af hillunni og verður samkvæmt heimildum Vísis í leikmannahópi Vals þegar liðið mætir Akureyri í Olís-deild karla í handbolta í dag. Báðar örvhentu skyttur Vals, Ómar Ingi Magnússon og Geir Guðmundsson, eru frá vegna meiðsla og því verður Ólafur til taks í dag. Ólafur lék síðast með Val árið 1996 en síðasti leikur hans fyrir félagið var gegn KA 5. apríl það ár. Ólafur skoraði þá fjögur mörk í 25-17 sigri Vals en með honum tryggði liðið sér Íslandsmeistaratitilinn fjórða árið í röð. Ólafur lagði skóna á hilluna vorið 2013 og hefur ekki spilað síðan þá ef frá eru taldir tveir leikir með KIF Kolding Köbenhavn í Meistaradeild Evrópu í mars á þessu ári. Ólafur stýrði Val tímabilið 2013-14 en hætti skyndilega áður en tímabilið 2014-15 hófst. Valsmenn sitja á toppnum í Olís-deildinni með 18 stig, tveimur stigum á undan Íslandsmeisturum Hauka. Akureyri er hins vegar í 9. og næstneðsta sæti deildarinnar með sex stig.Leikur Vals og Akureyrar hefst klukkan 16:00. Hægt verður að fylgjast með honum í beinni textalýsingu á Vísi.
Olís-deild karla Mest lesið Utan vallar: Sjúklingurinn er að deyja Enski boltinn Belgísku bakgarðskóngarnir með lygilegt heimsmet Sport Veigar Páll í árs bann eftir fall á lyfjaprófi Körfubolti Vinirnir deila heimsmetinu en hvorugur er sigurvegari Sport Belgarnir láta Elísabetu fara Fótbolti Hverjir eru þessir 19 Íslendingar sem hafa spilað í Meistaradeildinni? Fótbolti Extraleikarnir: Nablinn og Tommi reyna fyrir sér í ballet Körfubolti Þurftu að biðja Infantino afsökunar Fótbolti Þurfti að spretta í markið eftir 102 klukkutíma á hlaupum Sport Sex handtekin vegna hrikalegs hneykslis í grískum körfubolta Körfubolti Fleiri fréttir KA - Afturelding | Þurfa sigur til að halda í við toppliðið Reynir Þór með fimm marka leik í Meistaradeildinni Íslensku stelpurnar unnu Pólverja eftir flotta endurkomu Þórsarar unnu í fyrsta sinn síðan um miðjan september Topplið Hauka burstaði Fram í Lambhagahöllinni Fyrsta tap Kristianstad kom í Íslendingaslag Viktor Gísli öflugur í sigri Barcelona Gísli og Ómar drógu vagninn í sigri Magdeburgar Elvar markahæstur en Donni fagnaði sigri Reynir markahæstur í sigri Melsungen Kærkominn sigur KA/Þór FH gekk frá Fram í seinni hálfleik Sandra með tíu í sætum sigri á Fram en Haukar halda flugi Níu mörk Jóhannesar ekki nóg Finnur til með Arnari Sætur sigur Selfoss og Gunnar með fullkominn leik KA-menn brotlentu í Garðabæ Tólf marka Dagur kom ÍBV á rétta braut „Ekkert sem ég missti svefn yfir“ Snorri Steinn valdi tuttugu leikmenn fyrir komandi verkefni Átján ára með fjórtán mörk og Haukar fljúga áfram Afturelding í annað sæti Stórleikur Hauks í sáru tapi og Andri náði ekki að mæta pabba Úr leik þrátt fyrir sjö mörk Einars Braga Gísli markahæstur og Bjarki fagnaði stórsigri Nýr styrktaraðili dönsku úrvalsdeildarinnar í handbolta umdeildur Arnór Snær: „Þvílíka veislan“ FH þurfti að þola annan skell í Portúgal Valur - Tatabánya 38-34 | Annar frábær Evrópusigur Sá besti óvænt orðaður við brottför Sjá meira