Jólapróf háskólanema í tvísýnu sunna karen sigurþórsdóttir skrifar 11. nóvember 2015 10:37 Rúnar segir allt gert til að reyna að koma í veg fyrir verkfallið. Hann segir ljóst að verkfallið mun hafa mikil áhrif. vísir/pjetur
Jólapróf háskólanema fara úr skorðum, verði af fyrirhuguðu verkfalli prófessora við ríkisháskóla í desember. Atkvæðagreiðslu þess efnis lýkur á morgun, en prófessorar hafa verið samningslausir frá því í lok febrúar. „Viðræðurnar eru í gangi og menn eru að tala saman af alvöru til að reyna að ná samkomulagi, en það hefur ekki gengið, enn sem komið er,“ segir Rúnar Vilhjálmsson, formaður Félags prófessora.Rúnar Vilhjálmsson.Niðurstöður úr atkvæðagreiðslunni munu liggja fyrir um hádegisbil á morgun. Rúnar telur nokkuð líklegt að félagsmenn samþykki verkfallsboðun. „Það verður auðvitað bara að koma í ljós. En ef marka má niðurstöðurnar frá því í fyrra, þegar farið var í atkvæðagreiðslu, þá voru niðurstöðurnar afgerandi. Ég sé svo sem ekki ástæðu til að ætla annað en að það verði skýr niðurstaða úr þessari atkvæðagreiðslu,“ segir hann. Í félaginu eru allir prófessorar við ríkisháskólana á Íslandi sem eru allir háskólar utan Háskólans í Reykjavík, Háskólans á Bifröst og Listaháskóla Íslands. Verði af verkfallinu þýðir það að öll námskeið sem prófessorar hafa umsjón með frestast eða falla niður, sem er um helmingur allra prófa. „Verkfallið mun augljóslega valda mikilli röskun en við vinnum að því að koma í veg fyrir að það fari svo. Niðurstaða háskólans síðast var sú að ekki væri forsenda til að vera með próf í sumum námskeiðum, þannig að það má ætla að niðurstaðan verði sú sama í ár,“ segir Rúnar, en háskólaprófessorar boðuðu til verkfalls á sama tíma í fyrra, en því var afstýrt á síðustu stundu þegar þeir undirrituðu skammtímasamning í lok febrúar.
Verkfall 2016 Mest lesið Hundi bjargað af svölum og einn fluttur á slysadeild Innlent Grunaðir um að skipuleggja óeirðir á Tenerife Erlent Eldur í fjölbýli í Norðlingaholti Innlent Fengu hjörtu Akureyringa að láni í bandarísku eyðimörkinni Erlent Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Innlent Hafi loks slíðrað sverðin Innlent Stjórnendur Sorpu slegnir Innlent Nota allar leiðir til þess að smygla fíkniefnum Innlent Ráðherrar einnig látið sig vanta í atkvæðagreiðslur Innlent „Þú ert ógeðslegur, komdu þér í form“ Erlent Fleiri fréttir Hundi bjargað af svölum og einn fluttur á slysadeild Eldur í fjölbýli í Norðlingaholti Nota allar leiðir til þess að smygla fíkniefnum Samþykkja tillögu Ástráðs Ráðherrar einnig látið sig vanta í atkvæðagreiðslur Kvikumagnið undir Svartsengi orðið mun meira en áður Frestur til miðnættis að taka afstöðu til tillögu ríkissáttasemjara Umferðarslys í Bolungarvík Kennarar boðaðir á fund hjá sáttasemjara „Miður að við séum komin á þennan stað“ „Það er bara mjög sorglegt“ Skringileg túlkun á regnbogafánanum og aukið eftirlit í Grindavík Hafi loks slíðrað sverðin Ökumenn beðnir um að aka sérstaklega varlega Starfsmenn séu eltir heim og lífi þeirra ógnað Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Ósáttir sendlar bjóða Wolt fram aðstoð sína Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Stjórnendur Sorpu slegnir Landsbankamálið gæti kostað ríkið hundruð milljóna Veltir fyrir sér hvort Viðskiptaráð haldi að Íslendingar séu hálfvitar Heimir Már biðst afsökunar á orðum sínum Wolt kærir hótanir til lögreglu Boðið upp á bólusetningar í apótekum í fyrsta sinn „Mínar skoðanir skipta í þessu máli litlu“ Höskuldur tapaði aftur fyrir Magnúsi „Hafðu kjarnorkuvopnin tilbúin“ Vill loka Stuðlum og opna nýtt úrræði Telur ekki að verið sé að víkja frá gildandi samningi Ætla að brenna rusl og skapa orku Sjá meira