Hagnaður Porsche helmingast frá síðasta ári sæunn gísladóttir skrifar 11. nóvember 2015 09:00 Porsche á yfir 30 prósent af hlutabréfum Volkswagen. vísir/valli
Hagnaður Porsche fyrir skatt á fyrstu níu mánuðum ársins var helmingi lægri en á sama tímabili á síðasta ári. Hagnaðurinn nam 1,19 milljörðum evra, jafnvirði 167 milljarða íslenskra króna. Forsvarsmenn Porsche greindu frá því í síðasta mánuði að afkoman yrði undir væntingum vegna áhrifa af dísilsvindli Volkswagen, en Volkswagen Group framleiðir Porsche bílana. Fyrirtækið áætlar nú að hagnaður ársins muni nema milli 800 og 1.800 milljóna evra, eða milli 113 og 253 milljarða íslenskra króna. Það er veruleg lækkun milli ára, en hagnaður Porsche nam þremur milljörðum evra, eða 424 milljörðum íslenskra króna, árið 2014. Porsche á 30,8 prósent af hlutafé Volkswagen. Hlutabréfaverð VW þess hefur lækkað um helming síðan greint var frá svindlinu í byrjun september sem hefur því haft veruleg áhrif á stöðu Porsche sem og VW. Í síðasta mánuði greindi Volkswagen frá fyrsta tapi á ársfjórðungi í yfir fimmtán ár.
Mest lesið Dyrum Kattakaffihússins lokað fyrir fullt og allt Viðskipti innlent Veldi auðugustu konu Rússlands sagt riða til falls Viðskipti erlent Varar við snyrtivörum á „gráum markaði“ Viðskipti innlent Stefán Atli gengur til liðs við Öryggismiðstöðina Viðskipti innlent Allir sýknaðir í Aurum-málinu Viðskipti innlent Rannsókn: Vinnustaðapartí algengur vettvangur kynferðislegrar áreitni Atvinnulíf Hafa ekki valið enskt heiti fyrir Kerið Viðskipti innlent Selur gamla fyrirtækinu annað á tæpa þrjá milljarða Viðskipti innlent Áslaug Arna í gervigreindina hjá Fenris Creations Viðskipti innlent Fullveldið ekki bundið við sjálfstæðan gjaldmiðil Viðskipti innlent Fleiri fréttir Veldi auðugustu konu Rússlands sagt riða til falls Tollar kísilframleiðslu í Kína Fundu vinningsmiðann eftir tveggja daga leit í rusli Kushner og Sádar ljúka skuldsettri yfirtöku á Electronic Arts eBay greiðir hjónum sex milljarða eftir hrottalega áreitni Lögðu til frjálsar greiðslur fyrir siglingar um Hormússund Apple aftur verðmætasta fyrirtæki heims Birtu tíu tillögur að nýjum seðlum Olíuverð fellur í kjölfar sprengjuhlés TikTok næst eftir sektir á Google og AliExpress Olíutunnan nálgast aftur hundrað dali Dómari ýtir á pásu í yfirtökuferlinu Óttast kínverska gervigreind Vill leggja fimmtíu prósenta toll á kanadískar vörur Olíuverð hækkar um rúm fimm prósent í kjölfar ummæla Trumps Skera niður Xbox til þess að spreða í gervigreind Sky ætlar að festa kaup á ITV Sjá meira