„Hárrétt að reka Poikola“ Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 10. nóvember 2015 21:05 Poikola stýrði Tindastóli í aðeins fjórum deildarleikjum. Vísir/Vilhelm
Stefán Jónsson, formaður körfuknattleiksdeildar Tindastóls, segir að hann hafi fengið 100 prósent meðmæli með Joe Costa, nýráðnum þjálfara liðsins. Costa er 43 ára Spánverji sem hefur áður starfað með Israel Martin, sem þjálfaði lið Tindastóls með góðum árangri í fyrra. Stefán, sem starfar á sjó, var staddur á Grænlandssundi þegar Vísir náði tali af honum í kvöld. „Hann og Israel eru vinir og hafa þekkst lengi. Israel gaf honum 100 prósent meðmæli,“ sagði Stefán sem segir að leitin að nýjum þjálfara hafi heilt yfir ekki gengið illa.Sjá einnig: Kári stýrir Stólunum þangað til nýr þjálfari finnst „Það er til nóg af þjálfurum. Það þurfti bara að velja þann rétta. Það gekk ekki innanlands en það var reynt. Við ræddum við alls fimm íslenska þjálfara,“ sagði Stefán en í gær staðfesti Sverrir Þór Sverrisson, fyrrum þjálfari Grindavíkur, að hann hafi gefið Stólunum afsvar vegna anna. Finninn Pieti Poikola var rekinn eftir aðeins fjóra leiki í haust og segir Stefán að hann sjái alls ekki eftir þeirri ákvörðun. „Það var hárrétt ákvörðun og engin eftirsjá í því. Það er engin spurning að Pieti er fær þjálfari en hugmyndafræði hans hentaði okkur engan veginn,“ sagði Stefán.Sjá einnig: Stólarnir mega ekki tjá sig um brottrekstur Poikola Hann segir að þetta hafi ekki komið í ljós fyrr en tímabilið var hafið. „En þá kom það mjög fljótt fram,“ bætti hann við. Stefán vonar að Stólarnir verði léttleikandi lið undir stjórn nýja þjálfarans. „Ég vona að hann [Costa] hafi gaman að þessu og að strákarnir hafi gaman að þessu líka.“
Dominos-deild karla Mest lesið Sænskur varnarjaxl ólétt og segir að ferlinum sé lokið Fótbolti Lárus Orri: „Breytast í eitthvað allt annað og liggja út um allan völl“ Íslenski boltinn Jón Þór ráðinn til Stjörnunnar Fótbolti Michael Oliver getur ekki dæmt fyrsta leikinn sinn á HM Fótbolti Fyrri hálfleikur Bandaríkjanna sá besti sem hann hefur séð Fótbolti Segir að það sé bara einn heimsklassaleikmaður í enska landsliðinu Fótbolti Bandaríkin byrja sterkt á heimavelli Fótbolti Viktor Gísli í úrslitaleik Meistaradeildarinnar Handbolti Maður dagsins á HM: Ólst upp í Englandi en valdi Bandaríkin Fótbolti Braut nálgunarbann með því að heimsækja kærustu sína Sport Fleiri fréttir Harden handtekinn fyrir ólöglegan vopnaburð Elvari og félögum sópað í sumarfrí Martin nálægt tvennunni en Alba Berlin tapaði fyrsta leiknum Jesús áfram í Stjörnunni Stuðningsmenn Knicks köstuðu eggi í Wembanyama Elvar og félagar fara 2-0 undir heim til Kanaríeyja Baldur tekur eina stærstu stjörnu Stjörnuliðsins yfir á Álftanes Stólarnir ráða Ísak Wíum Ármann fær sæti í Bónus deildinni og framlengir við Jónínu „Heimskasta körfuboltalið í sögu mannkyns“ Söguleg endurkoma Knicks LeBron James um „Geitina“ í NBA: Enginn betri en ég Wembanyama sleppur við refsingu Kolbrún snýr aftur heim og semur við Tindastól Steinar áfram hjá Ármanni Hamar og Þór hætta samstarfi Martin í úrvalsliðinu Martin spilar til úrslita um þýska meistaratitilinn Elvar og félagar lentu í gininu á Börsungum í kvöld „Ég hef alltaf komið sterkari til baka“ „Ég fer í góðu og þeir skilja mína ákvörðun“ KR blæs í herlúðra: Sara Rún og Emma Sóldís í Vesturbæinn Baulað á Trump í New York Spurs minnka muninn í úrslitaeinvíginu Þrefaldur NBA-meistari með Jordan látinn Ekkert teiti því Trump mætir á völlinn Martin á leið í oddaleik Elvar og félagar hentu meisturum Real Madrid úr leik Tryggvi úr leik þrátt fyrir góða frammistöðu Bræðurnir áfram og meistararnir halda þéttum kjarna Sjá meira