Zenit áfram með fullt hús | Leverkusen í basli Tómas Þór Þórðarson skrifar 24. nóvember 2015 18:49 Artem Dzyuba skorar og skorar. vísir/getty
Zenit frá Pétursborg heldur áfram að valta yfir H-riðil Meistaradeildarinnar, en Rússlandsmeistararnir unnu öruggan 2-0 sigur gegn Valencia á heimavelli í fyrsta leik fimmtu leikviku í kvöld. Oleg Shatov kom heimamönnum yfir á 15. mínútu og framherjinn stóri Artem Dzyuba innsiglaði sigurinn með sínu fjórða marki í Meistaradeildinni í ár, 2-0, á 74. mínútu. Zenit er með 15 stig, ósigrað og með fullt hús stiga, á toppi H-riðils, en Valencia er í öðru sæti með sex stig þegar ein umferð er eftir. Lyon tekur á móti Gent í kvöld og getur heldur betur komið sér í baráttuna um annað sætið með sigri. Gent er í þriðja sæti með fjögur stig en Lyon á botninum með eitt stig. Bayer Leverkusen er í basli í E-riðlinum, en þýska liði heimsótti BATE Borisov til Hvíta-Rússlands´i kvöld og gerði aðeins jafntefli, 1-1. Mikhail Gordeychuk kom heimamönnum yfir strax á annarri mínútu en Admir Mehmedi bjargaði stigi fyrir Bayer á 68. mínútu, 1-1. Leverkusen er í þriðja sæti riðilsins með fimm stig en BATE á botninu með fjögur stig. Barcelona og Roma mætast í kvöld, en vinni Roma óvæntan sigur kemst það áfram í 16 liða úrslitin og skilur Leverkusen eftir.
Meistaradeild Evrópu Mest lesið Komnar í vinnu við að gagnrýna Þóri Handbolti Kærir föður sinn fyrir fjársvik Sport Fann ástina í örmum skilnaðarlögfræðingsins Fótbolti „Sem betur fer fór ég enn á ný í rétt horn“ Fótbolti Liverpool með fullt hús stiga á meðan Real er rjúkand rúst Fótbolti Aþena lagði Grindavík Körfubolti Hákon Arnar kom inn af bekknum í mikilvægum sigri Fótbolti Íslendingarnir allt í öllu í Meistaradeildinni Handbolti Haukar á 30 tíma ferðalagi: „Verð sennilega bara í hjólastól“ Handbolti Dagskráin í dag: Víkingar og aðrir Íslendingar í Evrópu, Rauðu djöflarnir og NFL Sport Fleiri fréttir Fann ástina í örmum skilnaðarlögfræðingsins „Sem betur fer fór ég enn á ný í rétt horn“ Hákon Arnar kom inn af bekknum í mikilvægum sigri Yamal Gulldrengur ársins og López Gullstúlka ársins Liverpool með fullt hús stiga á meðan Real er rjúkand rúst Dramatík á Villa Park Mascherano þjálfar Messi á Miami Elfar Árni heim í Völsung „Gefur enga mynd af því sem við erum að fara að ganga í gegnum“ Amma Bellinghams fór ekki út úr húsi á meðan EM stóð Svarar Gabriel eftir að hann stal fagninu hans Guardiola allur útklóraður eftir leik Coote gaf gult spjald eins og hann talaði um fyrir leik Segir það sárt að vera ekki velkominn hjá Liverpool Jóhann semur og heldur Jóhanni í teyminu Dagný gleymd eða afskrifuð?: Hefur ekkert heyrt í landsliðsþjálfaranum „Gætu gert hrikalega góða hluti með íslenska landsliðið“ Metinn á rúmlega 17 milljarða fyrr á árinu en má nú fara á láni Laumaði hauskúpu afa síns inn á úrslitaleikinn „Við erum brothættir“ „Höfum sýnt að þetta er getustigið sem við getum spilað á“ Lewandowski sá þriðji til að skora hundrað Meistaradeildarmörk Atlético skoraði sex Ótrúleg endurkoma Feyenoord í Manchester Skytturnar léku á als oddi Eiður Aron áfram á Ísafirði Hareide þarf að leggjast undir hnífinn Liverpool væri bara í þrettánda sæti án markanna hans Mo Salah Andri Rúnar í Stjörnuna Hvorki Arnar né Freyr heyrt frá KSÍ Sjá meira