Örlög Elísabetar í höndum fyrrverandi markvarðar Liverpool Sindri Sverrisson skrifar 14. október 2026 22:10 Simon Mignolet lék um árabil með belgíska landsliðinu en hann hefur núna mikið að segja um það hvort Elísabet Gunnarsdóttir verði áfram þjálfari belgíska kvennalandsliðsins. Samsett/Getty Belgíska knattspyrnusambandið vegur nú og metur stöðu Elísabetar Gunnarsdóttur og hvort að henni verði boðið að halda áfram sem þjálfari kvennalandsliðs Belgíu nú þegar HM-draumurinn er úr sögunni.
Belgía tapaði í gærkvöld með nístingssárum hætti gegn Póllandi í fyrri umferð umspilsins um sæti á HM í Brasilíu næsta sumar. Þó að Elísabet hafi fengið stuðning leikmanna í viðtölum strax eftir tapið er ljóst að staða hennar er erfið og sumir belgísku miðlanna segja að búist sé við því að leiðir skilji. Samningur Elísabetar átti að gilda fram yfir HM á næsta ári en nú er það mót úr sögunni. Framkvæmdastjóri belgíska sambandsins lét hafa eftir sér í viðtali í síðustu viku að það væri lágmarkskrafa að Elísabet kæmi Belgíu á HM. „Þetta er auðvitað ekki í mínum höndum. Ég hef klárlega trú á sjálfri mér en þetta er ekki mitt að ákveða,“ sagði Elísabet strax eftir leik í gærkvöld. Nieuwsblad og De Standaard segja að framhaldið ráðist núna að miklu leyti af mati Simon Mignolet, fyrrverandi markvarðar karlalandsliðs Belgíu og Liverpool. Mignolet, sem er 38 ára gamall, er „tæknistjóri“ belgíska knattspyrnusambandsins og mun nú rýna í öll gögn auk þess að ræða við helstu aðila, þar á meðal Elísabetu sjálfa, segir De Standaard. Pierre Locht, yfirmaður íþróttamála hjá belgíska sambandinu, er svo sagður munu byggja sína ákvörðun á niðurstöðu Mignolet. Orðið undir gegn Írum, Skotum og Pólverjum Elísabet tók við belgíska landsliðinu í janúar í fyrra. Undir hennar stjórn vann liðið snemma frækinn sigur gegn Englandi sem og gegn portúgalska liðinu sem bíður þess íslenska í einvígi um sæti á HM. Belgía féll svo hins vegar úr leik í riðlakeppninni á EM í Sviss í fyrra og eftir það hefur allt gengið á afturfótunum. Fyrst féll liðið niður í B-deild Þjóðadeildarinnar eftir naumt tap í umspili gegn Írlandi, þar endaði liðið svo í 2. sæti á eftir Skotlandi á markatölu, og loks er það tapið eftir vítaspyrnukeppni gegn Pólverjum í HM-umspilinu. Belgía er rétt fyrir ofan Írland, Skotland og Pólland á heimslistanum, í 20. sæti.
Fótbolti Mest lesið „Stelpurnar vissu ekki einu sinni af þessu“ Fótbolti Uppsagnir hjá Arsenal Enski boltinn KSÍ fái rúma þrjá milljarða frá FIFA Fótbolti Segja starf Elísabetar hanga á bláþræði en leikmenn lofa hana Fótbolti Barcola braut ísinn með látum í Austurríki Fótbolti Einkunnir Íslands: Þrjár stóðu upp úr í veislunni í Dalnum Fótbolti Tvenna Haalands dugði skammt gegn PSG Fótbolti Rooney baunar á Ronaldo: „Allt rangt við þetta“ Fótbolti Þorði ekki á Instagram eftir leikinn Fótbolti Óljós skilaboð vekja upp spurningar: „Ég er orðlaus“ Enski boltinn Fleiri fréttir Örlög Elísabetar í höndum fyrrverandi markvarðar Liverpool Stúdentaóeirðir og táragas valda algjörri óvissu hjá liði Elíasar Sex marka sýning Villa og ótrúleg endurkoma Real Madrid Tvenna Haalands dugði skammt gegn PSG Guardiola sá versta hálfleik City á heimavelli í fjórtán ár Sjáðu þrennu Barcola og alla markasúpuna í Austurríki Barcola braut ísinn með látum í Austurríki Hártogið og lætin kosta Vinicius El Clásico og alls fjóra leiki Hvað verður um Martinez eftir gagnrýnina? Kjartan meiddist illa og verður lengi frá Rooney baunar á Ronaldo: „Allt rangt við þetta“ Uppsagnir hjá Arsenal Tekur ekki við fyrr en eftir tímabilið Náði að hefna sín gegn ítölsku félögunum Þorði ekki á Instagram eftir leikinn Óljós skilaboð vekja upp spurningar: „Ég er orðlaus“ Mörkin úr Meistaradeildinni: Hákon gegn Arsenal, dramatík og óvænt úrslit KSÍ fái rúma þrjá milljarða frá FIFA Lét gamminn geisa og fær að heyra það Guðmundur greindist með hjartasjúkdóm „Stelpurnar vissu ekki einu sinni af þessu“ Myndaveisla: Breið bros og dansspor í Dalnum Segja starf Elísabetar hanga á bláþræði en leikmenn lofa hana Sungu jólalag hástöfum og allt klárt fyrir HM-einvígin Norsku meistararnir magnaðir gegn Bayern Rúnar Páll tekur við Stjörnunni á nýjan leik „Stolt af því hvernig ég stóð mig í dag“ Aftur ráðast HM-örlög Íslands gegn Portúgölum Einkunnir Íslands: Þrjár stóðu upp úr í veislunni í Dalnum HM-draumurinn úti hjá Betu og Belgum eftir vító Sjá meira