Sjónvarpskokkurinn Eyþór Rúnarsson gefur gómsætar uppskriftir á Stöð 2 fram að jólum. Í gær töfraði hann fram fjölbreytta og hátíðlega rétti sem setja má í glæsilega gjafakörfu.

Grafin gæsabringa
2 gæsabringur
150 g púðursykur
150 g gróft salt
Kryddblanda
1 msk. rósapipar
2 msk. sinnepsfræ
1 stk. anísstjarna
2 kaffibaunir
Blandið saman sykrinum og saltinu. Setjið öll kryddin saman í mortél og myljið þau þar til þau eru orðin fínt möluð. Hjúpið gæsabringurnar með salt- og sykurblöndunni og stráið því næst kryddunum undir og yfir gæsabringurnar. Setjið bringurnar inn í ísskáp og látið standa þar með plastfilmu yfir í 12 tíma.

Andaconfit
4 stk. andalæri
100 g gróft salt
100 g púðursykur
8 stk. timíangreinar (gróft skornar)
¼ bréf salvía (gróft skorin)
4 hvítlauksrif (gróft skorin)
1 appelsína (bara börkurinn fínt rifinn)
500 g andafita
500-1000 ml sólblómaolía
Setjið saltið og púðursykurinn í skál og blandið saman. Hjúpið andalærin með blöndunni. Dreifið öllu hráefninu nema appelsínunni jafnt yfir og undir lærin. Rífið börkinn af appelsínunni jafnt undir og yfir lærin. Setjið lærin inn í ísskáp og látið standa þar í 6 klst. Skolið kryddin og salt- og sykurblönduna af lærunum og setjið í eldfast form.
Hellið fitunni yfir lærin og fyllið upp með olíunni svo það fljóti vel yfir lærin. Setjið inn í 130 gráðu heitan ofninn í 3 klst. Takið úr fitunni og setjið á bökunargrind og látið kólna inn í ísskáp.

Hindberja- og engifersulta
300 g frosið engifer
30 g rifið ferskt engifer
100 g hrásykur
1 lime (fínt rifinn börkur)
Setjið allt hráefnið í pott og sjóðið við vægan hita í 30 mín. Maukið með töfrasprota og smakkið til með lime-safanum og kælið.

Paté
250 g smjör
100 g beikon (skorið í litla bita)
200 g laukur (gróft skorinn)
250 ml púrtvín
500 g kjúklingalifur
5 egg
15 g salt
¼ tsk. timían
200 g hreinsað smjör (bráðið)
Setjið smjörið í pott og bræðið við vægan hita. Hellið smjörinu úr pottinum yfir í könnu en skiljið mjólkina sem kemur úr smjörinu eftir í pottinum. Þá ættu að vera eftir um 200 ml af hreinsuðu smjöri.
Steikið laukinn og beikonið saman í um 5 mín. eða þar til laukurinn er orðinn mjúkur í gegn. Hellið púrtvíninu út í pottinn og látið sjóða í um 2 mín. Takið pottinn til hliðar í 10 mín. og látið innihaldið kólna.
Brjótið eggin og setjið í blender-skál með kjúklingalifrinni, beikoninu, lauknum, púrtvíninu og öllum kryddunum. Setjið blenderinn í gang í um 30 sek. eða þar til allt er blandað saman. Bætið hreinsaða smjörinu smám saman út í blenderinn. Setjið blönduna í litla leirpotta og svo ofan í djúpa bökunarplötu sem er hálf full af vatni.
Bakið við 150 gráður í 30 mín. eða þar til patéið er fullbakað í gegn. Takið patéið úr ofnskúffunni og látið kólna í um 15 mín. Setjið það svo í ísskápinn og látið kólna þar í um 90 mín. Takið patéið að lokum úr ísskápnum og hellið púrtvíns- og rifsberjahlaupinu yfir og setjið aftur inn í ísskáp.
Púrtvíns - rifsberjahlaup
150 ml púrtvín
2 msk. rifsberjagel
1 matarlímsblað
Setjið matarlímsblaðið í kalt vatn í 10 mín. Sjóðið upp á púrtvíninu og rifsberjagelinu og bætið svo matarlíminu út í og látið það leysast upp.

Omnom lakkríssúkkulaðipopp
50 g poppmaís
3 msk. kókosolía
120 g Omnom lakkrís + Sea Salt (2 plötur)
1 msk. smjör
Lakkrís-salt frá Saltverk
Bræðið súkkulaðið við vægan hita í vatnsbaði ásamt 1 msk. af kókosolíu. Hitið kókosolíu í potti og bætið poppmaísnum við. Setjið lokið yfir og poppið. Setjið poppið í skál og hellið súkkulaðinu yfir og blandið öllu saman með sleif og smakkið til með vel af lakkríssaltinu. Setjið poppið á bökunarplötu með smjörpappír og látið kólna í 1 klst.

Kanilkex
280 g smjör, við stofuhita
300 g hveiti
50 g möndluduft
7 g lyftiduft
70 g flórsykur
60 g eggjarauða
12 g kanill
1 msk. romm
2 g fínt salt
1 plata Himneskt súkkulaði
1 sítróna
Sjávarsalt
Þeytið smjörið þar til það er orðið létt og ljóst. Bætið flórsykrinum út í og þeytið saman í um 2 mín. Setjið K-stykkið í vélina og bætið restinni af hráefninu út í og vinnið saman í um 2 mín. Setjið deigið á smjörpappír og setjið svo annan smjörpappír yfir og fletjið deigið jafnt út þar til það er 5 mm þykkt. Setjið deigið á bökunarplötu og inn í frysti í um 30 mín. Takið deigið út og skerið í ca 4 x 6 cm kökur. Raðið deiginu á bökunarplötu með smjörpappír og setjið inn í 170 gráðu heitan ofninn í 16 mín. Takið kexið út og rífið um 2 msk. af súkkulaði yfir það, rífið svo sítrónubörkinn yfir og endið á að setja smá sjávarsalt á toppinn.

Valhnetusinnepsdressing
50 g gróft sinnep
15 g sesamolía
30 g tamarisósa
50 g balsamik
200 ml ólífuolía
50 g valhnetur (ristaðar í ofni við 150 gráður í 20 mín.)
Setjið allt nema valhneturnar saman í blender og vinnið saman í 2 mín. Skerið valhneturnar gróft niður og bætið út í dressinguna.