Þú ert lykilorð framtíðar Samúel Karl Ólason skrifar 10. janúar 2015 12:00 Þau einkenni sem gera hverja manneskju einstaka geta vel nýst til öryggis. Vísir/Getty
Fregnir af tölvuárásum verða sífellt háværari og hafa þær líklega aldrei verið umfangsmeiri en í fyrra. Fjölmörg tæknifyrirtæki huga nú að bættu öryggi og margir hverjir horfa til þess að nýta lífkennafræði (e. biometrics). Markmið nokkurra fyrirtækja sem sýndu tækni sína á CES-tæknihátíðinni í Las Vegas sem lauk í gær er að koma þessari tækni í almenna notkun. Lífkennafræði vísar til þess að nota mælanleg einkenni manneskja, eins og fingraför, augu, andlit og jafnvel lykt. Þar sem manneskjur eru í raun eins og snjókorn, ekkert okkar er eins, gætu lykilorð framtíðarinnar orðið okkar eigin líkamar. Mun erfiðara er að stela eða afrita lífkenni en til dæmis lykilorð. Tæknifyrirtækið EyeLock hefur unnið að þróun augnskanna sem mögulegt er að nota til að opna allt frá fartölvum til útidyrahurða. Fyrirtækið heldur því fram að mun erfiðara sé að komast fram hjá augnskönnum sínum en til dæmis fingrafaraskönnum.Hjartað talið efnilegt Þá kynnti fyrirtækið Nymi armband sitt sem virkar sem nokkurs konar rafrænt skilríki. Það sem einkennir armbandið þó er að það notast við hjartslátt notanda til að staðfesta að um rétta manneskju sé að ræða. Það er þó enn stutt komið í þróun, en í framtíðinni væri hægt að nota það til að staðfesta rafrænar greiðslur, taka bílinn úr lás eða komast inn á skrifstofuna sína.Armbandið frá Nymi notar hjartslátt til að bera kennsl á notendur. Mjög erfitt er að afrita þau gögn og hjartslátturinn er talinn einn af stærstu möguleikum lífkenna.mynd/nymi.com„Þú þarft að sanna hver þú ert margsinnis á hverjum degi með því að slá inn lykilorð, taka hurð úr lás eða nota aðgangskort,“ hefur Yahoo Tech eftir Shawn Chance frá Nymi. „Öll þessi tilvik munu gufa upp þegar þú setur armbandið á þig. Þú þarft ekki að fikta við lykla, þú þarft ekki að leita að korti í vasanum, þú þarft ekki að gera neitt af þessu. Ef armbandið kemst í hendur rangra aðila, er það gagnslaust fyrir þá.“ Fyrirtækið Netatmo kynnti einnig starfsemi sína á CES-hátíðinni. Það sýndi myndavél sem ætlað er að halda heimili fólks öruggu. Hún er notuð til að taka myndir af fjölskyldumeðlimum og vinum, en hún sendir eigendum tilkynningar í síma og önnur snjalltæki greini hún andlit annarra á heimilinu. Þá er hægt að horfa á beina útsendingu úr myndavélinni í símum.Gagnrýni varðar persónuöryggi Gagnrýnendur segja þó að með aukinni notkun lífkenna sé óhjákvæmilegt að til verði gagnagrunnar sem geymi slíkar upplýsingar um einstaklinga. Verði gögnum um sjónhimnur einstaklinga stolið, gæti það skapað mikil vandræði. Það er auðvelt að skipta um stolið kreditkort, en það gæti verið erfiðara að skipta um sjónhimnu. Sömu sögu er að segja af lykilorðum. Komist óprúttnir aðilar yfir slík, er yfirleitt auðvelt að skipta um lykilorð. Komist þeir hins vegar yfir stafrænar upplýsingar um útlit eða fingraför, er ekki auðvelt að skipta slíku út. Enn er nokkrum spurningum ósvarað um öryggi lífkennafræði, en ljóst er að tæknin býður upp á fjölmarga möguleika í stafrænu öryggi og á öðrum sviðum.
Mest lesið Prakkarastrik loks opinberað: „Það leiðréttist hér með!“ Atvinnulíf 40 prósent dýrara að leigja á almennum húsnæðismarkaði Viðskipti innlent Vænta þess að eigendur hússins leysi málið Viðskipti innlent Vænta 50 punkta lækkunar en telja 25 punkta líklega Viðskipti innlent Milla ráðin rekstrarstjóri hjá Ólafi Darra og félögum Viðskipti innlent 37,5 milljarðar í hagnað og nítján í arð Viðskipti innlent „Alltaf hægt að sjá tækifæri og fleira gott í stöðunni“ Atvinnulíf Leggja til lagabreytingu sem leysir af penna og pappír Viðskipti innlent Um fimmtíu verið sektuð fyrir að greiða ekki rétt fargjald Neytendur Fólk muni eiga meira eftir í buddunni um mánaðamótin Neytendur Fleiri fréttir Gervigreind fyrir klink veldur Bandaríkjamönnum hausverk Kínversk kúvending leiddi til hruns vestanhafs Enn deila Musk og Altman MrBeast gerir tilboð í TikTok Eftirmaður Norman yfir LIV-mótaröðinni fundinn Höfða mál gegn Musk vegna kaupanna á Twitter Vilja banna farþegum að fá sér þriðja drykkinn á flugvellinum Meta birtir óumbeðnar gervigreindarmyndir af notendum Instagram Biden stöðvar japanska yfirtöku á US Steel Næstum allir nýir bílar í Noregi rafmagnsbílar Sjá meira