Stíf partýhöld frá klukkan fimm: Heimagerður fáni skylda sunna karen sigurþórsdóttir skrifar 20. maí 2015 11:30 J'aime la vie með Söndru Kim er annað af tveimur uppáhaldslögum Jóhannesar.
Jóhannes Þór Skúlason, aðstoðarmaður forsætisráðherra, segist ekkert fara í grafgötur með áhuga hans á Eurovision. Hann kviknaði þegar hann var ellefu ára og hefur ágerst síðan þá. „Ég er gjörsamlega djúpt sokkinn fyrir mörgum árum en hugsa að áhuginn hafi kviknað þegar ég sá Diggie-Loo Diggie-Ley með Herreys-bræðrum syngja um gyllta skó í svarthvíta sjónvarpinu heima hjá pabba og mömmu,“ segir Jóhannes. Stóra kvöldið er því tekið með pompi og prakt og öllu flaggað. „Það er ákveðinn hópur fjölskyldu og vina sem hittist til að horfa á keppnina. Veislan byrjar klukkan fimm og menn borða saman og svona. Allir þurfa að vera búnir að velja sér land til að halda með og koma með fána, helst heimagerðan. Þá bera menn fram einhvers konar kynningu á landinu sínu; eitthvað til að borða, drekka eða menningu. Svo er gríðarlega hörð kosningabarátta um hver er með bestu kynninguna,“ segir hann. Jóhannes segir tvö Eurovision-lög vera í miklu uppáhaldi en á erfitt með að gera upp á milli þeirra. Annars vegar J‘Aime la vie með Söndru Kim sem sigraði á eftirminnilegan hátt í keppninni árið 1986 og hins vegar Euphoria með hinni sænsku Loreen sem vann keppnina árið 2012. „Uppáhalds lagið mitt í ár er þó finnska lagið. Það er fyrst og fremst pönkið, en ég er pönkari inn við beinið. Pönkið lifir!“ Þá segist hann ágætlega bjartsýnn á gengi okkar Íslendinga í keppninni í ár. „Ég er bjartsýnn. Kannski ekki alveg Gleðibankabjartsýnn en ég held að María eigi eftir að selja þetta í undanriðlinum og koma því upp því hún hefur fína útgeislun á sviði. Ég spái henni tíunda til tólfta sæti,“ segir Jóhannes Þór. Sandra Kim var einungis þrettán ára þegar hún sigraði í Eurovision árið 1986. Hin sænska Loreen vann keppnina með laginu Euphoria árið 2012. Lagið hefur verið í miklu uppáhaldi hjá Jóhannesi síðan þá. Herrey's bræður frá Svíþjóð unnu keppnina árið 1984. Áhugi Jóhannesar á Eurovision kviknaði þegar hann sá bræðurna syngja í keppninni.
Eurovision Eurovísir Tengdar fréttir „Líf mitt er á krossgötum í augnablikinu“ „Ég fór úr því að lifa mjög miklu einkalífi yfir í að allt í einu vita allir allt um mann. Svo ég þarf að hafa fyrir því að halda persónulegum hlutum fyrir mig,“ segir María Ólafsdóttir. 19. maí 2015 12:00 Allt annar heimur blasir við Pálmi Ragnar Ásgeirsson, einn lagahöfunda Unbroken, segir tilhlökkunina fyrir keppninni mikla. Stress hafi lítið gert vart við sig enda María öruggur flytjandi. 19. maí 2015 14:00 Íslendingarnir glæsilegir á opnunarhátíð: Friðrik Dór syngur „Ég á Líf“ með Portúgölum Eins og myndirnar sýna var mikil stemning í opnunarpartýinu í gær. 18. maí 2015 19:30 Sigga Kling spáir fyrir um gengi Maríu: Engillinn sem mun koma öllum á óvart Hugsanir skapa heiminn og við komumst í fyrsta sætið ef við sköpum orkuna, erum stolt í hjarta okkar og þá gengur allt vel,“ segir Sigríður Klingenberg spámiðill. 20. maí 2015 11:00 Mest lesið Grenjaði, veipaði og keyrði stanslaust Lífið Óleyst íslensk ráðgáta: Veist þú svarið? Lífið Tólf barna móðir selur sveitadraum Lífið „Ég get ekki leikið lengur. Ég get ekki lesið“ Lífið Gengst við slúðursögu um þungunarpróf Lífið Konur æfi með líkamanum, ekki gegn honum Lífið Stjörnuleikur Góa og Unnar bjargar Höggi Gagnrýni Ölvuðu Íslendingarnir í Kristjaníu stóðu upp úr Tónlist Góðgerðartreyja til styrktar Ingvari hönnuð af 66° Norður Tíska og hönnun Eignaðist barn, missti ömmu sína og erfði púðlusafnið Menning Fleiri fréttir „Ég get ekki leikið lengur. Ég get ekki lesið“ Óleyst íslensk ráðgáta: Veist þú svarið? Grenjaði, veipaði og keyrði stanslaust Gengst við slúðursögu um þungunarpróf Konur æfi með líkamanum, ekki gegn honum Tólf barna móðir selur sveitadraum Rekinn úr körfuboltaliði FSU fyrir að detta í það Bólginn á höndunum skríðandi til Bessastaða Erfitt að geta ekki eytt peningunum í föt Kristófer Acox selur íbúð með potti í Urriðaholti Umdeildur hlaðvarpspabbi orðinn móðir Harry vill sættast við fjölskylduna Miðaldra kona þóttist vera sofandi í Epal Ranglega greind með MS-sjúkdóm Tískudrottning og fréttamaður selja í Vesturbæ Jennifer Lopez að hitta Ted Lasso-stjörnu Wahlberg segir flugmennina hafa bjargað lífi sínu Hvað veistu um… Nylon? Sahara Ray látin Bjarni Ben og Inga Lind gæddu sér á túnfiski Richard Riehle látinn Costanza á klakanum Gjörbreytti einbýli í Kópavoginum Píparapæja selur pent „penthouse“ Sló í brýnu milli poppara yfir Ratcliffe Diljá Mist á lausu Stjörnulífið: Hannes heppinn með Diego Crawford minnist sonarins Pattra og Brynjar slá sér upp Eignar Ingu Sæland plötutitilinn Sjá meira
„Líf mitt er á krossgötum í augnablikinu“ „Ég fór úr því að lifa mjög miklu einkalífi yfir í að allt í einu vita allir allt um mann. Svo ég þarf að hafa fyrir því að halda persónulegum hlutum fyrir mig,“ segir María Ólafsdóttir. 19. maí 2015 12:00
Allt annar heimur blasir við Pálmi Ragnar Ásgeirsson, einn lagahöfunda Unbroken, segir tilhlökkunina fyrir keppninni mikla. Stress hafi lítið gert vart við sig enda María öruggur flytjandi. 19. maí 2015 14:00
Íslendingarnir glæsilegir á opnunarhátíð: Friðrik Dór syngur „Ég á Líf“ með Portúgölum Eins og myndirnar sýna var mikil stemning í opnunarpartýinu í gær. 18. maí 2015 19:30
Sigga Kling spáir fyrir um gengi Maríu: Engillinn sem mun koma öllum á óvart Hugsanir skapa heiminn og við komumst í fyrsta sætið ef við sköpum orkuna, erum stolt í hjarta okkar og þá gengur allt vel,“ segir Sigríður Klingenberg spámiðill. 20. maí 2015 11:00