Mikkel Hansen: Guðmundur þarf að fínpússa marga hluti í Frakklandi Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 7. janúar 2016 17:00 Mikkel Hansen. Vísir/Getty
Guðmundur Guðmundsson og lærisveinar hans í danska landsliðinu spila síðustu undirbúningsleiki sína fyrir Evrópumótið í Póllandi á Gullmótinu í Frakklandi. Mótherjar danska liðsins verða Katar, Noregur og Frakkland og fyrsti leikurinn er á móti Katarbúum í kvöld. Danska liðið þarf að læra að lifa án René Toft Hansen en þessi sterki varnar- og línumaður sleit krossband í leik með Kiel. Guðmundur Guðmundsson þarf því örugglega að leggja mikla áherslu á varnarleikinn í þessum þremur leikjum í Frakklandi. „Ég vil bara fá tækifæri til að spila leik og sjá hvernig þetta lítur út hjá okkur. Við þurfum að fínpússa fullt af hlutum og það er spennandi að sjá hvernig þetta kemur út hjá okkur í Frakklandi," sagði Mikkel Hansen í samtali við hbold.dk. Hansen er gríðarlega mikilvægur fyrir danska liðið enda einn allra besti handboltamaður heims. Hver veit nema hlutverk hans í varnarleiknum verði nú enn stærra en áður. „Við höfum misst René, herforingjann okkar í vörninni og nú þurfum við að finna út hver taki við að honum og stýrir vörninni okkar," sagði Hansen. Evrópumótið í Póllandi verður annað stórmót danska landsliðsins undir stjórn Guðmundar Guðmundssonar. Danir lentu í fimmta sæti á HM í Katar á síðasta ári. Danir eru í riðli með Ungverjalandi, Rússlandi og Svartfjallalandi og mæta Rússum í sínum fyrsta leik.
EM 2016 karla í handbolta Mest lesið Hitti holu í höggi á fyrsta hring ævinnar Golf Hljóp lengra en nokkur annar íslenskur karlmaður hefur gert Sport Svaf ekki í margar nætur áður en hann tók ákvörðunina um Arsenal Enski boltinn „Persónuleg mál sem ég þurfti að eiga við“ Körfubolti Veigar Páll í árs bann eftir fall á lyfjaprófi Körfubolti Uppgjörið: KR - Ármann 108-74 | Frystir í Frostaskjóli Körfubolti „Af öllum stöðum þá er KA-heimilið alltaf best“ Sport Utan vallar: Sjúklingurinn er að deyja Enski boltinn Uppgjörið: Njarðvík-Valur 85-93 | Ólík staða eftir öruggan Valssigur Körfubolti „Vonandi ekki okkar einkennismerki“ Körfubolti Fleiri fréttir Uppgjörið: KA-Afturelding 32-28 | KA-menn upp í annað sætið Viktor Gísli og Baldur Fritz frábærir í Meistaradeildinni Reynir Þór með fimm marka leik í Meistaradeildinni Íslensku stelpurnar unnu Pólverja eftir flotta endurkomu Þórsarar unnu í fyrsta sinn síðan um miðjan september Topplið Hauka burstaði Fram í Lambhagahöllinni Fyrsta tap Kristianstad kom í Íslendingaslag Viktor Gísli öflugur í sigri Barcelona Gísli og Ómar drógu vagninn í sigri Magdeburgar Elvar markahæstur en Donni fagnaði sigri Reynir markahæstur í sigri Melsungen Kærkominn sigur KA/Þór FH gekk frá Fram í seinni hálfleik Sandra með tíu í sætum sigri á Fram en Haukar halda flugi Níu mörk Jóhannesar ekki nóg Finnur til með Arnari Sætur sigur Selfoss og Gunnar með fullkominn leik KA-menn brotlentu í Garðabæ Tólf marka Dagur kom ÍBV á rétta braut „Ekkert sem ég missti svefn yfir“ Snorri Steinn valdi tuttugu leikmenn fyrir komandi verkefni Átján ára með fjórtán mörk og Haukar fljúga áfram Afturelding í annað sæti Stórleikur Hauks í sáru tapi og Andri náði ekki að mæta pabba Úr leik þrátt fyrir sjö mörk Einars Braga Gísli markahæstur og Bjarki fagnaði stórsigri Nýr styrktaraðili dönsku úrvalsdeildarinnar í handbolta umdeildur Arnór Snær: „Þvílíka veislan“ FH þurfti að þola annan skell í Portúgal Valur - Tatabánya 38-34 | Annar frábær Evrópusigur Sjá meira