Frakkar lögðu Dani Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 29. janúar 2016 20:20 Guðmundur Guðmundsson er þjálfari danska landsliðsins. Vísir/Getty
Frakkland hafði betur gegn Dönum, 29-26, í leiknum um fimmta sætið á EM í Póllandi. Frakkar höfðu tveggja marka forystu í hálfleik, 15-14, en leikmenn sem höfðu lítið spilað til þessa á mótinu fengu stærra hlutverk hjá báðum liðum í leiknum. Frakkar byrjuðu mjög vel og komust í 4-0, 7-2 og 9-4 forystu snemma í leiknum en þá rönkuðu lærisveinar Guðmundar Guðmundssonar við sér og minnkuðu muninn í eitt mark, 12-11, þegar fimm mínútur voru eftir af fyrri hálfleik. Það var meira jafnræði með liðunum í síðari hálfleik og staðan var jöfn, 26-26, þegar tæpar átta mínútur voru til leiksloka. En þá hrundi sóknarleikur Dana sem skoruðu ekki mark það sem eftir lifði leiksins og Frakkar sigldu sigrinum nokkuð þægilega í höfn. Thierry Omeyer átti stórleik í marki Frakka og varði 20 skot en markahæstur hjá þeim var Benoit Kounkoud með átta mörk. Cedric Soirhando kom næstur með sex mörk. Peter Balling skoraði sjö mörk fyrir Dani og Kevin Möller varði tíu skot í markinu. Eftir góða byrjun hjá Dönum á EM í Póllandi þar sem liðið vann fyrstu fimm leiki sína tókst liðinum ekki að vinna síðustu þrjá leiki sína og endaði því í sjötta sæti. Fyrir mótið var gefið út að fyrsta markmið liðsins væri að komast í undanúrslit en það tókst ekki, annað stórmótið í röð. Frakkar eru heldur ekki sáttir við þessa niðurstöðu enda ríkjandi heims-, Evrópu- og Ólympíumeistarar.
EM 2016 karla í handbolta Mest lesið Utan vallar: Sjúklingurinn er að deyja Enski boltinn Þurfti að spretta í markið eftir 102 klukkutíma á hlaupum Sport Belgísku bakgarðskóngarnir með lygilegt heimsmet Sport Veigar Páll í árs bann eftir fall á lyfjaprófi Körfubolti Vinirnir deila heimsmetinu en hvorugur er sigurvegari Sport Þurftu að biðja Infantino afsökunar Fótbolti Martröð hjá Manchester United við Como-vatnið Fótbolti Hitti holu í höggi á fyrsta hring ævinnar Golf „Þetta voru meira en vonbrigði“ Fótbolti Þjóðhátíð er Gunnar Lárus kom heim á Reyðarfjörð Sport Fleiri fréttir Uppgjörið: KA-Afturelding 32-28 | KA-menn upp í annað sætið Viktor Gísli og Baldur Fritz frábærir í Meistaradeildinni Reynir Þór með fimm marka leik í Meistaradeildinni Íslensku stelpurnar unnu Pólverja eftir flotta endurkomu Þórsarar unnu í fyrsta sinn síðan um miðjan september Topplið Hauka burstaði Fram í Lambhagahöllinni Fyrsta tap Kristianstad kom í Íslendingaslag Viktor Gísli öflugur í sigri Barcelona Gísli og Ómar drógu vagninn í sigri Magdeburgar Elvar markahæstur en Donni fagnaði sigri Reynir markahæstur í sigri Melsungen Kærkominn sigur KA/Þór FH gekk frá Fram í seinni hálfleik Sandra með tíu í sætum sigri á Fram en Haukar halda flugi Níu mörk Jóhannesar ekki nóg Finnur til með Arnari Sætur sigur Selfoss og Gunnar með fullkominn leik KA-menn brotlentu í Garðabæ Tólf marka Dagur kom ÍBV á rétta braut „Ekkert sem ég missti svefn yfir“ Snorri Steinn valdi tuttugu leikmenn fyrir komandi verkefni Átján ára með fjórtán mörk og Haukar fljúga áfram Afturelding í annað sæti Stórleikur Hauks í sáru tapi og Andri náði ekki að mæta pabba Úr leik þrátt fyrir sjö mörk Einars Braga Gísli markahæstur og Bjarki fagnaði stórsigri Nýr styrktaraðili dönsku úrvalsdeildarinnar í handbolta umdeildur Arnór Snær: „Þvílíka veislan“ FH þurfti að þola annan skell í Portúgal Valur - Tatabánya 38-34 | Annar frábær Evrópusigur Sjá meira