Umfjöllun og viðtöl: Haukar - Keflavík 89-69 | Haukar upp að hlið Snæfells Stefán Árni Pálsson í Schenker-höllinni skrifar 27. janúar 2016 20:45
Haukar unnu auðveldan sigur á Keflvíkingum, 89-69, í Dominos-deild kvenna í körfubolta í kvöld en leikurinn fór fram í DB Schenker-höllinni í Hafnarfirði. Leikurinn var aldrei spennandi og ljóst frá byrjun í hvað stefndi. Haukar byrjuðu leikinn virkilega vel og þá sérstaklega Helena Sverrisdóttir, spilandi þjálfari liðsins, en hún gerði fyrstu níu stig heimastúlkna í leiknum. Alveg hreint mögnuð byrjun. Keflvíkingar áttu fá svör. Staðan eftir fyrsta leikhlutann var 26-15 fyrir Hauka. Í öðrum leikhluta hélt áfram sama sagan nema Helena lét aðra leikmenn Hauka sjá um dæmið. Fljótlega var staðan orðin 41-20 og heimamenn að ganga frá Keflvíkingum. Helena skoraði fyrstu níu stig Hauka en síðan gerði hún aðeins tvö stig til viðbótar út hálfleikinn. Chelsie Alexa Schweers, leikmaður Hauka, var með tíu stig eftir fyrri hálfleikinn. Staðan í hálfleik var 47-28 fyrir Hauka. Keflvíkingar skoruðu sjö fyrstu stigin í síðari hálfleiknum og var staðan allt í einu orðin 47-35 fyrir Hauka. Fínasta byrjun sem var samt engan vegin nóg. Haukar settu þá bara í annan gír og náðu aftur upp sama forskoti. Það er skemmst frá því að segja að Haukar voru aldrei í vandræðum með þennan leik og unnu að lokum mjög þægilegan sigur, 89-69. Keflvíkingar fá nýjan leikmann á næstu dögum, fyrrum WNBA-meistara, og þurfa þær vel á þeim stuðningi að halda. Melissa Zornig gerði lítið fyrir gestina frá Keflavík í kvöld. Chelsie Alexa Schweers var frábæran í liði Hauka í kvöld og gerði 27 stig. Eftir sigurinn í kvöld eru Haukar og Snæfellingar bæði með 26 stig.Haukar-Keflavík 89-69 (26-15, 21-13, 21-22, 21-19)Haukar: Chelsie Alexa Schweers 27/7 fráköst, Helena Sverrisdóttir 19/14 fráköst/9 stoðsendingar/7 stolnir/4 varin skot, Sylvía Rún Hálfdanardóttir 12, Jóhanna Björk Sveinsdóttir 9/5 fráköst/3 varin skot, María Lind Sigurðardóttir 8, Pálína María Gunnlaugsdóttir 5, Dýrfinna Arnardóttir 4, Sólrún Inga Gísladóttir 3, Hanna Þráinsdóttir 2, Þóra Kristín Jónsdóttir 0, Auður Íris Ólafsdóttir 0/6 fráköst, Shanna Dacanay 0.Keflavík: Sandra Lind Þrastardóttir 18/7 fráköst, Guðlaug Björt Júlíusdóttir 14/6 fráköst/6 stoðsendingar, Emelía Ósk Gunnarsdóttir 9/3 varin skot, Melissa Zornig 8, Katla Rún Garðarsdóttir 5, Thelma Dís Ágústsdóttir 5/7 fráköst, Marín Laufey Davíðsdóttir 5/4 fráköst, Irena Sól Jónsdóttir 5, Andrea Einarsdóttir 0, Þóranna Kika Hodge-Carr 0, Elfa Falsdottir 0, Bríet Sif Hinriksdóttir 0. Sverri: Bárum og mikla virðingu fyrir þeim„Mér fannst við bara bera of mikla virðingu fyrir þeim til að byrja með,“ segir Sverrir Þór Sverrisson, þjálfari Keflavíkur, eftir tapið. „Það var smá hræðsla í stelpunum til að byrja með og við misstum þær of langt fram úr okkur. Það var samt gaman að sjá hversu vel stelpurnar komu til baka í síðari hálfleiknum.“ Sverrir segir að Haukaliðið sé með mjög leikreyndar stelpur innanborðs og það hafi skipt sköpum. Lið Keflavíkur í Dominos-deild kvenna í körfubolta hefur fengið mikinn liðsstyrk fyrir seinni hluta tímabilsins og úrslitakeppnina. Moncia Wright, tvöfaldur WNBA-meistari, er komin með leikheimild með Keflavík, en hún kemur til landsins á þriðjudag og hefur þá leik með Suðurnesjaliðinu. „Hún er að fara spila í WNBA-deildinni í sumar. Hún er ekki að fara spila alveg strax með okkur en byrjar vonandi eftir nokkrar vikur á fullu. Mellisa verður áfram hjá okkur líka. Vonandi á Wright eftir að koma inn og styrkja liðið vel.“ Helena: Verðum komnar vel í gang í úrslitakeppninni„Það er alltaf gott að komast á sigurbraut og ég er virkilega ánægð með stelpurnar,“ segir Helena Sverrisdóttir, spilandi þjálfari Hauka, eftir sigurinn. „Leikurinn var í sjálfu sér ekkert rosalega góður hjá okkur en tuttugu stiga sigur er tuttugu stiga sigur. Við náðum góðu forskoti í fyrri hálfleiknum og héldum því.“ Helena segir að varnarleikurinn hjá liðinu í síðari hálfleiknum hafi kannski ekki verið alveg nægilega góður. „Við verðum bara að læra af því og gera bara betur með hverjum leiknum. Það er ennþá venjulegt tímabil og við verðum flottar í úrslitakeppninni.“ Pálína: Loksins mættum við tilbúnar„Mér fannst við alveg þokkalega góðar, allavega í fyrri hálfleiknum,“ segir Pálína Gunnlaugsdóttir, eftir leikinn í kvöld. „Við mættum loks tilbúnar til leiks og það er orðið nokkuð langt síðan við gerðum það. Liðið var að spila vel saman og við vorum að finna hvor aðra.“ Pálína segir að liðið hafi lagt upp með það að reyna dreifa spilinu eins mikið og það gat. „Chelsie er að koma hægt og rólega inn í þetta hjá okkur og var frábær í kvöld. Hún dreifði spilinu vel í kvöld, var ekki eigingjörn og kom mjög vel út.“Bein lýsing: Haukar - KeflavíkTweets by @Visirkarfa1
Dominos-deild kvenna Mest lesið „Eins og stúdentsprófin í MR“ Íslenski boltinn Læti í göngunum og Hermann sakaður um að slá til KR-ings Íslenski boltinn „Það fer í taugarnar á mér“ Íslenski boltinn Fullkomnuðu endurkomuna og hentu Boston út Körfubolti Hélt á lofti og lofaði Newcastle að Sádarnir myndu ekki selja Enski boltinn Golfsveifla Sigmundar Davíðs heldur hægri sinnuð Golf Tatum bættist óvænt við meiðslalistann fyrir oddaleikinn Körfubolti Valur - KR 1-4 | Grýlan dauð Íslenski boltinn Eyjakonan lagði Sveindísi Fótbolti Þegar Síkið þagnaði: „Keyri bara á körfuna og legg hann ofan í“ Körfubolti Fleiri fréttir Fullkomnuðu endurkomuna og hentu Boston út Þegar Síkið þagnaði: „Keyri bara á körfuna og legg hann ofan í“ Tatum bættist óvænt við meiðslalistann fyrir oddaleikinn Sindri stígur fyrsta skrefið í átt að úrvalsdeild Uppgjörið: Keflavík - Haukar 72-98 | Haukar unnu og geta varið titil sinn Grindavík - Njarðvík 68-72| Njarðvík tryggði sér oddaleik Tíu stoðsendingar Martins dugðu skammt í toppslagnum Hvergi nærri hættur með KR „Ætla ekkert að hengja þetta bara á þá“ „Höfum beðið eftir þessu alla úrslitakeppnina“ Uppgjörið: Grindavík - Valur 93-67 | Grindvíkingar skelltu í lás Stjörnufólk stendur í ströngu á sunnudaginn Sjáðu fyrirliðann Tryggva taka við Evrópubikarnum „Þetta er smá spooky“ Tvíburar héldu sínum liðum á lífi Heiðrar minningu mannsins síns með því að mæta í Síkið Arnar: „Ég er með mann í því, ég tala ekki við þá“ Tryggvi varði Evróputitil með Bilbao Tindastóll - Stjarnan 103-88 | Stólarnir lifa góðu lífi Wembanyama varði skot yfir spjaldið og sendi Portland í sumarfrí Lætur umræðu síðustu daga sem vind um eyru þjóta: „Gullið tækifæri Þórsarar gætu hætt: „Fyrir hvern erum við að standa í þessu starfi?“ Þristur í lokin og Sindri eða Breiðablik í Bónus-deildina Uppgjörið: Haukar - Keflavík 86-70 | Haukar unnu sannfærandi sigur og komust yfir Frank Booker fer yfir hnéskeljarbrotið: „Löppin bara hékk á eftir mér“ Þreföld tvenna Jokic heldur Denver á lífi Rúnar og Logi áfram í Njarðvík næstu tvö árin Uppgjörið: Njarðvík - Grindavík 94-88| Njarðvíkingar berja frá sér KKÍ horfir til framtíðar Hnéskel Franks Arons brotnaði Sjá meira