Lífið

Sjáðu hið magnaða opnunaratriði úrslitakvölds Söngvakeppninnar

Tryggvi Páll Tryggvason skrifar
Opnunaratriði úrslitakvölds Söngvakeppninnar vakti mikla lukku í gær en þar mætti á svið rjóminn af þeim sem tekið hafa þátt í Eurovison fyrir Íslands hönd.

Það var María Ólafsdóttir sem steig fyrst á svið en á eftir henni fylgdi sannkölluð tónlistarveisla þar sem fortíð Íslands í söngvakeppninni vinsælu var gerð upp.

Icy, Sigga og Örvar, Selma og síðast en ekki síst Páll Óskar rifjuðu upp gamla takta ásamt mörgum fleirum.

Athygli vakti þó að ekki voru allir með og voru tístarar Íslands snöggir að benda á það.

 


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.