„Ég heillaðist strax af þessari bók og af þessu mínímalíska formi sem er fullt af fallegum myndum en skapar í senn svo ótrúlega mikið rými fyrir ímyndunaraflið og hvetur það áfram. Svo er sagan sjálf líka áhrifarík og sterk. Þannig að ég hugsaði með mér að það væri gaman að láta reyna á að skapa sviðsverk út frá þessari bók og það féll líka svo að mínu lífi í þessum tveimur löndum.“
Tenging á milli landa
Skugga-Baldur er byggð utan um þrjár aðalpersónur en í sviðsverkinu er Tera ein á sviðinu og hún segir að verkið sé byggt upp utan um hana sem aðalpersónu og sögumann. „Við fórum þá leið að vera með þessa aðalpersónu sem kallast Skuggi og í honum koma saman skuggar þessara þriggja persóna.“
Skuggi notar umbreytingu sem sína helstu leið til tjáningar og Tera segir að það falli því einkar vel að sögunni að vinna sýninguna með fólki úr ólíkum listgreinum. Kamila Polívková er meðhöfundur að handriti og leikstjóri, listrænir stjórnendur eru þeir Jón Sæmundur Auðarson og Sindri Ploder og áfram mætti telja fjölbreyttan hóp listamanna frá bæði Íslandi og Tékklandi. „Sjón er listamaður sem hefur einnig fengist við tónlist og myndlist og býr yfir mikilli sköpunargleði og ég finn til skyldleika við hann hvað það varðar. Hann varð fyrir áhrifum frá tékkneskum súrrealistum og það myndar ákveðna tengingu á milli okkar og á milli landanna.

Skugga-Baldur er líka skrifuð eins og listrænt konsept. Þessi bók er eins og kvartett eins og Sjón hefur bent á og svo eru líka í henni ákveðnar eyður – „empty space“ eins og það er kallað í leikhúsi og það gefur þér sem lesanda ákveðið svigrúm og andrými sem skiptir miklu máli. Það gefur þér færi á að leyfa myndunum að forma sig í hausnum og að njóta þeirra þar. Að mínu mati er þessi bók því fullkomin til þess að eiga framhaldslíf sem annað og sjálfstætt listaverk. Okkar nálgun felur í sér að nota myndlistina, tónlistina, söguna og láta þetta mynda heild á sínum eigin forsendum. Ég hef alla þessa frábæru listamenn með mér í þessu ferli öllu þannig að ég er í raun ekki ein heldur þvert á móti hluti af heildstæðu verki ólíkra forma.“
Allt er mögulegt
Verkið var frumsýnt í Prag í síðustu viku og Tera segir að það hafi verið henni mikilvægt að Sjón og eiginkona hans, Ásgerður Júníusdóttir söngkona, voru viðstödd frumsýninguna. „Hann hrósaði okkur svo fallega. Sagði að hann hafi alltaf haldið að bækurnar hans væru óbreytanlegar, væru bara það sem þær eru og gætu ekki verið neitt annað, en að nú hafi hann séð að það væri nú ekki endilega þannig. Að hið ómögulega væri mögulegt og þetta gladdi mig ákaflega mikið.
Við höfum reyndar þurft að breyta miklu og svo þurfum við að gera enn meiri breytingar hér í tengslum við rýmið sem við erum að vinna með í Hafnarhúsinu sem er talsvert frábrugðið leikhúsinu í Prag. En það er bara áskorun rétt eins og að núna þarf ég að koma fram á ensku en í Prag gat ég leyft mér tékkneskuna. En við fengum frábærar viðtökur í Prag þannig að við erum farin að hlakka til að sýna hér.“