Níundi oddaleikur Justins Shouse á Íslandi Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 31. mars 2016 07:00 Justin Shouse. Vísir/Vilhelm
Stjarnan tekur á móti Njarðvík í kvöld í hreinum úrslitaleik um sæti í undanúrslitum Domino’s-deildar karla í körfubolta en KR, Tindastóll og Haukar eru þegar komin áfram. Þetta er annað árið í röð sem Stjarnan og Njarðvík mætast í oddaleik í átta liða úrslitum úrslitakeppninnar en Njarðvík vann 92-73 sigur í Ljónagryfjunni fyrir ári. Að þessu sinni eru Stjörnumenn hins vegar á heimavelli en það má deila um hversu gott það er enda hafa útiliðin unnið fyrstu fjóra leikina. Stjörnumenn og þá sérstaklega Justin Shouse þekkja það vel að spila oddaleik en leikurinn í kvöld verður níundi oddaleikur Justins í úrslitakeppninni. Justin hefur þrisvar fagnað sigri en fimm sinnum verið í tapliði.Justin er með 17,8 stig og 7,4 stoðsendingar að meðaltali í þessum átta oddaleikjum sínum. Stjörnuliðið er að fara að spila oddaleik í átta liða úrslitunum í sjöunda sinn á átta árum en liðið hefur unnið 3 af síðustu 4 oddaleikjum sínum. Njarðvíkingar kunna það líka vel að spila oddaleiki en þetta verður fimmti oddaleikur Njarðvíkinga í síðustu fjórum úrslitakeppnum. Þrír af þessum fjórum oddaleikjum hafa Njarðvíkingar tapað. Leikur Stjörnunnar og Njarðvíkur verður sýndur beint á Stöð 2 Sport en á undan verður Körfuboltakvöld Kjartans Atla Kjartanssonar í beinni frá Ásgarði í Garðbæ. Körfuboltakvöld hefst klukkan 18.45 en leikurinn klukkan 19.15.
Dominos-deild karla Mest lesið Fjörið og fegurðin var í fyrri hálfleik Fótbolti Beckham fékk sína stjörnu á götuna frægu í Hollywood Fótbolti Lögreglumenn dulbjuggu sig sem lukkudýr HM fyrir fíkniefnaaðgerð Fótbolti Alisson Becker missti af leikjum Liverpool til að spara sig fyrir HM Enski boltinn Siggi Raggi með NSÍ á toppnum Fótbolti Harden handtekinn fyrir ólöglegan vopnaburð Körfubolti „Ennþá er boltinn ekki að fara inn í markið“ Íslenski boltinn Katarmenn stálu stiginu með marki í uppbótartíma Fótbolti Michael Oliver getur ekki dæmt fyrsta leikinn sinn á HM Fótbolti Uppgjörið: Valur – Þór/KA 0-0 | Markalaust í bragðdaufum leik á Hlíðarenda Fótbolti Fleiri fréttir Harden handtekinn fyrir ólöglegan vopnaburð Elvari og félögum sópað í sumarfrí Martin nálægt tvennunni en Alba Berlin tapaði fyrsta leiknum Jesús áfram í Stjörnunni Stuðningsmenn Knicks köstuðu eggi í Wembanyama Elvar og félagar fara 2-0 undir heim til Kanaríeyja Baldur tekur eina stærstu stjörnu Stjörnuliðsins yfir á Álftanes Stólarnir ráða Ísak Wíum Ármann fær sæti í Bónus deildinni og framlengir við Jónínu „Heimskasta körfuboltalið í sögu mannkyns“ Söguleg endurkoma Knicks LeBron James um „Geitina“ í NBA: Enginn betri en ég Wembanyama sleppur við refsingu Kolbrún snýr aftur heim og semur við Tindastól Steinar áfram hjá Ármanni Hamar og Þór hætta samstarfi Martin í úrvalsliðinu Martin spilar til úrslita um þýska meistaratitilinn Elvar og félagar lentu í gininu á Börsungum í kvöld „Ég hef alltaf komið sterkari til baka“ „Ég fer í góðu og þeir skilja mína ákvörðun“ KR blæs í herlúðra: Sara Rún og Emma Sóldís í Vesturbæinn Baulað á Trump í New York Spurs minnka muninn í úrslitaeinvíginu Þrefaldur NBA-meistari með Jordan látinn Ekkert teiti því Trump mætir á völlinn Martin á leið í oddaleik Elvar og félagar hentu meisturum Real Madrid úr leik Tryggvi úr leik þrátt fyrir góða frammistöðu Bræðurnir áfram og meistararnir halda þéttum kjarna Sjá meira