Haukarnir hafa lent 1-0 undir í sex einvígum í röð í úrslitakeppninni Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 3. apríl 2016 13:30 Haukamaðurinn Kári Jónsson. Vísir/Anton
Haukar og Tindastóll hefja undanúrslitaeinvígi sitt á Ásvöllum í kvöld en þetta er annað árið í röð sem þessi félög spila um sæti í lokaúrslitum Domino´s deildar karla í körfubolta. Tindastólsliðið var með heimavallarréttinn í fyrra og vann einvígið þá 3-1. Haukarnir eru með heimavallarréttinn í ár en bæði lið hafa verið á miklu skriði síðustu mánuði. Leikurinn hefst klukkan 19.15 í Schenkerhöllinni á Ásvöllum en hann verður í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport. Ætli Haukarnir sér að komast í lokaúrslitin í fyrsta skiptið í 23 ár (1993) þá þurfa þeir að breyta þeirri hefð sinni að lenda 1-0 undir í einvígum sínum í úrslitakeppninni. Haukarnir töpuðu fyrsta leiknum á heimavelli í einvígi sínum á móti Þór Þorlákshöfn en tryggðu sér sæti í undanúrslitunum með því að vinna þrjá leiki í röð. Þetta var sjötta einvígið í röð hjá Haukum þar sem þeir tapa fyrsta leiknum en Haukar hafa ekki unnið fyrsta leikinn í einvígi síðan 14. mars 2003. Þá unnu Haukarnir einmitt 91-89 sigur á Tindastól á Ásvöllum. Stólarnir komust þó áfram því þeir unnu tvo næstu leiki og tryggðu sér sæti í undanúrslitunum.Fyrsti leikur Hauka í síðustu ellefu einvígum í úrslitakeppninni20168 liða úrslit: 67-64 tap á móti Þór Þorl. á heimavelli2015Undanúrslit: 94-64 tap á móti Tindastól á útivelli8 liða úrslit: 86-78 tap á móti Keflavík á heimavelli20148 liða úrslit: 88-84 tap á móti Njarðvík á útivelli20118 liða úrslit: 76-67 tap á móti Snæfelli á útivelli20048 liða úrslit: 100-61 tap á móti Njarðvík á útivelli20038 liða úrslit: 91-89 sigur á móti Tindastól á heimavelli20028 liða úrslit: 90-74 tap á móti Keflavík á útivelli20018 liða úrslit: 85-77 tap á móti KR á útivelli2000Undanúrslit: 67-59 sigur á Grindavík á heimavelli8 liða úrslit: 99-96 sigur á Þór á heimavelli (Strandgata)
Dominos-deild karla Mest lesið „Eins og stúdentsprófin í MR“ Íslenski boltinn Læti í göngunum og Hermann sakaður um að slá til KR-ings Íslenski boltinn „Það fer í taugarnar á mér“ Íslenski boltinn Fullkomnuðu endurkomuna og hentu Boston út Körfubolti Golfsveifla Sigmundar Davíðs heldur hægri sinnuð Golf Hélt á lofti og lofaði Newcastle að Sádarnir myndu ekki selja Enski boltinn Valur - KR 1-4 | Grýlan dauð Íslenski boltinn Tatum bættist óvænt við meiðslalistann fyrir oddaleikinn Körfubolti Eyjakonan lagði Sveindísi Fótbolti Isak aftur meiddur Enski boltinn Fleiri fréttir Fullkomnuðu endurkomuna og hentu Boston út Þegar Síkið þagnaði: „Keyri bara á körfuna og legg hann ofan í“ Tatum bættist óvænt við meiðslalistann fyrir oddaleikinn Sindri stígur fyrsta skrefið í átt að úrvalsdeild Uppgjörið: Keflavík - Haukar 72-98 | Haukar unnu og geta varið titil sinn Grindavík - Njarðvík 68-72| Njarðvík tryggði sér oddaleik Tíu stoðsendingar Martins dugðu skammt í toppslagnum Hvergi nærri hættur með KR „Ætla ekkert að hengja þetta bara á þá“ „Höfum beðið eftir þessu alla úrslitakeppnina“ Uppgjörið: Grindavík - Valur 93-67 | Grindvíkingar skelltu í lás Stjörnufólk stendur í ströngu á sunnudaginn Sjáðu fyrirliðann Tryggva taka við Evrópubikarnum „Þetta er smá spooky“ Tvíburar héldu sínum liðum á lífi Heiðrar minningu mannsins síns með því að mæta í Síkið Arnar: „Ég er með mann í því, ég tala ekki við þá“ Tryggvi varði Evróputitil með Bilbao Tindastóll - Stjarnan 103-88 | Stólarnir lifa góðu lífi Wembanyama varði skot yfir spjaldið og sendi Portland í sumarfrí Lætur umræðu síðustu daga sem vind um eyru þjóta: „Gullið tækifæri Þórsarar gætu hætt: „Fyrir hvern erum við að standa í þessu starfi?“ Þristur í lokin og Sindri eða Breiðablik í Bónus-deildina Uppgjörið: Haukar - Keflavík 86-70 | Haukar unnu sannfærandi sigur og komust yfir Frank Booker fer yfir hnéskeljarbrotið: „Löppin bara hékk á eftir mér“ Þreföld tvenna Jokic heldur Denver á lífi Rúnar og Logi áfram í Njarðvík næstu tvö árin Uppgjörið: Njarðvík - Grindavík 94-88| Njarðvíkingar berja frá sér KKÍ horfir til framtíðar Hnéskel Franks Arons brotnaði Sjá meira