Lífið

Allir héldu að um 1. aprílgabb væri að ræða: Davíð mætti á FM, nuddaði Rikka G og er á leiðinni til Spánar

Stefán Árni Pálsson skrifar
Davíð Þór og Ríkharð.
Davíð Þór og Ríkharð. vísir
Einn heppinn hlustandi Brennslunnar á FM957 vann í morgun tvö flugmiða með stöðinni til Magaluf á Spáni í maí.

Það eina sem hann þurfti að gera var að mæta niður í Skaftahlíð og nudda Rikka G, dagskrástjóra FM957, í fimm mínútur. Þegar Kjartan Atli Kjartansson og Ríkharð byrjuðu að tala um keppnina í útvarpinu í morgun vissu þeir allan tímann að langflestir myndu halda að um 1. aprílgabb væri að ræða.

Svo var aftur á móti ekki og því mætti Davíð Þór í hljóðverið, nuddaði Rikka vel og fór út með tvo flugmiða til Spánar. Hér að neðan má hlusta á hljóðbrot úr þættinum í morgun.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.