Innlent

Ís­land Banda­ríkjanna komið í kennslu­bækur

Jakob Bjarnar skrifar
Þó fólk á Íslandi hafi ekki gefið mikið fyrir hina nýstárlegu landafræði Trumps telja Ítalir fyllstu ástæðu til að taka mark á honum.
Þó fólk á Íslandi hafi ekki gefið mikið fyrir hina nýstárlegu landafræði Trumps telja Ítalir fyllstu ástæðu til að taka mark á honum. vísir/samsett

Svo virðist sem breytt heimskipan Donalds Trump Bandaríkjaforseta, sú sem hann sló eftirminnilega fram á Truth Social og sýndi Grænland og Ísland sem hluta Bandaríkjanna, hafi náð meiri útbreiðslu en menn gátu ímyndað sér.

Fæstir hafa gefið mikið fyrir þessa nýstárlegu landafræði en hún virðist ætla að reynast afdrifaríkari en menn gátu ímyndað sér. Vísir heyrði í nemanda í ítölsku og hann rak í rogastans þegar hann gluggaði í nýja kennslubók í ítölsku. Þar ber ekki á öðru en að Ísland teljist til Bandaríkjanna.

Um er að ræða bókina „A Lezione di italiano“ og höfundar eru Antonella Bolzoni og Pier Cesare. „Ég er í ítölsku B1 og var að fá þessa bók sem er fyrsta útgáfa, prentuð í febrúar 2026 frá útgáfufélagi í Flórens,“ segir nemandinn forviða.

Um er að ræða miðstig í ítölsku þar sem gengið er út frá því að nemendur skilji aðalatriði um kunnugleg efni sem tengjast vinnu, skóla og tómstundum. Þú átt að geta bjargað þér á ferðalögum og skrifað einfaldan texta um málefni sem þér eru kunn.

Svona lítur landafræðin út í ítalskri kennslubók.

Menn hafa talið Truth Social hálfgert flopp en Trump stofnaði miðilinn ásamt öðrum 2022 eftir að hann hafði verið bannaður frá Twitter og Facebook eftir árásina á þinghúsið. Þeir miðlar drógu bannið til baka en Trump vill hins vegar ekki sjá að viðra hugleiðingar sínar þar eftir bannið. Samkvæmt New York Times sækja 28 milljónir manna miðilinn heim mánaðarlega og áhrifin ná víða, meðal annars í ítalskar kennslubækur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×