700-800 g úrbeinaður svínahnakki
1 tsk paprikukrydd
1 tsk cumin krydd
1 tsk bezt á allt krydd
Salt og pipar
1 laukur
2 hvítlauksrif
1 msk ólífuolía
Aðferð:
Kryddið kjötið með þeim kryddum sem talin eru upp hér að ofan.
Brúnið kjötið á öllum hliðum upp úr ólífuolíu í víðum potti sem má fara inn í ofn.
Skerið niður einn lauk og bætið honum út í pottinn ásamt tveimur hvítlaukrifjum.
Leyfið kjötinu að malla í pottinum við vægan hita á meðan þið útbúið bbq sósuna.
BBQ sósa
1 msk ólífuolía
1 laukur
1 ½ dl tómatasósa
1-2 msk balsamikgljái
1 msk hunang
Salt og pipar
1 tsk paprikukrydd
1 tsk cumin krydd
Aðferð:
Saxið niður laukinn og steikið upp úr olíunni í eina til tvær mínútur. Bætið því næst hinum hráefnunum saman við og leyfið sósunni að malla í smá stund.
Hellið síðan sósunni yfir svínakjötið og setjið lokið á pottinn og inn í ofn við 110°C í 6-8 klst.
Berið svínakjötið fram í góðu brauði, með salati og pikkluðum rauðlauk.
Pikklaður rauðlaukur
1 rauðlaukur
1 dl hvítvínsedik
1 msk sykur
Aðferð:
Skerið rauðlauk í jafn stórar sneiðar, setjið í krukku eða skál og hellið hvítvínsediki og sykri saman við.
Blandið vel saman og geymið í kæli í lágmark klukkstund.
Missið ekki af Matargleði Evu öll fimmtudagskvöld klukkan 19:15 á Stöð 2.
