Oddur, eigum við að hitta eitthvað i næsta leik? Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 14. apríl 2016 10:00 Haukur Helgi Pálsson og Oddur Kristjánsson. Vísir/Anton
Haukur Helgi Pálsson og félagar í Njarðvík tryggðu sér oddaleik á móti Íslandsmeisturum KR á föstudagskvöldið eftir 74-68 sigur í Ljónagryfjunni í gær. Mjög góð frammistaða þeirra Jeremy Martez Atkinson (29 stig, 15 fráköst) og Maciej Baginski (17 stig, þrir þristar) og frábær seinni hálfleikur hjá fyrirliðanum Loga Gunnarssyni (12 af 16 stigum sínum í seinni hálfleik) áttu mestan þátt í sigri Njarðvíkinga í gær. Lykilmennirnir Haukur Helgi Pálsson og Oddur Kristjánsson gátu hinsvegar ekki keypt sér körfu þetta kvöld. Saman nýttu þeir félagar aðeins 2 af 21 skoti sínu í leiknum. Haukur Helgi hitti úr 1 af 10 skotum sínum og aðeins 3 af 6 vítum en Oddur hitti úr 1 af 11 skotum sínum og klikkaði jafnframt á eina víti sínu. Haukur Helgi grínaðist með það á Twitter eftir leikinn í gær og það eru vissulega góðar fréttir að Njarðvík eigi tvo byrjunarliðsmenn alveg inni í sóknarleiknum fyrir oddaleikinn á morgun. „Hvað segirðu @Oddurrk eigum við að hitta eitthvað i næsta leik?," skrifaði Haukur Helgi og Oddur svaraði að bragði með: „Haha! Jájá ég er til." Haukur Helgi Pálsson og Oddur Kristjánsson spiluðu báðir félaga sína uppi en þeir voru báðir með átta stoðsendingar í þessum leik. Haukur tók líka átta fráköst og spilaði orkufreka vörn á Bandaríkjamanninn Michael Craion. Nú er að sjá hvort þeir Haukur Helgi og Oddur komist í gírinn fyrir úrslitaleikinn. Haukur skoraði 26,5 stig að meðaltali í fyrstu tveimur leikjunum þar sem hann hitti úr hverju risaskotinu á fætur öðru en hann hefur aðeins skorað 12 stig samtals í síðustu tveimur leikjum. Oddur hefur aftur á móti ekki hitt neitt allt einvígið en hann hefur bara skorað samtals 15 stig í leikjunum fjórum og klikkað á 33 af 37 skotum sínum utan af velli.Hvað segirðu @Oddurrk eigum við að hitta einhvað i næsta leik ?— Haukur Helgi Palsson (@haukurpalsson) April 13, 2016
Dominos-deild karla Mest lesið Fjörið og fegurðin var í fyrri hálfleik Fótbolti Alisson Becker missti af leikjum Liverpool til að spara sig fyrir HM Enski boltinn Beckham fékk sína stjörnu á götuna frægu í Hollywood Fótbolti Lögreglumenn dulbjuggu sig sem lukkudýr HM fyrir fíkniefnaaðgerð Fótbolti Siggi Raggi með NSÍ á toppnum Fótbolti Harden handtekinn fyrir ólöglegan vopnaburð Körfubolti Forseti FIFA móðgaði Ítali Fótbolti Michael Oliver getur ekki dæmt fyrsta leikinn sinn á HM Fótbolti Katarmenn stálu stiginu með marki í uppbótartíma Fótbolti „Ennþá er boltinn ekki að fara inn í markið“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Harden handtekinn fyrir ólöglegan vopnaburð Elvari og félögum sópað í sumarfrí Martin nálægt tvennunni en Alba Berlin tapaði fyrsta leiknum Jesús áfram í Stjörnunni Stuðningsmenn Knicks köstuðu eggi í Wembanyama Elvar og félagar fara 2-0 undir heim til Kanaríeyja Baldur tekur eina stærstu stjörnu Stjörnuliðsins yfir á Álftanes Stólarnir ráða Ísak Wíum Ármann fær sæti í Bónus deildinni og framlengir við Jónínu „Heimskasta körfuboltalið í sögu mannkyns“ Söguleg endurkoma Knicks LeBron James um „Geitina“ í NBA: Enginn betri en ég Wembanyama sleppur við refsingu Kolbrún snýr aftur heim og semur við Tindastól Steinar áfram hjá Ármanni Hamar og Þór hætta samstarfi Martin í úrvalsliðinu Martin spilar til úrslita um þýska meistaratitilinn Elvar og félagar lentu í gininu á Börsungum í kvöld „Ég hef alltaf komið sterkari til baka“ „Ég fer í góðu og þeir skilja mína ákvörðun“ KR blæs í herlúðra: Sara Rún og Emma Sóldís í Vesturbæinn Baulað á Trump í New York Spurs minnka muninn í úrslitaeinvíginu Þrefaldur NBA-meistari með Jordan látinn Ekkert teiti því Trump mætir á völlinn Martin á leið í oddaleik Elvar og félagar hentu meisturum Real Madrid úr leik Tryggvi úr leik þrátt fyrir góða frammistöðu Bræðurnir áfram og meistararnir halda þéttum kjarna Sjá meira